Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir skrifar 24. október 2026 10:02 Í ljósi umræðunnar í samfélaginu undanfarið er erfitt að horfa fram hjá þeim áskorunum sem íslenskt skólakerfi stendur frammi fyrir. Niðurstöður PISA hafa vakið áhyggjur, læsi drengja er meira áhyggjuefni og umræðan verður sífellt háværari varðandi hegðunarvanda, skólaforðun og líðan barna og ungmenna. Á sama tíma bíða fjölmörg börn eftir greiningum og viðeigandi úrræðum sem gætu skipt sköpum fyrir þeirra skólagöngu sem og framtíð. Við þessar kringumstæður hlýtur maður að spyrja sig: Af hverju virðist svo mikill kraftur fara í að endurskoða einkunnagjöf þegar svo mörg önnur og brýnni verkefni bíða úrlausnar? Ég vil taka það fram að það er ekki þar með sagt að umræðan um einkunnir sé óþörf eða að breytingar á námsmati geti ekki verið til góðs. En er það raunverulega rétt forgangsröðun á verkefnum þegar börn bíða árum saman eftir greiningum og stuðningi? Ég tel eðlilegt að spyrja hvort áherslur stjórnvalda séu í réttri röð. Sem dæmi má nefna að 2.705 börn bíða eftir greiningu hjá Geðheilsumiðstöð barna og hafa 2.591 barna beðið lengur en í þrjá mánuði. Meðalbiðtími barna eftir einhverfugreiningu er kominn í þrjú ár. Það bíða 319 börn í grunn- og framhaldsskólum eftir þvegfaglegri greiningu á vegum Ráðgjafar- og greiningarmiðstöðvar og er meðalbiðtími 23 mánuðir. Á sama stað bíða 455 börn á leikskólaaldri og er meðalbiðtíminn fyrir þau 33,1 mánuður. Hvað gagn hafa börn og fjölskyldur þeirra af breyttum einkunnakvarða sem ekki fá þann stuðning sem þarf til þess að geta stundað nám, þroskast og liðið vel í skólanum? Hvaða merkingu hafa einkunnir ef barn nær ekki að fóta sig í skólastarfinu vegna erfiðleika sem enginn hefur enn fengið tækifæri til þess að meta með viðeigandi hætti? Ef metnaður menntamálaráðherra væri jafn mikill fyrir því að stytta biðlista, bæta fjármagni inn í skóla og styðja við kennara og annað starfsfólk eins og að breyta einkunnagjöf, þá værum við á jákvæðri leið. Þess í stað horfum við upp á að biðlistar lengjast, erfiðleikarnir verða meiri, sjálfstraust nemenda sem glíma við erfiðleika dregst niður sem sjálfkrafa getur litað skólagönguna, og það ekki á jákvæðan hátt. Fyrir suma nemendur getur skólaforðun orðið að veruleika og þá ekki endilega vegna skorts á að vilja læra, heldur vegna þess að þau fá ekki þann stuðning sem þau þurfa til að takast á við skóladaginn. Á sama tíma þurfa kennarar og annað starfsfólk skóla að takast á við sífellt flóknari aðstæður, oftar en ekki án þess að hafa nægilegt svigrúm, mannafla eða sérfræðiþjónustu til að mæta þörfum allra nemenda. Þetta er staða sem ekki er hægt að sætta sig við og sannarlega er ekki sanngjörn, hvorki gagnvart nemendum eða starfsfólki. Það er ekki hægt að ætlast til þess að skólarnir leysi allan vandann einir og sér. Að sama skapi er ekki heldur hægt að ætlast til þess að kennarar geti veitt hverju og einu barni þann stuðning sem það þarf þegar kerfið tryggir ekki nauðsynleg úrræði og allra síst er hægt að gera ráð fyrir að líðan barna og starfsfólks batni að sjálfu sér á meðan biðlistar halda áfram að lengjast og álagið eykst. Það er erfitt að hlusta og horfa upp á að umræðan í menntakerfinu virðist fyrst og fremst snúast um það hvernig eigi að gefa einkunnir í stað þess að beita sjónum að því sem skiptir mestu máli: að öll börn fái raunverulega tækifæri til að læra, dafna og líða vel í skólanum. Hvað segir það um forgangsröðun stjórnvalda ef það er hægt að finna tíma og fjármagn til að endurskoða tölustafi og bókstafi á einkunnarblöðum en það er ekki hægt að tryggja það að börn fái nauðsynlegan stuðning eða inngrip á viðunandi tíma? Menntakerfi á ekki aðeins að meta árangur barna. Það á að skapa þeim aðstæður til að ná árangri. Það á að grípa þau sem eiga erfitt, styðja þau sem þurfa á aðstoð að halda og tryggja að engin þurfi að berjast einn við kerfi sem á að vera til staðar. Ef við viljum bæta árangur íslenskra nemenda þurfum við að horfa lengra en á einkunnir. Nauðsynlegt er að horfa á barnið á bak við einkunnina, kennarann sem reynir að mæta þörfum þess og kerfið sem annaðhvort styður nemendur og kennara eða bregst þeim. Það ætti ekki að þurfa að vera draumsýn að stjórnvöld setji líðan barna, aðgengi að greiningum og viðeigandi stuðning í forgang. Það ætti að vera sjálfsagður grundvöllur menntastefnu. Spurningin er því ekki aðeins sú hvernig við eigum að gefa einkunnir, spurningin er hvort við séum tilbúin að forgangsraða því sem raunverulega skiptir máli. Nemendur þurfa ekki fyrst og fremst nýjan einkunnarkvarða, þau þurfa að fá þá hjálp sem það á rétt á, þegar þau þurfa á henni að halda, ekki mörgum mánuðum eða árum seinna. Höfundur er sérkennari. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Skoðun Skoðun Loftbrúin er fjárfesting í landsbyggðunum Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir skrifar Skoðun Bruninn á Stuðlum og ábyrgð ríkisins Salvör Nordal skrifar Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki góðvild — þau eru góð stefna Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir skrifar Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Sjá meira
Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar
Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar