Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 30. október 2026 17:54 Andoni Iraola, stjóri Liverpool, hefur ástæðu til þess að brosa þessa dagana. EPA/ADAM VAUGHAN Liverpool mun aðeins verða betra því meira sem liðið spilar og vinnur saman, segir knattspyrnustjórinn Andoni Iraola.
Liverpool tekur á móti meisturum Arsenal um helgina en gestirnir hafa ekki unnið á Anfield síðan 2012. Leikmenn Liverpool eru fullir sjálfstrausts eftir fimm sigurleiki í röð í öllum keppnum, þar á meðal dramatískan sigur á Chelsea í vítaspyrnukeppni í Carabao-bikarnum á miðvikudag. Baskinn, sem þurfti tíu leiki til að landa fyrsta sigri sínum sem stjóri Bournemouth, er sannfærður um að lið hans verði enn betra því meira sem það vinnur saman á æfingasvæðinu. „Já, þetta er spurning um tíma, við verðum að vinna okkur inn réttinn til að tilheyra félaginu,“ sagði Iraola í viðtali við Sky Sports. „Ég segi alltaf að það er satt að því meiri reynslu sem við fáum og því fleiri góðar frammistöður sem við sýnum, því auðveldara verður fyrir okkur að upplifa það sama og um daginn [gegn Chelsea].“ Iraola vonast til þess að Alexander Isak haldi áfram glæsilegri markaskorun sinni gegn Arsenal um helgina, en Svíinn hefur skorað sex mörk í síðustu sex leikjum sínum fyrir Liverpool. "It will be a good challenge for us." Liverpool boss Andoni Iraola looks ahead to Sunday's clash with Arsenal ⤵️ https://t.co/aYEDx9foDu— Sky Sports News (@SkySportsNews) October 30, 2026 „Alex er á góðum stað hvað það varðar, hann hefur alltaf verið góður markaskorari. Ef við getum komið honum í stöðu í kringum teiginn, þá skilar hann markinu, úrslitunum,“ sagði Iraola. „Hann veit líka að hann þarf að hjálpa liðinu svo liðið geti spilað betur og við getum skapað honum fleiri færi til að skora. Hann skilur þetta og er að bæta sig á öðrum sviðum þar sem hann hefur ekki verið jafn góður,“ sagði Iraola. Iraola veit þó að leikmenn hans þurfa að eiga nánast fullkominn leik ef þeir ætla að hafa betur gegn Skyttunum, sem líkt og Liverpool hafa aðeins tapað einum deildarleik það sem af er tímabili. „Það eru gæði í báðum liðum. Við verðum að vinna vinnuna, stundum þurfum við að vinna skítverkin svo sóknarmennirnir okkar geti skinið. Það eru hlutir sem Arsenal gerir mjög vel og við verðum að standast þeim snúning, annars verða þeir betri,“ sagði Iraola. „Þannig að allir verða að gefa allt frá byrjun á öllum sviðum, í föstum leikatriðum, varnarlega, sóknarlega og í skiptingum milli varnar og sóknar, því liðið er mjög vel þjálfað, leikmennirnir þekkja hver annan mjög vel og eru mjög samstilltir,“ sagði Iraola. „Ef við erum ekki upp á okkar allra besta verður þetta erfitt. Þeir eru alltaf á tánum. Þeir gefa þér engin grið,“ sagði Iraola. „Arsenal verður til staðar því liðið er mjög stöðugt í frammistöðu sinni. Í hverju innkasti vinna þeir sína vinnu og verða tilbúnir, svo við verðum að vera eins. Við megum ekki slökkva á okkur í tíu sekúndur því þá refsa þeir þér. Við verðum að halda einbeitingunni mjög mikilli, sérstaklega gegn Arsenal,“ sagði Iraola.
Enski boltinn Liverpool FC Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn Grindavík - Njarðvík | Stórslagur á Suðurnesjunum Körfubolti Leik lokið: Valur-Ármann 87-84 | Misstu næstum því sigurinn frá sér Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Enski boltinn Fleiri fréttir Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Grealish í agabanni hjá Everton Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað „Enski boltinn er annar heimur“ „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Verða án Sesko fram í janúar „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sendi Haaland og fleiri í frí Framherjarnir þurfi að stíga upp Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Sjá meira