Elísabet tjáir sig: Grátlega nálægt draumnum í þrígang Sindri Sverrisson skrifar 17. október 2026 08:02 Draumurinn um HM í Brasilíu er úti hjá Elísabetu og belgíska liðinu. Getty/Mateusz Slodkowski Framtíð Elísabetar Gunnarsdóttur sem þjálfari belgíska kvennalandsliðsins í fótbolta er í lausu lofti eftir tap í vítaspyrnukeppni gegn Pólverjum í undanúrslitum HM-umspilsins. Hún hefur enn óbilandi trú á belgíska liðinu þrátt fyrir „úrslit sem kramið hafa hjartað“.
Elísabet tók við Belgíu í byrjun árs 2025 og er með samning sem gilda átti fram yfir HM á næsta ári. Nú er HM-draumurinn úti og forráðamenn belgíska sambandsins, undir forystu Simon Mignolet, vega nú og meta hvort Elísabetu verði boðið að halda áfram þó að markmiðið um HM hafi ekki náðst. Elísabet stýrði Belgum á EM í Sviss í fyrra þar sem liðið vann sigur gegn Portúgal en féll út í riðlakeppninni. Liðið féll svo úr A-deild Þjóðadeildarinnar eftir afar naumt tap í umspili gegn Írlandi, endaði fyrir neðan Skotland í undankeppni HM í sumar, á einu marki, og tapaði svo umspilinu gegn Póllandi eftir framlengingu og vítaspyrnukeppni. „Fyrir næstum ári, á Írlandi í október síðastliðnum, hófum við vegferð sem skilaði okkur tíu leikjum án taps. Vegferð sem byggðist á þrotlausri vinnu, trú og samheldni. Samt höfum við þrisvar sinnum á þessu tímabili verið sárgrætilega nálægt því að ná því sem okkur dreymdi um. Þrisvar sinnum hefur minnsti mögulegi munur, markatala og vítaspyrnukeppni, staðið á milli okkar og þess árangurs sem við unnum svo hörðum höndum að. Vonbrigðin eru mikil,“ skrifar Elísabet í pistli á Instagram. View this post on Instagram A post shared by Elisabet Gunnarsdóttir (@elisabetgunnarz) Ekki er annað að heyra en að hún hafi mikinn áhuga á að þjálfa Belgíu áfram og koma liðinu ofar á blað meðal bestu þjóða Evrópu. Hún hefur auk þess fengið mikinn stuðning frá reynsluboltum belgíska liðsins, þeim Tessu Wullaert og Janice Cayman. „Á morgun rís sólin á ný“ „Þegar maður gefur svona mikið, trúir svona innilega og kemst svona nálægt er erfitt að finna réttu orðin. Því þessi hópur átti meira skilið. Við vildum öll meira. Til leikmanna minna og starfsfólks: Takk fyrir. Takk fyrir skuldbindinguna, traustið og fyrst og fremst fyrir þá tryggð sem við höldum áfram að sýna hvert öðru, óháð úrslitum. Fótboltinn mun alltaf bjóða upp á hæðir og lægðir, en það er á erfiðustu stundunum sem raunverulegur styrkur liðs kemur í ljós. Þau traustu bönd sem við höfum myndað skipta meira máli en orð fá nokkurn tíma lýst. Og þau verða lykillinn að endurkomu „Red Flames“-liðsins okkar! Þrátt fyrir úrslit sem kremja hjartað er trú mín á þessu liði mjög sterk! Hæfileikarnir eru miklir. Karakterinn er magnaður. Og möguleikar þessa hóps eru einstakir. Og þetta mun lyfta belgískri kvennaknattspyrnu í enn meiri hæðir. Í dag finnum við fyrir vonbrigðunum. Á morgun rís sólin á ný,“ skrifar Elísabet.
Fótbolti HM 2027 í Brasilíu Mest lesið Sjáðu þegar allt sauð upp úr í Kópavogi og glæsimark Sveins Íslenski boltinn Ólafur Ingi: „Mér skilst að hann hafi bara kýlt hann“ Íslenski boltinn Elísabet tjáir sig: Grátlega nálægt draumnum í þrígang Fótbolti Gætu orðið meistarar eftir vinnu á mánudaginn Íslenski boltinn Landsliðskonan ólétt og leggur skóna á hilluna Íslenski boltinn Algjört bíó í Eyjum: Ótrúlegt klúður og tvö gul og rautt á sömu sekúndu Íslenski boltinn Uppgjörið: ÍBV - FH 3-1 | Tíu Eyjamenn náðu fyrsta sigri í þrjá mánuði Íslenski boltinn „Margt sem við þurfum að laga“ Körfubolti KA-menn brotlentu í Garðabæ Handbolti „Mikil framför en því miður ekki nóg“ Körfubolti Fleiri fréttir Elísabet tjáir sig: Grátlega nálægt draumnum í þrígang Gætu orðið meistarar eftir vinnu á mánudaginn Ólafur Ingi: „Mér skilst að hann hafi bara kýlt hann“ Sjáðu þegar allt sauð upp úr í Kópavogi og glæsimark Sveins Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - ÍBV 2-1| Grindavík/Njarðvík vann síðasta heimaleikinn á tímabilinu Uppgjörið: ÍBV - FH 3-1 | Tíu Eyjamenn náðu fyrsta sigri í þrjá mánuði Uppgjörið: Breiðablik - Víkingur 1-2 | Fjögur rauð í miklum hitaleik Algjört bíó í Eyjum: Ótrúlegt klúður og tvö gul og rautt á sömu sekúndu Landsliðskonan ólétt og leggur skóna á hilluna Segir að gagnrýni Martinez sé í baksýnisspeglinum Syndaaflausn Infantino: „Páfinn yrði himinlifandi“ Aftur vandræðagangur hjá Manchester United fyrir útileik gegn Leeds Orri hélt liðsfund án aðkomu Arnars Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Bjarni Jó hættur Kjartan samþykkti erfiða áskorun: „Á dauða mínum átti ég von“ Skömmin sé nægileg refsing: „Það sem gerðist þetta kvöld er óásættanlegt“ Ingibjörg orðlaus: „Hversu heppinn er þessi litli strákur?“ Infantino baðst afsökunar en neitaði að svara fjölmiðlum Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Fallegt Evrópukvöld fyrir Íslendingana Bournemouth nýtur lífsins á nýjum slóðum en Willum spilaði lítið Slátrarinn baðst afsökunar en fær sekt Mikael meiddur af velli í Belgíu Orri nálægt sigurmarki á 90 sekúndum Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Arnar um agabrot landsliðsmanna: „Mikil vonbrigði fyrir mig persónulega“ Vill draga Ronaldo aftur inn í landsliðið Hegðun erkifjenda þeirra ekki komið á óvart gegn Bayern München Sjá meira