Þú átt nóg og þú ert nóg Ragnhildur Katla Jónsdóttir skrifar 1. nóvember 2026 15:16 Enn og aftur er kominn nóvember. Í rauninni finnst manni ekki svo langt síðan við pökkuðum jólaskrautinu, eða heilsuðum lóunni. En tíminn flýgur. Tíminn sem er eitt af því fáa sem við eigum aldrei nóg af. Tími sem hleypur frá okkur á meðan við hlaupum á eftir hlutum sem við teljum okkur vanta í heimi þar sem föt, leikföng, dót og drasl flæðir upp úr skúffum og út úr geymslum. Á meðan áreiti fyllir skilningarvitin og verslanir sjúga hundrað þúsund kallana út af kortunum okkar, er það samt tíminn sem við viljum alltaf að halda í og reynum að hafa stjórn á. Nú í nóvember er sérstaklega erfitt að halda í síðustu þræði meðvitundar okkar því áreitið er endalaust. Nóvember er mánuður tilboða og freistinga, okkur er stöðugt talin trú um að við þurfum meira. Auglýsingar hrópa af götum, úr útvarpi, sjónvarpi og beint upp úr vösum okkar. Hver í kapp við aðra til þess að sannfæra okkur um að okkur vanti eitthvað, þó það sé sjaldnast raunin. Það er fullkomlega mannlegt að glepjast af sannfærandi tilboðum og það þarf styrk til þess að synda gegn straumi neyslusamfélagsins. En þessi styrkur býr innra með okkur öllum og það er fjöldi fólks sem er byrjaður að synda á móti. Nægjusemi snýst ekki um að hafna lífsgæðum heldur að velja þau meðvitað. Tíska breytist og fyrirtæki munu líklegast telja þér trú um að síminn þinn sé úreltur, þótt hann sé fullkomlega nothæfur. Ef við erum þeirrar skoðunar að hamingjuna sé ekki að finna í hlutum heldur í gæðastundum, er þá ekki svolítið sorglegt að sjá eftir verðmætum klukkustundum hverfa á meðan við erum að leita að, vinna fyrir og kaupa hluti sem okkur vantar ekki og enda á að rykfalla í skáp, áður en þeim er ýtt inn í geymslu. Nægjusamur nóvember er hvatningarátak sem hvetur fólk til að taka stjórnina á eigin lífi og meta sjálft hvað er dýrmætt og hvað ekki. Hvatningarátakið minnir okkur á að við eigum nóg, ef við gefum okkur tíma til að taka eftir því og tíma til að njóta þess sem við þegar eigum. Með nægjusemi minnkar sóunin, draslið, samviskubitið og álagið, bæði á veskið og á hugann. Þetta er í fimmta sinn sem nægjusamur nóvember breiðir út faðminn til þess að mýkja skothríð auglýsinga sem herja á sjálfsmat okkar. Þú átt nóg og þú ert nóg. Skráðu þig til þess að fá hvatningu og góð ráð í nóvember á vefsíðu átaksins! https://landvernd.is/naegjusamur-nov/ Með heilbrigðri gagnrýni getum við saman dregið úr ægivaldi neyslunnar og lagt grunn að notalegri og betri framtíð í takt við heilbrigt samfélag og náttúru. Höfundur er Upplýsingastjóri Landverndar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Umhverfismál Jól Mest lesið Norræna módelið: Af hverju refsum við kaupendum en ekki þeim sem selja? Drífa Snædal Skoðun Hægrisveiflan ýkta Egill Ö. Hermannsson Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir Skoðun Þú átt nóg og þú ert nóg Ragnhildur Katla Jónsdóttir Skoðun Ráðherrann sem skiptir litlu máli Arnar Sigurðsson Skoðun Halldór 31.10.26 Halldór Sundlaugin er ekki vandamálið Unnur Helga Óttarsdóttir Skoðun Hvað hafa börnin gert fyrir okkur? Skoðun Vafasama Viðreisn Júlíus Valsson Skoðun Skoðun Skoðun Vafasama Viðreisn Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þú átt nóg og þú ert nóg Ragnhildur Katla Jónsdóttir skrifar Skoðun Eru jólin hátíð barnanna eða bara þeirra sem hafa efni á þeim? Inga V. Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Hægrisveiflan ýkta Egill Ö. Hermannsson skrifar Skoðun Ráðherrann sem skiptir litlu máli Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir skrifar Skoðun Norræna módelið: Af hverju refsum við kaupendum en ekki þeim sem selja? Drífa Snædal skrifar Skoðun Hvað hafa börnin gert fyrir okkur? skrifar Skoðun Hugmyndakassinn Perla Hafþórsdóttir skrifar Skoðun Losun Íslands á jarðefnaeldsneyti og ómarkviss og ósanngjörn skattheimt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar Skoðun Óðinn heldur fyrir heila augað Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Hneykslan og hræsni: Hvers vegna sum hatursorðræða er ásættanleg en önnur ekki Ian McDonald skrifar Skoðun Samstaða um Suðurnesin sem drifkraft vaxtar skrifar Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson skrifar Skoðun Sundlaugin er ekki vandamálið Unnur Helga Óttarsdóttir skrifar Skoðun Það er ekki nóg að hækka róminn Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Má manneskja skipta um trú — og halda lífi? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Tilkoma gervigreindar – kötturinn í Undralandi? Ólafur Aron Sveinsson skrifar Skoðun Veistu hvaða netvíti á að varast? Vilhjálmur Alvar Þórarinsson skrifar Skoðun Borgarnesréttlætið – saga úr umferðinni Guðmundur H Guðjónsson skrifar Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Fertugt félag sem ætlar ekki að setjast í helgan stein Guðrún Barbara Tryggvadóttir skrifar Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson skrifar Skoðun Gerast enn kraftaverk á Íslandi? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðey – perla í dvala Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Er öryggi barna sökkvandi skip? Alfa Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar Sjá meira
Enn og aftur er kominn nóvember. Í rauninni finnst manni ekki svo langt síðan við pökkuðum jólaskrautinu, eða heilsuðum lóunni. En tíminn flýgur. Tíminn sem er eitt af því fáa sem við eigum aldrei nóg af. Tími sem hleypur frá okkur á meðan við hlaupum á eftir hlutum sem við teljum okkur vanta í heimi þar sem föt, leikföng, dót og drasl flæðir upp úr skúffum og út úr geymslum. Á meðan áreiti fyllir skilningarvitin og verslanir sjúga hundrað þúsund kallana út af kortunum okkar, er það samt tíminn sem við viljum alltaf að halda í og reynum að hafa stjórn á. Nú í nóvember er sérstaklega erfitt að halda í síðustu þræði meðvitundar okkar því áreitið er endalaust. Nóvember er mánuður tilboða og freistinga, okkur er stöðugt talin trú um að við þurfum meira. Auglýsingar hrópa af götum, úr útvarpi, sjónvarpi og beint upp úr vösum okkar. Hver í kapp við aðra til þess að sannfæra okkur um að okkur vanti eitthvað, þó það sé sjaldnast raunin. Það er fullkomlega mannlegt að glepjast af sannfærandi tilboðum og það þarf styrk til þess að synda gegn straumi neyslusamfélagsins. En þessi styrkur býr innra með okkur öllum og það er fjöldi fólks sem er byrjaður að synda á móti. Nægjusemi snýst ekki um að hafna lífsgæðum heldur að velja þau meðvitað. Tíska breytist og fyrirtæki munu líklegast telja þér trú um að síminn þinn sé úreltur, þótt hann sé fullkomlega nothæfur. Ef við erum þeirrar skoðunar að hamingjuna sé ekki að finna í hlutum heldur í gæðastundum, er þá ekki svolítið sorglegt að sjá eftir verðmætum klukkustundum hverfa á meðan við erum að leita að, vinna fyrir og kaupa hluti sem okkur vantar ekki og enda á að rykfalla í skáp, áður en þeim er ýtt inn í geymslu. Nægjusamur nóvember er hvatningarátak sem hvetur fólk til að taka stjórnina á eigin lífi og meta sjálft hvað er dýrmætt og hvað ekki. Hvatningarátakið minnir okkur á að við eigum nóg, ef við gefum okkur tíma til að taka eftir því og tíma til að njóta þess sem við þegar eigum. Með nægjusemi minnkar sóunin, draslið, samviskubitið og álagið, bæði á veskið og á hugann. Þetta er í fimmta sinn sem nægjusamur nóvember breiðir út faðminn til þess að mýkja skothríð auglýsinga sem herja á sjálfsmat okkar. Þú átt nóg og þú ert nóg. Skráðu þig til þess að fá hvatningu og góð ráð í nóvember á vefsíðu átaksins! https://landvernd.is/naegjusamur-nov/ Með heilbrigðri gagnrýni getum við saman dregið úr ægivaldi neyslunnar og lagt grunn að notalegri og betri framtíð í takt við heilbrigt samfélag og náttúru. Höfundur er Upplýsingastjóri Landverndar.
Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun
Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir Skoðun
Skoðun Eru jólin hátíð barnanna eða bara þeirra sem hafa efni á þeim? Inga V. Henriksen Bergdal skrifar
Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir skrifar
Skoðun Norræna módelið: Af hverju refsum við kaupendum en ekki þeim sem selja? Drífa Snædal skrifar
Skoðun Losun Íslands á jarðefnaeldsneyti og ómarkviss og ósanngjörn skattheimt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar
Skoðun Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar
Skoðun Hneykslan og hræsni: Hvers vegna sum hatursorðræða er ásættanleg en önnur ekki Ian McDonald skrifar
Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson skrifar
Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar
Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar
Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun
Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir Skoðun