Lífið

Barn kom í heiminn á Vestur­lands­vegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“

Áróra L Davíðsdóttir skrifar
Nýbökuðu foreldrarnir Hrafnhildur Elsa Arnardóttir og Alexander Örn Sævarsson ásamt „Litlu Líf“ sem kom í heiminn við vægast sagt óvæntar aðstæður í gærkvöldi.
Nýbökuðu foreldrarnir Hrafnhildur Elsa Arnardóttir og Alexander Örn Sævarsson ásamt „Litlu Líf“ sem kom í heiminn við vægast sagt óvæntar aðstæður í gærkvöldi. Aðsend

Barn kom í heiminn um borð í bíl á Vesturlandsvegi í gær. Foreldrarnir segjast sjúkraflutningafólkinu sem rétt náði að taka á móti stúlkubarninu afar þakklát.

Hrafnhildur Elsa Arnardóttir og Alexander Örn Sævarsson eignuðust sitt annað barn í gær. Barnið kom þó í heiminn með nokkuð óvenjulegum hætti eða þess heldur á óvenjulegum stað en það fæddist við hringtorg á Vesturlandsvegi um borð í Nissan Leaf-bíl.

Nýbökuðu foreldrarnir voru í mat hjá systur Hrafnhildar þegar stutt fór að líða á milli hríða. Þá var ekki annað í stöðunni en að bruna upp á fæðingardeild. En Hrafnhildur og Alexander drifu ekki svo langt.

„Við keyrum af stað en náum bara að Kötlu Fitness. Þá byrjar hún [Hrafnhildur] að öskra á mig að stoppa bílinn, að hún sé bara að fara að fæða núna,“ segir Alexander í samtali við Vísi.

Foreldrarnir eru afar þakklát starfsfólki Slökkviliðsins á Höfuðborgarsvæðinu og Landspítalans. Aðsend

Alexander hafi í kjölfarið hringt á neyðarlínuna og stoppað við hringtorgið við Bauhaus á Vesturlandsvegi.

„Ég hringi bara í 112 og óska eftir sjúkrabíl og ég segi að ég sé stopp hjá hringtorginu úti í kanti við Bauhaus, bara annað dekkið uppi á grasinu og bílar að keyra fram hjá. Þá bara þurfti ég að þreifa eftir öllu og gá hvort það væri allt í góðu og þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar.“

Blessunarlega hafi fyrrnefnd systir Hrafnhildar fylgt þeim eftir en hún er bráðahjúkrunarfræðingur. „Þannig það var aðeins betra að fá hana á staðinn,“ segir hann.

Tveir sjúkrabílar hafi mætt á staðinn í þann mund sem stúlkan kom í heiminn.

„Svo akkúrat þegar hausinn er að fara að koma út þá mæta tveir sjúkrabílar og þetta frábæra starfsfólk rétt náði að taka á móti henni.“

„Svolítið kalt“

Atburðarrásin var mjög hröð en foreldrarnir séu fyrst og fremst afar ánægð og þakklát sjúkraflutningafólkinu.

„Við hringjum 19:56 í sjúkrabíl og hún er skráð með fæðingartíma bara 20:04. Ég held að sjúkrabíllinn hafi komið 20:02. Þannig þetta gekk allt eins og í sögu.

Fjölskyldunni heilsast vel. Aðsend

Þetta var svolítið kaos en við erum bara ógeðslega ánægð með hvernig sjúkraflutningafólkið gerði þetta allt. Þetta var bara yndislegt. En það var svolítið kalt úti þannig að hún var bara hágrátandi og ísköld og við fórum bara beint inn í sjúkrabíl með hana.“

Öllum heilsast vel og eru í „toppstandi“. Sama sé þó ekki að segja um bílinn.

„Við þurfum eitthvað að skoða bílinn eftir þetta. En Nissan Leaf-inn dugði í þetta,“ segir Alexander og bæði hlæja.

Stúlkan verði því kölluð „Litla Líf“ þangað til hún fær nafn, með vísan í bílinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.