Enski boltinn

Grealish í agabanni hjá Everton

Andri Broddason skrifar
Vandræðahegðun Jack Grealish virðist enn vera að skemma fyrir honum.
Vandræðahegðun Jack Grealish virðist enn vera að skemma fyrir honum. Vísir/Getty

Jack Grealish var ekki með Everton þegar liðið vann Newcastle 3-1 í enska deildarbikarnum vegna brota á reglum félagsins. David Moyes þjálfari Everton tók fram að þetta væri ákvörðun félagsins en ekki ákvörðun hans.

Samkvæmt BBC Sport hafi Grealish ekki mætt á æfingu og þess vegna verið að refsa honum. Moyes studdi þessa ákvörðun en vildi lítið gefa upp um stöðuna eftir leik gærkvöldsins.

Grealish kom til Everton á síðasta tímabili að láni og byrjaði þar virkilega vel. Hann var valinn besti leikmaður ágústmánaðar í ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili og fyrripart tímabils skoraði hann tvö mörk og gaf sex stoðsendingar.

Í janúar meiddist Grealish illa á fæti og gat hann ekki spilað meira á tímabilinu. Það var mikið högg fyrir leikmanninn sem var loks að ná sér almennilega á strik hjá nýju félagi.

Grealish er nú á síðasta ári samnings síns við Manchester City en hann fór aftur til Everton að láni undir lok félagsskiptagluggans í sumar. Hann var nýbyrjaður að spila aftur og kom inn á fyrir Manchester City í Samfélagsskildinum þar sem liðið tapaði 3-0 gegn Arsenal.

Grealish virtist hafa fundið sig aftur hjá Everton en eftir meiðslin í byrjun árs virðist hann hafa týnt sér aftur. David Moyes vildi ekki gefa upp hvort að Grealish yrði með Everton þegar liðið spilar aftur gegn Newcastle nema nú í ensku úrvalsdeildinni á mánudaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×