Traust byggist á vönduðum vinnubrögðum Ragnar Þór Reynisson og Valdimar Víðisson skrifa 2. nóvember 2026 07:30 Undanfarnar vikur hefur verið mikil umræða í Hafnarfirði um fyrirhugaða uppbyggingu við Krýsuvíkurveg og Hvaleyrarvatnsveg. Málið hefur vakið sterkar tilfinningar, fjölmargar spurningar og ekki síst mikilvæga umræðu um samráð við íbúa, ákvarðanatöku og vinnubrögð í stjórnsýslu bæjarins. Nú liggur fyrir að fallið hefur verið frá áformunum. En málið skilur líka eftir sig ýmsar spurningar um hvernig staðið er að undirbúningi umfangsmikilla verkefna hjá Hafnarfjarðarbæ. Hvenær eiga sérfræðingar bæjarins að koma að mati á verkefnum? Hvernig er tryggt að jafnræðis sé gætt þegar gengið er til samstarfs við einkaaðila? Hvenær eiga íbúar að fá tækifæri til að hafa áhrif? Hvernig tryggjum við að kjörnir fulltrúar hafi nauðsynlegar upplýsingar áður en ákvarðanir eru teknar? Þetta eru mikilvægar spurningar sem þarf að svara. Það nægir ekki að gagnrýna það sem betur hefði mátt fara. Við eigum líka að leggja fram lausnir og tryggja að reynslan nýtist til að bæta vinnubrögðin til framtíðar. Þess vegna lögðum við í Framsókn fram tillögu í bæjarráði Hafnarfjarðar um að mótaðar verði skýrar og formlegar verklagsreglur um undirbúning, faglegt mat, samráð, ákvarðanatöku og skráningu viljayfirlýsinga og samstarfssamninga sem Hafnarfjarðarbær gerir við einkaaðila, félagasamtök og aðra opinbera aðila. Markmiðið er einfalt en það er að tryggja að ákvarðanir séu teknar á faglegum forsendum, að ferlið sé gagnsætt og að hagsmunir bæjarins og íbúanna séu ávallt hafðir að leiðarljósi. Með þessu er tryggt að tillagan styðji við og stuðli að því að farið sé eftir jafnræðislögmálum stjórnsýsluréttarins í hvívetna. Skýrari reglur, faglegt mat og raunverulegt samráð Viljayfirlýsingar og samstarfssamningar eru mikilvæg stjórntæki sveitarfélaga. Þau geta skapað tækifæri til uppbyggingar, nýsköpunar, atvinnuþróunar og fjölbreytts samstarfs. Við viljum að Hafnarfjörður sé áfram sveitarfélag sem sýnir frumkvæði, tekur á móti góðum hugmyndum og er tilbúið að vinna með öðrum að framþróun samfélagsins. En það skiptir máli hvernig staðið er að slíku samstarfi. Viljayfirlýsing kann við fyrstu sýn að virðast tiltölulega einfalt skjal. Hún getur þó markað upphaf að umfangsmiklu verkefni sem hefur áhrif á skipulag, fjárhag, eignir bæjarins og nærumhverfi íbúa. Þótt slíkar yfirlýsingar séu oft ekki skuldbindandi geta þær skapað væntingar og markað ákveðinn farveg sem síðar getur reynst erfitt að víkja frá. Þess vegna teljum við mikilvægt að skýrt verklag sé til staðar áður en slíkar ákvarðanir eru teknar. Tillaga Framsóknar byggir á sex meginþáttum. Í fyrsta lagi viljum við að faglegt mat liggi fyrir áður en teknar eru ákvarðanir sem kunna að fela í sér skuldbindingar eða fyrirheit af hálfu bæjarins. Þar þarf meðal annars að skoða lögmæti, fjárhagsleg áhrif, skipulagslegar forsendur og mögulega áhættu. Við eigum að nýta þá sérfræðiþekkingu sem býr innan stjórnsýslunnar og tryggja að nauðsynleg gögn liggi fyrir áður en mál eru komin of langt. Í öðru lagi viljum við tryggja jafnræði og gagnsæi við val á samstarfsaðilum. Þegar sveitarfélag hyggst ráðstafa landi, eignum eða öðrum verðmætum þarf að liggja fyrir hvort verkefni kalli á opið auglýsingarferli, samkeppni eða aðra málsmeðferð. Einnig þarf að vera skýrt hvers vegna ákveðinn samstarfsaðili er valinn og hvort aðrir hefðu átt að fá tækifæri til að koma að verkefninu. Í þriðja lagi leggjum við ríka áherslu á raunverulegt samráð við íbúa. Á undirbúningsstigi verkefna þarf að meta hvort umfang þeirra eða áhrif á nærumhverfi gefi tilefni til íbúafunda, kynninga eða annars skipulagðs samráðs. Í fjórða lagi leggjum við til að upplýsingar um gildandi viljayfirlýsingar og samstarfssamninga verði aðgengilegar á heimasíðu Hafnarfjarðarbæjar eftir því sem lög og trúnaðarskyldur heimila. Þar verði meðal annars hægt að sjá tilgang samstarfs, gildistíma, ábyrgðaraðila og stöðu verkefna. Slík upplýsingagjöf auðveldar bæði íbúum og kjörnum fulltrúum að fylgjast með þeim verkefnum sem eru til undirbúnings. Í fimmta lagi viljum við að skýrt verði skilgreint hvaða samningar þurfi formlega afgreiðslu bæjarráðs eða bæjarstjórnar. Sérstaklega á þetta við um samninga sem fela í sér ráðstöfun verulegra verðmæta, fyrirheit um lóðir, fjárhagslegar skuldbindingar eða umfangsmikil uppbyggingaráform. Þar verður pólitísk ábyrgð að vera skýr og nauðsynlegt faglegt mat að liggja fyrir. Í sjötta lagi leggjum við áherslu á að verkefnið verði ekki látið dragast á langinn. Tillagan gerir ráð fyrir að bæjarstjóri, í samvinnu við viðeigandi fagsvið og lögfræðiþjónustu, leggi fram tillögur að verklagsreglum og gátlista innan þriggja mánaða frá samþykkt hennar. Með þessu viljum við að skýrar reglur geti auðveldað samstarf, dregið úr óvissu og skapað traust milli sveitarfélagsins, samstarfsaðila og íbúa. Lærum af reynslunni og gerum betur Málið við Krýsuvíkurveg hefur t.a.m. sýnt okkur hversu mikilvægt er að vanda undirbúning umfangsmikilla verkefna og tryggja að samráð sé haft á réttum tíma. Þar kom fram veruleg óánægja íbúa meðal annars vegna umfangs fyrirhugaðrar byggðar, staðsetningar hennar og áhrifa á nærumhverfið. Á fjölmennum íbúafundi komu fram fjölmargar spurningar og sjónarmið sem nauðsynlegt var að taka alvarlega. Íbúar eiga að geta treyst því að þegar sveitarfélagið gengur til samstarfs um stór verkefni hafi nauðsynleg vinna farið fram. Að lögfræðileg og fjárhagsleg sjónarmið hafi verið metin, jafnræðis hafi verið gætt og að þeir sem ákvarðanirnar snerta hafi fengið eðlilegt tækifæri til að koma sínum sjónarmiðum á framfæri. Kjörnir fulltrúar eiga sömuleiðis að geta treyst því að þeir fái skýrar upplýsingar og nauðsynleg gögn áður en þeim er ætlað að taka afstöðu. Traust er eitt það mikilvægasta sem við byggjum upp í samskiptum okkar við annað fólk. Traust verður til með heiðarleika, skýrum samskiptum og því að standa vel að verki. Það er einmitt hugsunin á bak við þessa tillögu Framsóknar. Við viljum að Hafnarfjörður sé sveitarfélag þar sem góðar hugmyndir fá að blómstra, samstarf við fjölbreytta aðila er öflugt og ákvarðanir eru teknar á faglegum og gagnsæjum forsendum. Við viljum að íbúar upplifi að á þá sé hlustað og að sjónarmið þeirra geti haft raunveruleg áhrif. Við viljum að stjórnsýslan sé þannig úr garði gerð að ekki þurfi að velkjast í vafa um hvernig staðið er að undirbúningi og afgreiðslu mikilvægra mála. Þessi tillaga er því lögð fram til að horfa fram á veginn. Við getum ekki breytt því sem þegar hefur gerst. En við getum ákveðið hvernig við ætlum að vinna í framtíðinni. Þetta snýst um ábyrgð, traust og virðingu fyrir þeim sem við störfum fyrir. Þetta snýst um Hafnarfjörð og íbúana okkar. Ragnar Þór Reynisson, fulltrúi Framsóknar í innkauparáði og Valdimar Víðisson, bæjarfulltrúi Framsóknar Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Valdimar Víðisson Hafnarfjörður Mest lesið Hægrisveiflan ýkta Egill Ö. Hermannsson Skoðun Hvert í fjandanum erum við eiginlega komin sem samfélag? Steindór Þórarinsson Skoðun Traust byggist á vönduðum vinnubrögðum Ragnar Þór Reynisson,Valdimar Víðisson Skoðun Hagræðing fyrir hvern? Stefán Pettersson Skoðun Bláskógaskatturinn minnkar kökuna Guðrún Hafsteinsdóttir Skoðun Þingkosningar í Bandaríkjunum: Mun stríð Trumps í Íran harðna eftir miðkjörtímabilskosningarnar? Jun Þór Morikawa Skoðun Ráðherrann sem skiptir litlu máli Arnar Sigurðsson Skoðun Þú átt nóg og þú ert nóg Ragnhildur Katla Jónsdóttir Skoðun Eru jólin hátíð barnanna eða bara þeirra sem hafa efni á þeim? Inga V. Henriksen Bergdal Skoðun Hvað viltu verða þegar þú verður stór? Jónína Lovísa Kristjánsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn minnkar kökuna Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar Skoðun Traust byggist á vönduðum vinnubrögðum Ragnar Þór Reynisson,Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þingkosningar í Bandaríkjunum: Mun stríð Trumps í Íran harðna eftir miðkjörtímabilskosningarnar? Jun Þór Morikawa skrifar Skoðun Hagræðing fyrir hvern? Stefán Pettersson skrifar Skoðun Hvert í fjandanum erum við eiginlega komin sem samfélag? Steindór Þórarinsson skrifar Skoðun Hvað viltu verða þegar þú verður stór? Jónína Lovísa Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Vafasama Viðreisn Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þú átt nóg og þú ert nóg Ragnhildur Katla Jónsdóttir skrifar Skoðun Eru jólin hátíð barnanna eða bara þeirra sem hafa efni á þeim? Inga V. Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Hægrisveiflan ýkta Egill Ö. Hermannsson skrifar Skoðun Ráðherrann sem skiptir litlu máli Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir skrifar Skoðun Norræna módelið: Af hverju refsum við kaupendum en ekki þeim sem selja? Drífa Snædal skrifar Skoðun Hvað hafa börnin gert fyrir okkur? Kristný Steingrímsdóttir skrifar Skoðun Hugmyndakassinn Perla Hafþórsdóttir skrifar Skoðun Losun Íslands á jarðefnaeldsneyti og ómarkviss og ósanngjörn skattheimt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar Skoðun Óðinn heldur fyrir heila augað Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Hneykslan og hræsni: Hvers vegna sum hatursorðræða er ásættanleg en önnur ekki Ian McDonald skrifar Skoðun Samstaða um Suðurnesin sem drifkraft vaxtar Pálmi Freyr Randversson,Berglind Kristinsdóttir,Guðjón Skúlason skrifar Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson skrifar Skoðun Sundlaugin er ekki vandamálið Unnur Helga Óttarsdóttir skrifar Skoðun Það er ekki nóg að hækka róminn Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Má manneskja skipta um trú — og halda lífi? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Tilkoma gervigreindar – kötturinn í Undralandi? Ólafur Aron Sveinsson skrifar Skoðun Veistu hvaða netvíti á að varast? Vilhjálmur Alvar Þórarinsson skrifar Skoðun Borgarnesréttlætið – saga úr umferðinni Guðmundur H Guðjónsson skrifar Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason skrifar Sjá meira
Þingkosningar í Bandaríkjunum: Mun stríð Trumps í Íran harðna eftir miðkjörtímabilskosningarnar? Jun Þór Morikawa Skoðun
Skoðun Þingkosningar í Bandaríkjunum: Mun stríð Trumps í Íran harðna eftir miðkjörtímabilskosningarnar? Jun Þór Morikawa skrifar
Skoðun Eru jólin hátíð barnanna eða bara þeirra sem hafa efni á þeim? Inga V. Henriksen Bergdal skrifar
Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir skrifar
Skoðun Norræna módelið: Af hverju refsum við kaupendum en ekki þeim sem selja? Drífa Snædal skrifar
Skoðun Losun Íslands á jarðefnaeldsneyti og ómarkviss og ósanngjörn skattheimt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar
Skoðun Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar
Skoðun Hneykslan og hræsni: Hvers vegna sum hatursorðræða er ásættanleg en önnur ekki Ian McDonald skrifar
Skoðun Samstaða um Suðurnesin sem drifkraft vaxtar Pálmi Freyr Randversson,Berglind Kristinsdóttir,Guðjón Skúlason skrifar
Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson skrifar
Þingkosningar í Bandaríkjunum: Mun stríð Trumps í Íran harðna eftir miðkjörtímabilskosningarnar? Jun Þór Morikawa Skoðun