Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 23. október 2026 12:42 Vélin á Þjóðvegi 1 við Heiðmörk. RNSA Suðuviðgerð á hreyfli lítillar flugvélar olli alvarlegri bilun sem neyddi flugmann hennar til að nauðlenda á Suðurlandsvegi við Heiðmörk í maí í fyrra. Þetta kemur fram í lokaskýrslu Rannsóknarnefndar samgönguslysa Flugvélin, af gerðinni Piper PA-24 Comanche frá árinu 1959, var í ferjuflugi frá Bandaríkjunum til Bretlands og hafði millilent á nokkrum stöðum á leiðinni. Um borð voru flugmaður og hundur hans. Vélin tók á loft frá Reykjavíkurflugvelli klukkan 22.54 þann 26. maí 2025 áleiðis til Wick í Skotlandi. Um ellefu mínútum síðar, í klifri í 5.300 feta hæð suðvestur af Sandskeiði, bilaði hreyfillinn, skrúfan stöðvaðist og framrúðan huldist olíu. Flugmaðurinn lýsti yfir neyðarástandi og beindi vélinni í átt að þjóðvegi 1. Sandskeiðsflugvöllur var næsti flugvöllur þegar hreyfillinn bilaði. Flugmaðurinn var ekki kunnugur staðháttum og virðist ekki hafa orðið flugvallarins var. Skemmdir á vél flugvélarinnar voru augljósar við skoðun. Hann flaug yfir flugbrautina í 4.100 feta hæð án þess að veita henni athygli, enda einbeitti hann sér að því að finna stað til að nauðlenda á veginum. Flugstjórn á Reykjavíkurflugvelli lagði til að hann reyndi að svífa aftur til Reykjavíkurflugvallar en flugmaðurinn taldi sig ekki ná þangað í tæka tíð. Hann ákvað því að nauðlenda á beinum kafla vegarins, á móti vindi. Hann var óviss um undirlagið á svæðinu við veginn og taldi umferð litla. Við lendinguna rakst hægri vængur flugvélarinnar í umferðarskilti og skrapaðist við vegrið. Hvorki flugmaðurinn né hundurinn slösuðust en flugvélin skemmdist mikið. Atvikið var flokkað sem flugslys. Ökumenn aðstoðuðu við að koma flugvélinni af veginum eftir lendinguna. Suðuviðgerð olli bilun í hreyflinum Í skýrslunni kemur fram að hreyfillinn hafi verið endurbyggður fjórum vikum fyrir slysið og aðeins verið notaður í 38 klukkustundir eftir endurbygginguna. Hreyfillinn hafði verið tekinn úr vélinni og sendur í skoðun og endurbyggingu. Því fóru engar árlegar skoðanir fram á árunum 2022 til 2024. Sveifarhúsið hafði verið lagfært með suðu hjá bandaríska fyrirtækinu Divco og lauk þeirri viðgerð í mars 2023. Skemmdir á væng þegar flugvélin rakst í umferðarskilti við lendingu.RNSA Rannsóknarnefnd samgönguslysa lét taka hreyfilinn í sundur hjá framleiðanda hans og var rannsóknarstjóri nefndarinnar viðstaddur. Sveifarhúsið var brotið og umtalsvert magn málmagna fannst í olíupönnunni. Á sveifarásnum voru merki um mikinn hita og ónæga smurningu. Þá hafði tengistöng brotnað frá sveitarásnum og lega hennar var eyðilögð. Mæla með leiðbeiningum fyrir suðuviðgerð Rannsakendur skoðuðu olíugöngin og fundu stíflu í göngum í miðju sveifarhússins. Þar sáust einnig merki um slípun og bráðið ál eftir suðuviðgerð. Nefndin komst að þeirri niðurstöðu að suðuviðgerðin hefði stíflað olíugang í sveifarhúsinu og að það hefði valdið bilun í hreyfli. Rannsóknarnefnd samgönguslysa starfar samkvæmt lögum um rannsókn samgönguslysa. Markmið laganna er að fækka slysum og auka öryggi í samgöngum með því að efla og bæta slysarannsóknir. Rannsókn samkvæmt lögunum skal eingöngu miða að því að leiða í ljós orsakir samgönguslysa og samgönguatvika, en ekki að skipta sök eða ábyrgð, með það að markmiði að draga úr hættu á sams konar slysum og atvikum og afleiðingum sambærilegra slysa. Nefndin hvatti Divco til að yfirfara skýrsluna og gera nauðsynlegar breytingar til að koma í veg fyrir að olíugöng stíflist aftur við suðuvinnu. Bandarísku flugmálastofnuninni (FAA) og Flugöryggisstofnun Evrópusambandsins (EASA) var jafnframt ráðlagt að gefa út leiðbeiningar um mikilvægi þess að suðuviðgerðir skaði ekki olíugöng eða aðra hluta smurkerfis hreyfla. Skýrsluna sem er á ensku má lesa hér að neðan (PDF). Tengd skjöl final-report-n5611p-engine-failurePDF4.7MBSækja skjal Flug Samgönguslys Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Fleiri fréttir Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Búið að opna Hellisheiði á ný Sjá meira
Rannsóknarnefnd samgönguslysa starfar samkvæmt lögum um rannsókn samgönguslysa. Markmið laganna er að fækka slysum og auka öryggi í samgöngum með því að efla og bæta slysarannsóknir. Rannsókn samkvæmt lögunum skal eingöngu miða að því að leiða í ljós orsakir samgönguslysa og samgönguatvika, en ekki að skipta sök eða ábyrgð, með það að markmiði að draga úr hættu á sams konar slysum og atvikum og afleiðingum sambærilegra slysa.
Flug Samgönguslys Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Fleiri fréttir Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Búið að opna Hellisheiði á ný Sjá meira