Sérstaða Íslands: forskot eða fjötur um fót? Hugrún Elvarsdóttir skrifar 27. október 2026 08:48 Ísland býr yfir aðstæðum sem eru að mörgu leyti ólíkar þeim sem þekkjast annars staðar í Evrópu. Við höfum byggt upp öflugt atvinnulíf á grunni endurnýjanlegrar orku, náttúruauðlinda og hugvits. Á sama tíma fylgja smæð hagkerfisins, landfræðilegri legu og fjarlægð frá mörkuðum áskoranir sem hafa veruleg áhrif á rekstrarskilyrði íslenskra fyrirtækja. Sérstaða Íslands getur því bæði verið samkeppnisforskot og fjötur um fót. Það ræðst ekki síst af því hvernig okkur tekst að nýta tækifærin sem hún skapar og tryggja að tekið sé tillit til íslenskra aðstæðna þegar ákvarðanir eru teknar sem hafa áhrif á atvinnulífið. Samkeppnisforskot sem þarf að varðveita Aðgangur að endurnýjanlegri orku hefur gert okkur kleift að byggja upp öflugan orkusækinn iðnað, þar á meðal ál- og kísilframleiðslu. Endurnýjanleg raforka stuðlar að lægra kolefnisspori framleiðslunnar og skapar íslenskum fyrirtækjum mikilvægt samkeppnisforskot. Loftslagsbreytingar eru hnattrænt viðfangsefni. Það skiptir ekki aðeins máli hversu mikið við drögum úr losun hér á landi, heldur einnig hvaða áhrif ákvarðanir okkar hafa á losun á heimsvísu. Ef framleiðsla flyst frá Íslandi til landa þar sem raforka er að stórum hluta framleidd með jarðefnaeldsneyti getur losun á Íslandi dregist saman án þess að losun á heimsvísu minnki. Slíkt getur jafnvel leitt til aukinnar heildarlosunar. Samkeppnisforskotið er þó ekki sjálfgefið. Til að varðveita það þarf bæði að tryggja samkeppnishæft starfsumhverfi hér á landi og gæta þess að evrópskt regluverk taki mið af þeim aðstæðum sem íslensk fyrirtæki starfa við. Sama regluverk, ólík áhrif Ísland er hluti af innri markaði Evrópu og íslensk fyrirtæki starfa að stórum hluta eftir sameiginlegu evrópsku regluverki. Það er mikilvæg forsenda alþjóðaviðskipta og samkeppnishæfni okkar. En við mótun regluverks þarf jafnframt að horfa til þeirra ólíku aðstæðna sem fyrirtæki starfa við. Íslenska raforkukerfið er til að mynda ótengt raforkukerfum annarra Evrópuríkja. Þá eru íslensk fyrirtæki háð flug- og sjósamgöngum í millilandaflutningum, ólíkt fyrirtækjum á meginlandi Evrópu sem hafa einnig aðgang að vega- og járnbrautarsamgöngum. Sama regluverk getur því haft ólík áhrif á íslensk fyrirtæki og erlenda samkeppnisaðila þeirra, meðal annars í orkuframleiðslu, iðnaði og útflutningsgreinum. Þetta endurspeglast í nýrri könnun sem Gallup framkvæmdi meðal félagsmanna Samtaka atvinnulífsins (SA) og aðildarsamtaka í aðdraganda Umhverfisdags atvinnulífsins. Þar töldu 78% þeirra sem tóku afstöðu að lítið tillit væri tekið til sérstöðu Íslands í alþjóðlegu og evrópsku loftslags- og umhverfisregluverki. Mikilvægt er að loftslagsregluverk skapi ekki aðeins hvata til að draga úr losun heldur styðji einnig við raunhæfar lausnir. SA og aðildarsamtök hafa um árabil bent á að tekjur ríkisins af uppboði losunarheimilda í viðskiptakerfi ESB (ETS) ættu að nýtast til að hraða orkuskiptum og styðja við þróun og uppbyggingu umhverfisvænna lausna. Jafnframt þarf regluverkið að taka mið af íslenskum aðstæðum og tryggja að kröfur um samdrátt í losun haldist í hendur við raunhæfa möguleika fyrirtækja til að uppfylla þær. Markmiðið er ekki vægari kröfur fyrir íslensk fyrirtæki, heldur jöfn samkeppnisskilyrði. Loftslagsaðgerðir þurfa að skila raunverulegum árangri án þess að skapa óþarfa samkeppnishalla. Frá viðbrögðum til áhrifa Evrópskt regluverk hefur sífellt víðtækari áhrif á íslenskt atvinnulíf, hvort sem um ræðir orkumál, iðnaðarframleiðslu, flutninga eða kröfur til vöru og umbúða. Á sama tíma leggur Evrópusambandið aukna áherslu á að styrkja eigin samkeppnishæfni og efla evrópskan iðnað. Þessi þróun felur bæði í sér tækifæri og áskoranir fyrir Ísland. Við þurfum að færa áhersluna frá því að bregðast við regluverki eftir að ákvarðanir hafa verið teknar yfir í að hafa áhrif á mótun þess frá upphafi. Það kallar á öflugri og framsýnni hagsmunagæslu, áreiðanleg gögn og markvissa samvinnu atvinnulífs og stjórnvalda. Hvernig tryggjum við að íslensk fyrirtæki geti nýtt þau tækifæri sem sérstaða landsins skapar? Hvernig komum við í veg fyrir að sameiginlegt regluverk leiði til ójafnra samkeppnisskilyrða? Og hvernig getum við komið íslenskum sjónarmiðum fyrr og betur á framfæri? Þessar spurningar verða í brennidepli á Umhverfisdegi atvinnulífsins sem haldinn er í dag á Hótel Reykjavík Grand undir yfirskriftinni Sérstaða Íslands. Sérstaðan á að vera okkur styrkur en ekki fjötur um fót. Með því að nýta þau tækifæri sem hún skapar og standa vörð um jafna samkeppnisstöðu íslenskra fyrirtækja getum við stuðlað að því að loftslagsárangur og samkeppnishæfni fari saman. Höfundur er verkefnastjóri á málefnasviði hjá Samtökum atvinnulífsins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Umhverfismál Mest lesið Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun Sérstaða Íslands: forskot eða fjötur um fót? Hugrún Elvarsdóttir Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason Skoðun Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty Skoðun Hver á takkana? Þegar aðrir snerta gömul sálræn sár Sigríður Björk Þormar Skoðun Kvittanirnar segja meira en pólitískar fyrirsagnir Ragnar Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar Skoðun Þingmaðurinn sem ruglaði saman gagnrýni og andstöðu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Að segja satt frá og gera það strax! Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar Skoðun Takk fyrir, ferðamaður! Björgvin Jóhannesson skrifar Skoðun Sérstaða Íslands: forskot eða fjötur um fót? Hugrún Elvarsdóttir skrifar Skoðun Í framlínu náttúruverndar í 50 ár Magnús Hallur Jónsson skrifar Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald skrifar Skoðun Viðreisn einfaldar regluverk og minnkar báknið Hanna Katrín Friðriksson skrifar Skoðun Aðgerðaleysi fjármálaráðherra kemur erlendum tæknirisum til góða Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun Kvittanirnar segja meira en pólitískar fyrirsagnir Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason skrifar Skoðun Hefði Evrópa getað keypt sigur á Rússum fyrir tveimur árum?! Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Það er dýrt að hafa lítið val Svanfríður Bergvinsdóttir,Andri Ólafsson skrifar Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar Skoðun Nýr einkunnakvarði er aðeins hluti af sögunni Margrét Lilja Pálsdóttir skrifar Skoðun Skilaboð til landsbyggðarinnar Trausti Hjaltason skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar vernd barns týnist milli kerfa? Inga Henriksen skrifar Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Öryggi þjóðarinnar verður ekki tryggt í Excel-skjali Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Þegar stóru ríkin verða veikasti hlekkurinn Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Viðreisn – góð stefna dugar ekki ein og sér Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson skrifar Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Hallgrímskirkja heillar Sigurður Árni Þórðarson skrifar Skoðun Sameiginleg þjónusta þarf að vera aðgengileg öllum Haraldur Líndal Haraldsson skrifar Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar Skoðun Þegar báðir græða Arnar Sigurðsson skrifar Sjá meira
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar
Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar
Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar
Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald skrifar
Skoðun Aðgerðaleysi fjármálaráðherra kemur erlendum tæknirisum til góða Guðmundur Halldór Björnsson skrifar
Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar
Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun