Fótbolti

Góður sigur stráka Sigga Ragga í lokaleiknum

Valur Páll Eiríksson skrifar
Sigurður Ragnar Eyjólfsson gerði NSÍ að færeyskum meisturum á fyrsta ári.
Sigurður Ragnar Eyjólfsson gerði NSÍ að færeyskum meisturum á fyrsta ári. Vísir/Sigurjón

NSÍ Runavík hafði þegar tryggt sér færeyska meistaratitilinn fyrir góðan 3-0 sigur á B68 Tóftir í lokaumferð deildarinnar í dag. Sigurður Ragnar Eyjólfsson og hans menn fagna titlinum þennan laugardaginn.

Lokaumferð færeysku úrvalsdeildarinnar fór fram í dag og NSÍ fór í heimsókn til B68 í Tóftum. NSÍ tryggði sér titilinn síðustu helgi með 1-1 jafntefli við HB í Þórshöfn.

Aron Knudsen kom NSÍ yfir eftir 23 mínútna leik og leiddi 1-0 í hléi. Daninn Sebastian Lau hafði tækifæri til að jafna fyrir B68 undir lok fyrri hálfleiks en klikkaði af vítapunktinum.

Á 78. mínútu tvöfaldaði Klæmint Olsen, fyrrverandi leikmaður Breiðablik, forystu NSÍ og Pólverjinn Michał Przybylski innsiglaði 3-0 sigur liðsins í uppbótartíma.

NSÍ lýkur tímabilinu því með 58 stig á toppi deildarinnar, sex stigum á undan KÍ frá Klaksvík sem hefur verið með yfirburði í deildinni síðustu ár.

Frábært fyrsta ár hjá Sigurði Ragnari sem fær að fagna titlinum með sínum mönnum í dag. NSÍ er meistari í annað sinn í sögu félagsins og fyrsta sinn síðam árið 2007.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×