Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi Agnar Már Másson skrifar 28. október 2026 17:58 Á hjúkrunarheimilinu Grenilundi í Grenivík búa að jafnaði um tíu manns. Grýtubakkahreppur Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra hefur ákært konu sem vann á hjúkrunarheimilinu Grenilundi fyrir fjársvik og brot í opinberu starfi þar sem hún er grunuð um að svíkja hundruð þúsunda króna í reiðufé af korti vistmanns. Konan sagði upp störfum þegar upp komst um málið. Á tímabilinu 6. maí til 21. september 2024 sveik starfsmaðurinn, í blekkingarskyni og án heimildar, út reiðufé að verðmæti 780 þúsund króna, að því er fram kemur í ákæru sem Vísir hefur undir höndunum. Að því er fram kom í frétt Rúv um málið fyrr í mánuðinum er um að ræða konu á þrítugsaldri, en hún er ekki nafngreind í ákærunni. Grenilundur sambýli aldraðra á Grenivík í sveitarfélaginu Grýtubakkahreppi en í sveitarfélaginu öllu búa um 400 manns. Á sambýlinu búa að jafnaði tíu manns. Málið var þingfest í Héraðsdómi Norðurlands eystra í morgun. Hún mun hafa svikið út féð með því að taka úr hraðbanka af kreditkorti á nafni skjólstæðingsins þar sem hún hafði aðgang að kreditkorti brotaþola og PIN-númeri vegna starfa sinna á hjúkrunarheimilinu, þar sem brotaþoli var vistmaður, samkvæmt ákæru. Hún hafi tekið út fjárhæðina í fimmtán aðskildum úttektum af kortinu yfir fjögurra mánaða skeið. Hver upphæð nam á bilinu 30 til 80 þúsundum króna. Fyrrverandi starfsmaður Grenilundar er grunaður um að svíkja eftirfarandi upphæðir í reiðufé af kreditkorti vistmanns. 06.05.2024: kr. 30.000 07.05.2024: kr. 50.000 10.05.2024: kr. 30.000 17.05.2024: kr. 50.000 24.05.2024: kr. 40.000 10.06.2024: kr. 70.000 05.07.2024: kr. 60.000 10.07.2024: kr. 80.000 15.07.2024: kr. 50.000 19.07.2024: kr. 50.000 06.09.2024: kr. 70.000 07.09.2024: kr. 50.000 11.09.2024: kr. 50.000 17.09.2024: kr. 50.000 21.09.2024: kr. 50.000 Telst þetta varða við 138. gr. og 248. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með síðari breytingum. Grýtubakkahreppur gaf út yfirlýsingu vegna málsins fyrir rúmri viku en þar segir að starfsmaðurinn hafi sagt upp þegar málið kom upp. Af hálfu heimilisins hafi málið strax verið tekið föstum tökum í samráði við lögmann sveitarfélagsins. Viðkomandi heimilismaður og aðstandendur hans hafi jafnframt verið upplýstir um atvik málsins. Verkferlar og öryggisreglur á heimilinu hafi jafnframt verið yfirfarnar til að fyrirbyggja að slíkt atvik komi upp aftur. „Okkur þykir mjög miður að þetta hafi gerst og er aðilum máls vottuð hluttekning. Minnt er á að sýna virðingu og umhyggju í umræðu og umfjöllun,“ sagði í yfirlýsingu sveitarfélagsins. Grýtubakkahreppur Efnahagsbrot Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Innlent Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Innlent Fleiri fréttir „Mér finnst það alvarlegt“ Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Kveiksþætti kippt út tímabundið Söfnuðust saman við sendiráðið og mótmæltu refsiaðgerðum „Séum tilbúin þegar og ef þessi veruleiki birtist okkur“ Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi Engar vísbendingar og lítið af upplýsingum Íslendingar losa meira en Evrópubúar í langflestu Sýna sögulega þingfestingu í öðrum sal Braut kynferðislega á fatlaðri stjúpdóttur sinni Golfarar reynt að borga sig fram fyrir biðlistana Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Breytir verkefnastofu í ráðuneytisstofnun Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Heimsending sögð ógn við lýðheilsu en þjónusta þegar ríkið á í hlut Gefa út öryggisviðvörun vegna mótmæla Grunuðum ofbeldismönnum vísað frá landinu og lestarslys á Spáni Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Löggæsluáætlun næstu fimm ára kynnt á löggæsluþingi Bein útsending: Loftslagsdagurinn 2026 - Loftslagsbreytingar og öryggi Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Sjá meira
Á tímabilinu 6. maí til 21. september 2024 sveik starfsmaðurinn, í blekkingarskyni og án heimildar, út reiðufé að verðmæti 780 þúsund króna, að því er fram kemur í ákæru sem Vísir hefur undir höndunum. Að því er fram kom í frétt Rúv um málið fyrr í mánuðinum er um að ræða konu á þrítugsaldri, en hún er ekki nafngreind í ákærunni. Grenilundur sambýli aldraðra á Grenivík í sveitarfélaginu Grýtubakkahreppi en í sveitarfélaginu öllu búa um 400 manns. Á sambýlinu búa að jafnaði tíu manns. Málið var þingfest í Héraðsdómi Norðurlands eystra í morgun. Hún mun hafa svikið út féð með því að taka úr hraðbanka af kreditkorti á nafni skjólstæðingsins þar sem hún hafði aðgang að kreditkorti brotaþola og PIN-númeri vegna starfa sinna á hjúkrunarheimilinu, þar sem brotaþoli var vistmaður, samkvæmt ákæru. Hún hafi tekið út fjárhæðina í fimmtán aðskildum úttektum af kortinu yfir fjögurra mánaða skeið. Hver upphæð nam á bilinu 30 til 80 þúsundum króna. Fyrrverandi starfsmaður Grenilundar er grunaður um að svíkja eftirfarandi upphæðir í reiðufé af kreditkorti vistmanns. 06.05.2024: kr. 30.000 07.05.2024: kr. 50.000 10.05.2024: kr. 30.000 17.05.2024: kr. 50.000 24.05.2024: kr. 40.000 10.06.2024: kr. 70.000 05.07.2024: kr. 60.000 10.07.2024: kr. 80.000 15.07.2024: kr. 50.000 19.07.2024: kr. 50.000 06.09.2024: kr. 70.000 07.09.2024: kr. 50.000 11.09.2024: kr. 50.000 17.09.2024: kr. 50.000 21.09.2024: kr. 50.000 Telst þetta varða við 138. gr. og 248. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með síðari breytingum. Grýtubakkahreppur gaf út yfirlýsingu vegna málsins fyrir rúmri viku en þar segir að starfsmaðurinn hafi sagt upp þegar málið kom upp. Af hálfu heimilisins hafi málið strax verið tekið föstum tökum í samráði við lögmann sveitarfélagsins. Viðkomandi heimilismaður og aðstandendur hans hafi jafnframt verið upplýstir um atvik málsins. Verkferlar og öryggisreglur á heimilinu hafi jafnframt verið yfirfarnar til að fyrirbyggja að slíkt atvik komi upp aftur. „Okkur þykir mjög miður að þetta hafi gerst og er aðilum máls vottuð hluttekning. Minnt er á að sýna virðingu og umhyggju í umræðu og umfjöllun,“ sagði í yfirlýsingu sveitarfélagsins.
Fyrrverandi starfsmaður Grenilundar er grunaður um að svíkja eftirfarandi upphæðir í reiðufé af kreditkorti vistmanns. 06.05.2024: kr. 30.000 07.05.2024: kr. 50.000 10.05.2024: kr. 30.000 17.05.2024: kr. 50.000 24.05.2024: kr. 40.000 10.06.2024: kr. 70.000 05.07.2024: kr. 60.000 10.07.2024: kr. 80.000 15.07.2024: kr. 50.000 19.07.2024: kr. 50.000 06.09.2024: kr. 70.000 07.09.2024: kr. 50.000 11.09.2024: kr. 50.000 17.09.2024: kr. 50.000 21.09.2024: kr. 50.000
Grýtubakkahreppur Efnahagsbrot Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Innlent Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Innlent Fleiri fréttir „Mér finnst það alvarlegt“ Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Kveiksþætti kippt út tímabundið Söfnuðust saman við sendiráðið og mótmæltu refsiaðgerðum „Séum tilbúin þegar og ef þessi veruleiki birtist okkur“ Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi Engar vísbendingar og lítið af upplýsingum Íslendingar losa meira en Evrópubúar í langflestu Sýna sögulega þingfestingu í öðrum sal Braut kynferðislega á fatlaðri stjúpdóttur sinni Golfarar reynt að borga sig fram fyrir biðlistana Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Breytir verkefnastofu í ráðuneytisstofnun Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Heimsending sögð ógn við lýðheilsu en þjónusta þegar ríkið á í hlut Gefa út öryggisviðvörun vegna mótmæla Grunuðum ofbeldismönnum vísað frá landinu og lestarslys á Spáni Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Löggæsluáætlun næstu fimm ára kynnt á löggæsluþingi Bein útsending: Loftslagsdagurinn 2026 - Loftslagsbreytingar og öryggi Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Sjá meira