Bíó og sjónvarp

Balti og Sunn­eva brugðu sér af bæ

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Sunneva Ása og Baltasar Kormákur glæsileg.
Sunneva Ása og Baltasar Kormákur glæsileg. Sunna Ben

Fjölmenni var á frumsýningu rúmensk-norsku kvikmyndarinnar Fjarðar í Bíó Paradís á fimmtudagskvöldið. Kvikmyndagerðarfólk, blaðamenn og menningarsprautur horfðu þar á þetta æsispennandi fjölskyldudrama sem vann Gullpálmann á Cannes fyrr í ár.

Fjörður (Fjord) er nýjasta mynd rúmenska leikstjórans Cristians Mungiu og segir frá rúmensk-norskri fjölskyldu sem flytur til þorps við norskan fjörð í leit að nýju upphafi en lenda í rannsókn barnaverndaryfirvalda þegar dóttir þeirra mætir marin í skólann.

Fullt var út að dyrum á frumsýningunni, löng röð í sjoppuna og margir góðir gestir. Menningarparið Baltasar Kormákur og Sunneva Ása Weisshappel, sem eignuðust nýverið aðra dóttur sína saman, létu sig ekki vanta og þá voru kempurnar Gunnar Smári Egilsson og Friðrik Þór Friðriksson líka á staðnum.

Ljósmyndarinn Sunna Ben fangaði stemminguna á mynd líkt og sjá má hér að neðan.

Löng biðröð var í sjoppuna.Sunna Ben

Friðrik Þór og Gunnar Smári í stuði.

Tveir ferskir.Sunna Ben

Aðalheiður Sveinsdóttir og Hulda Gunnarsdóttir, upplýsingafulltrúi Reykjavíkuborgar,.Sunna Ben

Nína Dögg Filippusdóttir með tvö kók!Sunna Ben

Krummi í Mínus og kvikmyndagerðarkonan Tania Zarak Quitana.Sunna Ben

Haraldur Þorleifsson með börnum sínum.Sunna Ben

Rúvararnir Siggi Gunnars og Hrafnhildur Halldórsdóttir.Sunna Ben

Sigríður Pétursdóttir og Aníta Briem.Sunna Ben

Hrönn Sveinsdóttir, Natalie Gunnarsdóttir og Gagga Jónsdóttir.Sunna Ben





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.