„Hann brást hrapallega sem manneskja“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. október 2026 23:16 Neymar fékk rautt spjald fyrir að hylja munninn þegar hann talaði við mótherja. Getty/Marco Miatelo Brasilíski knattspyrnumaðurinn Neymar fékk beint rautt spjald í brasilísku deildinni á laugardagskvöld.
Stjarna Santos huldi munninn með hendinni þegar hann reifst við Rodrigo Nestor, leikmann Bahia, í 1-0 sigri liðs síns í brasilísku deildinni. Nestor vakti athygli dómarans á því sem gaf Neymar rautt spjald. Rauð spjöld fyrir leikmenn sem hylja munninn á meðan þeir tala við mótherja voru samþykkt fyrir HM eftir að Vinícius, leikmaður Real Madrid, sagðist hafa orðið fyrir kynþáttaníði af hálfu Gianluca Prestianni, leikmanns Benfica, á síðasta tímabili í Meistaradeildinni. Prestianni var síðar dæmdur í sex leikja bann. Vorum bara að spjalla „Við vorum bara að spjalla á miðjum vellinum, grínast og hlæja saman,“ sagði Neymar. NEYMAR SEES RED AFTER HEATED EXCHANGE WITH RODRIGO NESTOR! 🟥🔥 Neymar’s night against Bahia ended in controversy after two confrontations with Rodrigo Nestor. #Neymar #SantosFC #Football #Brazilian #Sports #Viral https://t.co/7EKYkOe0YK— SPORTDAILYTV (@sdtvclips) October 25, 2026 „Svo fór ég að tala við Nestor, það var rangt af mér að setja höndina fyrir munninn, vissulega, en ég var ekki einu sinni búinn að segja neitt þegar hann rétti upp höndina. Þetta er eitt skítlegasta bragðið í fótboltanum! En ég næ mér niðri á Nestor á endanum,“ sagði Neymar. Nestor hafði líka sitt að segja: „Þetta var bara venjulegt brot í leiknum. Ég rétti fram höndina til að taka í höndina á honum og hann kastaði boltanum í mig. Eftir það sagði hann ýmislegt við mig,“ sagði Nestor. Hann veit hvað hann sagði við mig „Hann veit hvað hann sagði við mig. Það var mikil vanvirðing – bæði gagnvart mér og gagnvart treyju Bahia. Þótt hann sé kannski átrúnaðargoð allra sem leikmaður brást hann í dag – hann brást hrapallega sem manneskja – vegna þess hvernig hann talaði. Maður á ekki að gera svona lagað,“ sagði Nestor. „Ég lærði mikið af móður minni og föður og er þakklátur fyrir uppeldið sem þau veittu mér. Ég myndi aldrei gera neitt þessu líkt,“ sagði Nestor. Síðar skrifaði Neymar á samfélagsmiðlum: „Ég er ekki vanur að tala mikið um það sem gerist í leikjum – sérstaklega þegar þetta eru bara orðaskipti milli leikmanna. Ég var líka rekinn af velli og ég velti mér venjulega ekki upp úr svona hlutum, en í dag held ég að þetta hafi verið mjög alvarlegt. Þetta fór út fyrir það sem eðlilegt er, skiljiði?“ skrifaði Neymar. Ég blóta fólki, ég berst, ég rífst „Ég ver þetta merki – ég myndi gefa líf mitt fyrir það. Ég blóta fólki, ég berst, ég rífst – það er allt í lagi; það verður eftir á vellinum. Þetta er fótbolti – svona er þetta bara. Og vissulega þarf hann líka að verja sitt lið,“ skrifaði Neymar. 🚨| Moment Neymar Jr picked up a red card for covering his mouth. 🟥👀 https://t.co/9yxmVwiE2Q— FÚTBOL HUB (@FutbolHub_) October 25, 2026 Neymar sakaði Nestor um að setja á svið leikþátt og varaði við því að reglan um að reka leikmenn af velli fyrir að hylja munninn gæti ýtt undir „undirferli“ leikmanna. Það sem hann gerði er mjög alvarlegt „Það sem Nestor gerði mér í dag er að mínu mati gríðarlega alvarlegt. Það er alvarlegt vegna þess að það eru lög gegn kynþáttafordómum og hann reyndi að ná forskoti í leiknum með því að halda því fram að ég hefði sagt eitthvað – þótt ég hafi haft höndina fyrir munninum og ekki sagt orð við hann. Auðvitað vorum við að skiptast á móðgunum – að skjóta hvor á annan – og það er í lagi; það er hluti af leiknum. En það sem hann gerði er mjög alvarlegt,“ skrifaði Neymar. „Við vorum bara að fíflast – ég var að grínast við miðverðina tvo – og hann notaði það til að reyna að ná forskoti. Það er mjög alvarlegt. Það eru lög gegn kynþáttafordómum – hvernig gat hann gert eitthvað svona? Þetta er súrrealískt. Ég er mjög sorgmæddur yfir því sem gerðist, því hann var undirförull,“ skrifaði Neymar.
Brasilía Mest lesið „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Fótbolti Komu lykilleikmanni fljótt til varnar Körfubolti Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Körfubolti Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Enski boltinn Lárus Orri hættur með ÍA og Heimir sagður á leiðinni Íslenski boltinn Uppgjörið: KR-Breiðablik 8-3 | Ellefu mörk og markamet í Vesturbænum Íslenski boltinn Uppgjörið: KA-ÍBV 5-1 | KA fallið þrátt fyrir stórsigur Íslenski boltinn „Engin krafa frá stjórn um að ná sæti í Evrópukeppni“ Íslenski boltinn Uppgjörið: FH-Þór 1-2 | Þórsarar fögnuðu innilega eftir dramatískan sigur í Laugardalnum Íslenski boltinn „Óvíst hvar Stefan Ljubicic mun spila“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Siggi Raggi getur gert NSÍ að Færeyjameisturum í dag Infantino segist njóta gríðarlegs stuðnings Vafi um réttan markafjölda Ronaldo eftir umdeilt mark „Við munum reyna að vernda hann fyrir sjálfum sér“ Strákarnir hans Freys klífa upp töfluna Markahæsta umferð sögunnar De Zerbi kátur eftir leik: „Nú er þetta fullmótað lið“ Sjá meira
Uppgjörið: FH-Þór 1-2 | Þórsarar fögnuðu innilega eftir dramatískan sigur í Laugardalnum Íslenski boltinn
Uppgjörið: FH-Þór 1-2 | Þórsarar fögnuðu innilega eftir dramatískan sigur í Laugardalnum Íslenski boltinn