Emil Atlason á leið í Fram Sindri Sverrisson skrifar 30. október 2026 10:14 Emil Atlason hefur leikið með Stjörnunni frá árinu 2020. Vísir / Diego Framherjinn öflugi Emil Atlason er á leið til Fram frá Stjörnunni og mun skrifa undir samning þess efnis í dag.
Frá þessu greinir sparkspekingurinn Hjörvar Hafliðason, stjórnandi Dr. Football, á X í dag. Vísir hefur fengið þetta staðfest. Emil Atlason skrifar undir hjá FRAM a eftir. Vikulok Dr. Football kl.11:00 á YouTube. https://t.co/NncmIEESaM— Hjörvar Hafliðason (@hjorvarhaflida) October 30, 2026 Óvissa hafði ríkt um framtíð Emils en samningur hans við Stjörnuna gilti til loka nýafstaðins tímabils. Rúnar Páll Sigmundsson, nýráðinn þjálfari Stjörnunnar, sagði við Vísi í vikunni að hann hefði heyrt hljóðið í Emil en að það væri framherjans að taka sína ákvörðun. Rúnar hafði þó að sjálfsögðu áhuga á að halda þessum 33 ára framherja. „Ég er búinn að tala við Emil varðandi það. Hann þarf bara að taka ákvörðun um það sjálfur hvað hann vill gera. Ég er ekki að neyða menn til að vera hérna. Hann verður að ákveða það og þannig er það bara,“ sagði Rúnar Páll á þriðjudaginn. Emil skoraði tíu mörk í Bestu deildinni í sumar, öll í sautján leikjum fyrir tvískiptingu deildarinnar. Hann kom til Stjörnunnar fyrir tímabilið 2020 eftir að hafa áður leikið með HK, Þrótti, Val og KR sem og með þýska liðinu Preussen Münster um skamman tíma. Endurnýjar kynnin við Rúnar Emil endurnýjar kynnin við Rúnar Kristinsson en Rúnar fékk Emil til KR frá FH þegar hann var enn í 2. flokki. Hann spilaði sína fyrstu meistaraflokksleiki undir stjórn Rúnars. Emil var nokkuð óvænt í stóru hlutverki hjá KR strax sumarið 2012, þá á elsta ári í 2. flokki, eftir að hafa ekki fengið tækifæri hjá FH. Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram, mun verða þjálfari Emils aftur en þeir unnu síðast saman hjá KR fyrir tólf árum, sumarið 2014.Vísir/Lýður Hann var fastamaður í liði KR undir stjórn Rúnars árin 2012 til 2014 þar sem þeir félagar unnu saman einn Íslandsmeistaratitil og tvo bikartitla. Hlutverk Emils minnkaði sumarið 2015 þegar Bjarni Guðjónsson tók við KR og hann skipti yfir í Val á miðju því sumri.
Besta deild karla Fram Stjarnan Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Handbolti Ældi blóði, braut rifbein, fór á spítala og svo aftur inn á völlinn Sport Fleiri fréttir „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Sjá meira