Finnur til með Arnari Valur Páll Eiríksson skrifar 17. október 2026 09:30 Snorri Steinn segist finna til með Arnari. Engar sérstakar agareglur eru hjá handboltalandsliðinu og Snorri ekki þurft að takast á við agamál. Samsett/Vísir Snorri Steinn Guðjónsson, landsliðsþjálfari karla í handbolta, segist finna til með Arnari Gunnlaugssyni, kollega sínum hjá fótboltalandsliðinu, vegna agamáls í nýliðnum landsleikjaglugga. Engin slík mál hafi komið upp í handboltanum og engar sérstakar agareglur séu til staðar.
Fjórir leikmenn í A-landsliði karla í fótbolta fóru út á lífið á spilavíti og höfðu áfengi við hönd eftir leik við Búlgaríu á Laugardalsvelli á laugardagskvöldi fyrir tveimur vikum síðan. Klippa: Engin agavandamál í handboltalandsliðinu Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari karla í fótbolta, svaraði fyrir agabrotin í löngu máli við Vísi í gær þar sem hann fordæmdi hegðunina og sagði leikmennina ekki aðeins hafa brugðist sér heldur sjálfum sér og þjóðinni allri. Örfáir aðilar hér á landi þekkja hvernig það er að stýra landsliði í stóru boltaíþróttunum með athyglinni og pressunni sem því fylgir. Snorri Steinn var því spurður út í málið er hann opinberaði landsliðshóp í handboltanum í gær Fannst þú eitthvað til með Arnari Gunnlaugssyni að þurfa að takast á við svona mál? „Já, ég geri það. Ég gluggaði aðeins í viðtalið sem þið tókuð við hann og, já, auðvitað fann ég aðeins til með honum. Því að ég tek undir það sem hann sagði að á að vera bara common sense fyrir leikmenn sem spila fyrir íslenska landsliðið í handbolta eða fótbolta að, það eru bara ákveðnar kröfur sem eru gerðar til þín og ákveðnir hlutir sem þú getur bara ekki leyft þér. Þannig að ég skil vel að þetta séu mikil vonbrigði fyrir hann,“ segir Snorri Steinn. Hefur þú þurft að takast á við eitthvað svona mál? „Nei.“ Ekkert vesen og engar reglur í handboltanum Fótboltalandsliðið var í sérstaklega löngum leikjaglugga og Arnar hafði orð á því að það hefði tekið á andlega. Til samanburðar er handboltalandsliðið iðulega saman í meira en mánuð er liðið býr sig undir stórmót frá því í lok desember og langt fram eftir janúar, sem fer eftir því hvað liðið nær langt. Þrátt fyrir það segist Snorri ekki hafa þurft að takast á við nein agamál líkt og það sem Arnar svaraði fyrir hjá Vísi í gær. Aðspurður um hvort það séu sérstakar agareglur hjá handboltalandsliðinu eða hvort það sé meira common sense, eins og Snorri orðar það sjálfur, segir hann: „Ég hugsa það þannig. Ég er ekkert með þetta skrifað á blað sem ég sendi þeim, eitthvert regluverk frá mér hvernig menn eiga að haga sér í landsliðsverkefni. Enda hef ég ekki þurft að taka á svona hlutum,“ „Mín upplifun af þessum drengjum er bara þeir eru gríðarlega fagmannlegir og miklir atvinnumenn og við höfum ekki lent í þessu, að mér vitandi hingað til, þannig að ég er ekkert að fara út úr þessu, er ég ekki að fara að senda þeim einhverja reglubók. Ég treysti þeim og þangað til annað kemur í ljós þá er það bara þannig.“ Ummæli Snorra má sjá í spilaranum.
Landslið karla í fótbolta Landslið karla í handbolta KSÍ HSÍ Fótbolti Handbolti Mest lesið Sjáðu þegar allt sauð upp úr í Kópavogi og glæsimark Sveins Íslenski boltinn Ólafur Ingi: „Mér skilst að hann hafi bara kýlt hann“ Íslenski boltinn Finnur til með Arnari Handbolti Elísabet tjáir sig: Grátlega nálægt draumnum í þrígang Fótbolti Íhugaði að hætta: „Ekki stóra markmiðið heldur hvað maður lærir á leiðinni“ Sport Landsliðskonan ólétt og leggur skóna á hilluna Íslenski boltinn Gætu orðið meistarar eftir vinnu á mánudaginn Íslenski boltinn Algjört bíó í Eyjum: Ótrúlegt klúður og tvö gul og rautt á sömu sekúndu Íslenski boltinn Uppgjörið: ÍBV - FH 3-1 | Tíu Eyjamenn náðu fyrsta sigri í þrjá mánuði Íslenski boltinn „Margt sem við þurfum að laga“ Körfubolti Fleiri fréttir Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Sjá meira