Skoðun

Hvert í fjandanum erum við eigin­lega komin sem sam­fé­lag?

Steindór Þórarinsson skrifar

Maður er myrtur í Breiðholti. Annar liggur alvarlega slasaður. Skipulögðum brotahópum hefur fjölgað stórlega á Íslandi. Börn með fjölþættan vanda eru vistuð í úrræðum sem geta kostað milljónir á mánuði. Tólf einstaklingar hafa réttarstöðu sakbornings vegna andláts barns á ríkisstofnun. Innan SÁÁ hafa harðvítugar deilur skekið starfsemi samtaka sem sinna einni mikilvægustu heilbrigðisþjónustu landsins.

Á sama tíma verja íslensk stjórnvöld milljörðum króna til hernaðartengdra verkefna erlendis.

Og hvað gerum við? Við rífumst um stjórnmál, verjum okkar fólk, hneykslumst á Facebook og bíðum eftir næstu frétt.

Hvenær ætlum við eiginlega að horfast í augu við það sem er að gerast í landinu okkar?

Ég er orðinn þreyttur á yfirlýsingum, skýrslum, starfshópum og ráðamönnum sem tala fjálglega um ábyrgð en virðast alltof sjaldan þurfa að standa undir henni. Þreyttur á því að heyra að mál séu tekin alvarlega þegar ekkert virðist breytast. Þreyttur á að horfa upp á kerfi sem getur eytt gríðarlegum fjármunum án þess að almenningur fái skýr svör um árangurinn.

En ég er líka þreyttur á okkur sjálfum. Samfélagi sem virðist stundum hafa meiri áhuga á að verja eigin skoðanir en að horfast í augu við óþægilegar staðreyndir.

Þegar barn deyr á ábyrgð ríkisins

Þann 19. október 2024 lést Geir Örn Jacobsen, aðeins 17 ára gamall, í eldsvoða á Stuðlum. Hann var sonur Jóns K. Jacobsen, sem ásamt mér heldur úti hlaðvarpinu Týndu Strákarnir.

Nú eru liðin rúm tvö ár frá andláti Geirs. Samkvæmt fréttum frá 29. september hafa tólf einstaklingar réttarstöðu sakbornings í rannsókn vegna gruns um manndráp af gáleysi. Málið er komið til héraðssaksóknara.

Rannsókn Húsnæðis og mannvirkjastofnunar leiddi í ljós alvarlega annmarka á brunavörnum. Ítrekaðar kröfur höfðu verið gerðar um úrbætur á árunum fyrir brunann án þess að nauðsynlegar lagfæringar væru framkvæmdar. Samkvæmt niðurstöðu stofnunarinnar hefði verið hægt að koma í veg fyrir mannslátið ef brunavarnir hefðu verið virkar.

Látum þetta aðeins síast inn.

Barn lést í húsnæði á vegum ríkisins þar sem ítrekað hafði verið bent á annmarka á brunavörnum.

Og hvað hefur gerst síðan?

Þann 27. október síðastliðinn greindi RÚV frá því að húsnæði Stuðla væri enn í notkun án þess að vottorð um öryggisúttekt hefði verið gefið út. Byggingarfulltrúi hafði heimilað tímabundna notkun með tilteknum öryggisráðstöfunum, en umboðsmaður barna gerði alvarlegar athugasemdir við stöðuna.

Hvernig er þetta hægt?

Hvernig getur barn látið lífið við þessar aðstæður og tveimur árum síðar erum við enn að ræða hvort húsnæðið uppfylli lögbundnar öryggiskröfur?

Það sem vekur ekki síður alvarlegar spurningar er ábyrgð þeirra sem stjórnuðu starfseminni.

Samkvæmt upplýsingum sem ég hef aflað eru stjórnendur sem fóru með umfangsmikla ábyrgð þegar bruninn varð enn við störf og hafa ekki verið settir í tímabundið leyfi.

Ég ætla ekki að dæma neinn sekan áður en dómstólar hafa fjallað um málið. Réttarstaða sakbornings jafngildir ekki sekt. En það er grundvallarmunur á refsiábyrgð og ábyrgð stjórnenda.

Við höfum séð fólk sent í tímabundið leyfi vegna mála sem eru langt frá því að vera jafn alvarleg. Hver ákveður þá að stjórnendur sem tengjast starfsemi þar sem barn lést haldi áfram að gegna ábyrgðarstöðum?

Hvaða mat fór fram? Hver tók þá ákvörðun? Og hvers vegna hafa stjórnvöld ekki gert almenningi skýra grein fyrir því hvernig ábyrgð stjórnenda hefur verið metin?

Þetta eru ekki óeðlilegar spurningar. Þetta eru spurningar sem stjórnvöld eiga að svara.

Milljónir fyrir eitt barn, en hvar er árangurinn?

Í Kveik 27. október var fjallað um einkarekin búsetuúrræði fyrir börn með fjölþættan vanda. Þar kom fram að sveitarfélagi hefði verið boðin þjónusta fyrir eitt barn sem kostaði um 16 milljónir króna á mánuði, þar með talin skólaþjónusta.

Sextán milljónir á mánuði.

Það er ekki sjálfkrafa óeðlilegt að þjónusta við barn með mjög flóknar þarfir sé kostnaðarsöm. En eftir því sem fjárhæðirnar hækka verður krafan um eftirlit, fagmennsku og sannanlegan árangur að vera meiri.

Hvernig er árangurinn mældur? Hver hefur eftirlit með starfseminni? Hvað gerist þegar úrræðið virkar ekki? Hvernig er tryggt að fjármunirnir nýtist fyrst og fremst barninu?

Í umfjöllun Kveiks komu fram alvarlegar frásagnir um starfsemi tiltekinna úrræða. Slíkar frásagnir þarf að rannsaka og gefa viðkomandi aðilum færi á að svara. En það er hlutverk stjórnvalda að tryggja að eftirlitið virki, ekki að bíða þar til fjölmiðlar draga vandann fram í dagsljósið.

Við höfum í Týndu Strákunum rætt við foreldra og aðstandendur sem lýsa baráttu við kerfi sem á að hjálpa börnunum þeirra. Fólk sem segist hafa þurft að berjast fyrir svörum, þjónustu og úrræðum á sama tíma og það glímir við ótta um framtíð barnsins síns.

Þarna verður að staldra við.

Hvernig stendur á því að við getum fundið milljónir til að vista barn en virðumst eiga svo erfitt með að byggja upp samfellda, faglega þjónustu sem grípur það áður en vandinn er orðinn svo alvarlegur?

Það á ekki að vera ásættanlegt að kerfið bregðist fyrst við þegar allt er komið í óefni.

Við eigum að hætta að mæla árangur barnaverndar eingöngu út frá því hvort fundist hafi úrræði. Við eigum að mæla hvort barninu líði betur, hvort öryggi þess sé tryggt og hvort þjónustan skili raunverulegum framförum.

Og ef hún gerir það ekki þarf að breyta henni. Ekki bara borga hærri reikninga.

Skipulagðir brotahópar og landamæri sem við verðum að taka alvarlega

Í nóvember 2025 birti ríkislögreglustjóri skýrslu um skipulagða brotastarfsemi á Íslandi. Þar kom fram að skipulögðum brotahópum hefði fjölgað um helming á síðasta áratug og að umsvif þeirra hefðu aukist.

Þar var sérstaklega bent á aukna aðsókn erlendra brotahópa, alvarlegra ofbeldi og hvernig ungmenni og einstaklingar í viðkvæmri stöðu væru nýttir til brotastarfsemi. Jafnframt kom fram að brotahópar hefðu leitað uppi umsækjendur um alþjóðlega vernd í búsetuúrræðum yfirvalda.

Þetta eru upplýsingar frá íslenskum lögregluyfirvöldum. Ekki sögusagnir á samfélagsmiðlum.

Og þetta er þróun sem ég tel að við eigum að bregðast mun ákveðnar við.

Ég vil öflugra landamæraeftirlit. Ég vil betri skráningu, meiri upplýsingamiðlun og markvissara eftirlit með því hverjir koma til landsins og á hvaða forsendum. Ég vil að stjórnvöld hafi raunverulega yfirsýn yfir móttöku flóttafólks, aðlögun og eftirfylgni.

Og ég vil að erlendir ríkisborgarar sem fremja alvarleg afbrot sæti skýrum afleiðingum, þar á meðal brottvísun og endurkomubanni þegar lagaskilyrði eru uppfyllt.

Það á ekki að vera neitt feimnismál að segja þetta.

Við höfum lög sem heimila brottvísun við tilteknar aðstæður. Þá vil ég fá að vita hversu oft þeim heimildum er beitt, hvenær þeim er ekki beitt og hvers vegna.

Það dugar ekki að samþykkja lög ef framkvæmdin og eftirfylgnin eru ófullnægjandi.

Ég tek undir þá grundvallaráherslu sem Elliði Vignisson hefur sett fram í umræðu um innflytjendamál, að stefna verði að byggjast á gögnum, skýrum kröfum og raunverulegri getu samfélagsins til að taka á móti fólki.

Við eigum ekki að vera hrædd við að ræða áhrif innflytjenda á skóla, húsnæðismarkað, heilbrigðisþjónustu, löggæslu og samfélagið í heild.

Við eigum heldur ekki að þurfa að tipla á tánum þegar rætt er um trúarleg viðhorf eða menningarlegar venjur sem samræmast ekki jafnrétti kynjanna, réttindum barna, trúfrelsi eða öðrum grundvallarréttindum.

Ég hef meðal annars gagnrýna afstöðu til þeirra túlkunarhefða innan íslams sem ganga gegn þessum réttindum. Slíkar hugmyndir eiga ekki að njóta undanþágu frá gagnrýni vegna þess að þær eru trúarlegs eðlis.

En ábyrgðin á afbrotum liggur hjá þeim sem fremja þau. Trú eða uppruni einn og sér segir ekki til um sekt einstaklings.

Við eigum að geta gert skýrar kröfur um að allir virði íslensk lög, óháð því hvaðan þeir koma.

Það er ekki fordómur að krefjast löghlýðni, öryggis og ábyrgðar. Það er eðlileg krafa til þeirra sem fara með stjórn landsins.

Sú meðvirkni sem ég gagnrýni í útlendingamálum er þegar stjórnvöld og samfélagið virðast treg til að ræða vandamál, setja skýr mörk eða framfylgja reglum af ótta við óþægilega umræðu.

Slík undanlátssemi gagnast engum. Ekki Íslendingum og ekki heldur því fólki sem flytur hingað með það að markmiði að byggja upp gott líf og taka þátt í samfélaginu.

Meðferðarmálin mega ekki verða vígvöllur stjórnenda

Á sama tíma og við ræðum aukna brotastarfsemi, fíkniefnavanda og öryggi í samfélaginu höfum við fylgst með harðvítugum deilum innan SÁÁ.

Í september lýstu 63 starfsmenn yfir vantrausti á formann og framkvæmdastjórn samtakanna. Hátt settir stjórnendur sögðu upp störfum og fram komu ásakanir um afskipti stjórnar af faglegu starfi. Formaður SÁÁ hefur hafnað þeim ásökunum.

Ég ætla ekki að úrskurða um sekt eða rétt í þeim deilum. En ég ætla að gagnrýna það sem mér finnst skipta mestu máli.

Hvað verður um fólkið sem þarf á þjónustunni að halda þegar stjórnendur og fagfólk missa traust hvert á öðru?

Við erum að tala um meðferð við sjúkdómi sem getur haft skelfilegar afleiðingar fyrir einstaklinga og fjölskyldur. Fólk bíður eftir aðstoð, aðstandendur lifa við ótta og margir eru í þeirri stöðu að hver dagur getur skipt sköpum.

Þá eiga hagsmunir þeirra sem þurfa meðferð að vega þyngra en persónulegur metnaður, stjórnunarátök og deilur um fjármuni.

Stjórnir meðferðarsamtaka eru ekki til fyrir sjálfar sig. Þær eru til þess að tryggja að starfsemin þjóni tilgangi sínum. Sama á við um stjórnendur opinberra stofnana og ráðuneyta.

Það þarf að vera hægt að spyrja hvort fjármunum sé rétt varið, hvort fagleg þjónusta sé nægilega varin og hvort ákvarðanir séu teknar með hagsmuni skjólstæðinga að leiðarljósi.

Og ef svarið er nei, eða ef þeir sem bera ábyrgð geta ekki sýnt fram á annað, verða þeir að svara fyrir það.

Það er enginn svo mikilvægur að hann eigi að vera undanþeginn ábyrgð.

Milljarðar í hernaðarstuðning en hvað með fólkið hér heima?

Hér vil ég vera alveg skýr.

Ég er á móti því að íslensk stjórnvöld verji milljörðum króna til hernaðartengdra verkefna erlendis á sama tíma og við glímum við alvarlegan vanda í meðferðarkerfinu, barnavernd, löggæslu og heilbrigðisþjónustu.

Samkvæmt upplýsingum sem birtust í október hafði Ísland varið 20,4 milljörðum króna til stuðnings við Úkraínu frá upphafi innrásar Rússlands árið 2022 til september 2026. Þar af voru 11,9 milljarðar varnartengdur stuðningur og 8,5 milljarðar mannúðar- og efnahagsaðstoð.

Þarna er mikilvægt að greina á milli þessara tveggja þátta. Ég er ekki á móti því að hjálpa stríðshrjáðu fólki. Ég er á móti þeirri ákvörðun að verja milljörðum íslenskra skattgreiðenda í hernaðartengdan stuðning þegar brýn verkefni hér heima eru enn óleyst.

Ísland hefur um langt skeið lagt áherslu á friðarstarf og alþjóðlega samvinnu. Ég vil að við leggjum meiri áherslu á það hlutverk.

Það er hægt að fordæma innrás Rússlands, styðja mannúðaraðstoð og vilja frið án þess að samþykkja allar ákvarðanir íslenskra stjórnvalda um fjármögnun hernaðartengdra verkefna.

Ég veit vel að ríkisfjármál eru flókin og að fjárveitingar til ólíkra málaflokka verða ekki alltaf bornar beint saman.

En milljarðar eru samt milljarðar.

Þegar stjórnvöld taka ákvörðun um slíkar fjárhæðir eiga þau að geta útskýrt hvers vegna tiltekin verkefni eru sett í forgang og hvernig þau hyggjast um leið mæta brýnum þörfum innanlands.

Hvað þarf mikið fjármagn til að tryggja nægilega mörg meðferðarpláss? Hversu miklu þarf að verja til að stytta bið eftir geðheilbrigðisþjónustu? Hvað kostar að tryggja öruggt húsnæði og faglega þjónustu fyrir þau börn sem eru í mestum vanda?

Hvar er samsvarandi skýr, tímasett og fjármögnuð áætlun um þau verkefni?

Þessum spurningum verður ekki svarað með því einu að segja að Ísland beri alþjóðlega ábyrgð.

Ríkið ber líka ábyrgð gagnvart fólkinu sem hér býr.

Og ég sætti mig ekki við að alvarlegir annmarkar í grunnþjónustu séu sífellt útskýrðir með skorti á fjármagni án þess að allar ákvarðanir um forgangsröðun séu teknar til gagnrýninnar skoðunar.

Við berum líka ábyrgð

En það væri óheiðarlegt af mér að skrifa allan þennan pistil og láta eins og vandinn væri eingöngu stjórnvöldum að kenna.

Við sem samfélag þurfum líka að líta í spegil.

Við þurfum að hætta að verja fólk og stofnanir eingöngu vegna þess að við þekkjum viðkomandi, höfum stutt viðkomandi stjórnmálaflokk eða viljum ekki viðurkenna að eitthvað hafi farið úrskeiðis.

Við þurfum að hætta að rugla saman samkennd og meðvirkni.

Samkennd merkir ekki að samþykkja lögbrot, líta undan þegar ábyrgð er vanrækt eða afsaka ítrekuð mistök.

Við getum sýnt fólki virðingu og samt gert skýrar kröfur.

Og við foreldrarnir þurfum líka að taka okkar ábyrgð alvarlega.

Við þurfum að tala við börnin okkar. Vita hvað þau eru að gera, hverja þau umgangast, hvernig þeim líður og hvaða hættur þau geta staðið frammi fyrir. Við þurfum að vera til staðar áður en vandamálin verða svo stór að við ráðum ekki við þau.

Það er ekki nóg að treysta því að skólinn, félagsþjónustan eða barnavernd sjái um allt.

Auðvitað geta foreldrar gert allt sem í þeirra valdi stendur og samt lent í aðstæðum þar sem þeir þurfa aðstoð. Það er einmitt ástæðan fyrir því að við þurfum öflugt kerfi sem grípur fjölskyldur þegar þær ráða ekki einar við vandann.

En ábyrgðin á uppeldi barna verður aldrei alfarið færð yfir á stofnanir.

Við þurfum líka að hætta að láta samfélagsmiðla stjórna allri umræðu okkar. Það virðist stundum mikilvægara að vinna rifrildi en að finna lausn.

Mér er nákvæmlega sama hvort góð hugmynd kemur frá manneskju til hægri eða vinstri í stjórnmálum. Ef hún getur bætt samfélagið eigum við að skoða hana af alvöru.

Við eigum að geta rætt útlendingamál án þess að stimpla alla gagnrýni sem fordóma. Við eigum að geta rætt barnavernd án þess að opinberar stofnanir fari sjálfkrafa í varnarstöðu. Við eigum að geta gagnrýnt stjórnendur meðferðarsamtaka án þess að vera sakaðir um að vinna gegn meðferðarstarfinu.

Og við eigum að geta krafist ábyrgðar af ráðamönnum án þess að þeir vísi sífellt á einhvern annan.

Það er ekki til of mikils mælst.

Hættum að tala og förum að gera eitthvað

Það sem ég vil sjá er ekki enn ein yfirlýsingin um að stjórnvöld taki stöðuna alvarlega.

Ég vil sjá raunverulegar aðgerðir.

Ég vil sjá barnaverndarkerfi þar sem öryggi og árangur eru mæld og þar sem stjórnendur þurfa að svara þegar þjónusta bregst. Ég vil sjá meðferðarkerfi þar sem fagleg þjónusta og þarfir fólks ganga fyrir átökum um stjórnunarvald. Ég vil sjá öflugri löggæslu, markvissari forvarnir og mun betra eftirlit með skipulagðri brotastarfsemi.

Ég vil sjá útlendingastefnu sem byggist á skýrum reglum, áreiðanlegum gögnum, virkri aðlögun og afdráttarlausum viðbrögðum við alvarlegum lögbrotum.

Ég vil sjá stjórnvöld gera jafn skýrar áætlanir um uppbyggingu innlendrar grunnþjónustu og þau gera um fjárframlög til verkefna erlendis.

Og umfram allt vil ég sjá að ábyrgð fylgi valdi.

Við getum ekki haldið áfram að sætta okkur við að börn og fjölskyldur þurfi að berjast fyrir nauðsynlegri þjónustu, að alvarlegar athugasemdir við öryggi séu ekki afgreiddar fyrr en eftir hörmungar og að ábyrgðin virðist sífellt týnast í stjórnkerfinu.

Ég geri mér enga grein fyrir því hversu mörg ár eða hversu marga milljarða það mun taka að bæta allt sem þarf að bæta. En ég veit að vandamálin hverfa ekki með því að forðast umræðuna.

Við erum lítil þjóð. Við ættum að hafa alla burði til að vinna saman að því að byggja hér upp öruggt samfélag þar sem börn njóta verndar, lögum er framfylgt og fólk í vanda fær aðstoð áður en það er orðið of seint.

Til þess þurfum við að vera tilbúin að taka erfiðar ákvarðanir, standa gegn sérhagsmunum og hætta að afsaka ábyrgðarleysi.

Það verður ekki gert með fleiri fallegum orðum.

Það verður gert með framkvæmdum.

Og ef þeir sem fara með ábyrgð geta ekki eða vilja ekki takast á við verkefnið þurfa þeir að geta svarað því hvers vegna þeir eigi áfram að gegna þeim störfum.

Hvert í fjandanum erum við eiginlega komin sem samfélag þegar við erum farin að sætta okkur við að svona sé þetta bara?

Ég neita að trúa því að við getum ekki gert betur.

En þá verðum við öll að hætta að bíða eftir því að einhver annar byrji.

Höfundur er Annar þáttastjórnadi Týndu Strákana: Steindór Þórarinsson, markþjálfi og ritstjóri samson.is




Skoðun

Sjá meira


×