Ríkið þrengir að frelsi og samkeppni á fjölmiðlamarkaði Gísli Stefánsson skrifar 28. október 2026 11:00 Tjáningarfrelsi fylgir ábyrgð en hlutverk ríkisins er ekki að stjórna því hvernig fólk tjáir sig. Einstaklingurinn á að njóta frelsisins en um leið að bera ábyrgð á eigin orðum. Því er áhyggjuefni þegar ríkið teygir regluverk sitt yfir nýja miðla, beitir sektum og rekur á sama tíma fjölmiðlafyrirtæki sem nýtur opinbers fjármagns og keppir við einkaaðila um auglýsingatekjur. Þetta er ekki heilbrigt umhverfi fyrir frjálsa og fjölbreytta fjölmiðlun sem reiða sig á tjáningarfrelsið. Hlaðvörpin tekin sérstaklega fyrir Hlaðvörp hafa á undanförnum árum skapað nýjan vettvang fyrir umræðu og afþreyingu. Einstaklingar hafa með eigin vinnu og útsjónarsemi byggt upp vinsæla miðla, oft með litlum tilkostnaði. Flestir gera þetta af áhuga en fæstir geta lifað af starfseminni. Fjölmiðlanefnd hefur hins vegar gert kröfu um að tiltekin hlaðvörp skrái sig sem fjölmiðla. Dæmi eru um að hlaðvarpsstjórnendur sem eru ekki sammála kröfu nefndarinnar hafi fengið sektir upp á hálfa milljón króna fyrir að láta sér ekki segjast. Sektirnar komu meira að segja þrátt fyrir að stjórnvöld hefðu þegar boðað breytingar á lögunum með það að markmiði að hefðbundin hlaðvörp yrðu almennt ekki skráningarskyld. Er virkilega nauðsynlegt að beita einstaklinga hálfrar milljónar króna sektum fyrir að skrá ekki hlaðvarp sem fjölmiðil? Ríkið veikir samkeppni og styrkir svo keppinautana Á sama tíma og ríkið leggur kvaðir á sjálfstæða miðlun rekur það Ríkisútvarpið fyrir milljarða króna árlega. Tekjur RÚV voru tæplega 9,4 milljarðar króna árið 2025 og þar af komu um 2,6 milljarðar frá auglýsingum og kostun. Á sama tíma hefur Sýn fundið sig knúið til að hætta kvöldfréttatíma sínum. Samkeppniseftirlitið benti þegar árið 2008 á alvarlega samkeppnislega mismunun vegna þátttöku RÚV á auglýsingamarkaði samhliða opinberri fjármögnun. Vandinn hefur því legið ljós fyrir í tæpa tvo áratugi og ekki veit ég til þess að samkeppniseftirlitið hafi skoðað þessi mál eitthvað frekar. Í stað þess að taka á vandanum með afgerandi hætti hefur ríkið komið á fót styrkjakerfi fyrir einkarekna fjölmiðla. Ríkið keppir þannig við einkaaðila um auglýsingatekjurnar en greiðir þeim síðan styrki úr ríkissjóði. Það er mótsögn sem erfitt er að réttlæta. Nú hafa verið kynnt áform um takmörkun auglýsingatekna RÚV. Þar hefur verið lagt til að setja þak á auglýsingatekjur RÚV að upphæð 2,8 milljarðar. Þess má geta að RÚV hefur aldrei náð þeirri upphæð í auglýsingatekjur. Þarf þetta að vera svona? Ég hef áður bent á að tekjur RÚV eru af sambærilegri stærðargráðu og heildartekjur Vestmannaeyjabæjar. Annars vegar er um að ræða sveitarfélag sem heldur úti umfangsmikilli grunnþjónustu og innviðum og byggir tekjur sínar á öflugum atvinnuvegum og hins vegar opinbert fjölmiðlafyrirtæki. Samanburðurinn segir ekki alla söguna en sýnir vel hversu stór reksturinn er orðinn. RÚV hefur mikilvægu almannaþjónustuhlutverki að gegna. Það þýðir hins vegar ekki að ríkið þurfi að reka jafn umfangsmikið fjölmiðlafyrirtæki og raun ber vitni eða keppa um auglýsingatekjur á sama markaði og einkaaðilar. Ég tel að draga eigi RÚV út af almennum auglýsingamarkaði, afmarka betur hlutverk þess og einfalda regluverk sjálfstæðrar miðlunar. Ríkið á að standa vörð um tjáningarfrelsi og fjölbreytni í fjölmiðlun, ekki þrengja að þeim sem reyna að fóta sig á markaðnum. Höfundur er varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Gísli Stefánsson Mest lesið Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson Skoðun Takk fyrir, ferðamaður! Björgvin Jóhannesson Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson Skoðun Viðreisn einfaldar regluverk og minnkar báknið Hanna Katrín Friðriksson Skoðun Verum duglegri að sjá hvert annað Valdimar Víðisson Skoðun Í framlínu náttúruverndar í 50 ár Magnús Hallur Jónsson Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason Skoðun Skoðun Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason skrifar Skoðun Hvernig tala ég við barnið mitt um netið? Skúli Bragi Geirdal skrifar Skoðun Ríkið þrengir að frelsi og samkeppni á fjölmiðlamarkaði Gísli Stefánsson skrifar Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Öll börn eru hluti af liðinu Thelma Dögg Grétarsdóttir skrifar Skoðun Heljarhestar um veturnætur Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson skrifar Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson skrifar Skoðun Verum duglegri að sjá hvert annað Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Málshraðasögur Dvalarleyfi Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir skrifar Skoðun Hugsjónasvelta Reykjavík Líf Magneudóttir ,Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Málverkið og mælikvarðinn - Um litadýrð, líffræði og fegurð Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Um Stafræna heilsu: Karp er best með forsjá Alma D. Möller skrifar Skoðun Piparsveinar fagna nýútkominni skýrslu um strandveiðar Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Loftbrúin fjarlægist skosku leiðina Berglind Harpa Svavarsdóttir skrifar Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar Skoðun Þingmaðurinn sem ruglaði saman gagnrýni og andstöðu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Að segja satt frá og gera það strax! Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar Skoðun Takk fyrir, ferðamaður! Björgvin Jóhannesson skrifar Skoðun Sérstaða Íslands: forskot eða fjötur um fót? Hugrún Elvarsdóttir skrifar Skoðun Í framlínu náttúruverndar í 50 ár Magnús Hallur Jónsson skrifar Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald skrifar Skoðun Viðreisn einfaldar regluverk og minnkar báknið Hanna Katrín Friðriksson skrifar Skoðun Aðgerðaleysi fjármálaráðherra kemur erlendum tæknirisum til góða Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Sjá meira
Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun
Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar
Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar
Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar
Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar
Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar
Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald skrifar
Skoðun Aðgerðaleysi fjármálaráðherra kemur erlendum tæknirisum til góða Guðmundur Halldór Björnsson skrifar
Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun