HSÍ gat ekki styrkt Sérsveitina: Fékk yfir þrjár milljónir í fyrra Sindri Sverrisson skrifar 23. október 2026 13:52 Íslenskir stuðningsmenn, með Sérsveitina í broddi fylkingar, hafa sett mikinn svip á stórmót síðustu ára. vísir/Vilhelm Handknattleikssamband Íslands hefur sent frá sér yfirlýsingu og útskýrt þá ákvörðun að styrkja ekki Sérsveitina, stuðningsmannasveit landsliðanna, fyrir EM kvenna í desember og HM karla í janúar.
Sérsveitin tilkynnti í dag að hún yrði ekki á HM karla í Þýskalandi í janúar vegna kostnaðar og miðamála. Ellefu meðlimir verða hins vegar á EM kvenna í Rúmeníu, á þremur leikjum Íslands í byrjun desember. Sérsveitin hefur notið fjárstuðnings öflugra fyrirtækja sem og frá HSÍ til þess að komast á stórmót síðustu ára og ýtt þar undir stemningu þúsunda Íslendinga sem vakið hafa mikla athygli með stuðningi sínum. Nú virðast fyrirtækin halda að sér höndum og það sama á við um HSÍ sem á síðasta ári styrkti sérsveitina um meira en þrjár milljónir króna. „HSÍ stendur nú frammi fyrir krefjandi fjárhagsstöðu sem hefur kallað á verulegan niðurskurð í starfsemi og verkefnum allra landsliða. Á stórmótum yngri landsliða síðastliðið sumar þurfti til að mynda að draga verulega úr mannafla í kringum liðin. Aðeins fjórir starfsmenn fylgdu hverju landsliði, á sama tíma og sambærileg landslið mótherja okkar hafa í mörgum tilvikum allt að níu starfsmenn með sér,“ segir í yfirlýsingu á vef HSÍ. Sambandið hefur um árabil glímt við mikla fjárhagserfiðleika. „Þessi staða kallar á erfiðar ákvarðanir og forgangsröðun. HSÍ sér sér því miður ekki fært að styrkja Sérsveitina á næstu tveimur stórmótum, EM kvenna í desember og HM karla í janúar. Undanfarin ár hefur HSÍ stutt við starf Sérsveitarinnar og nam styrkur sambandsins til sveitarinnar á fjórðu milljón á síðasta ári. Það endurspeglar þá miklu þýðingu sem við leggjum í stuðning þeirra og framlag til íslensks handbolta. Núverandi fjárhagsstaða gerir okkur hins vegar ekki kleift að halda þeim stuðningi áfram að svo stöddu,“ segir þar einnig.
Landslið karla í handbolta Landslið kvenna í handbolta HM karla í handbolta 2027 EM kvenna í handbolta 2026 Mest lesið Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Golf FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ Íslenski boltinn Kompany hneig niður og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Hljóp lengra en nokkur annar íslenskur karlmaður hefur gert Sport Stólpagrín gert að „nasistamerki“ Fálkanna Sport „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ Körfubolti Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Handbolti Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Enski boltinn Fleiri fréttir HSÍ gat ekki styrkt Sérsveitina: Fékk yfir þrjár milljónir í fyrra Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Sjá meira