Vilja leyfa eldri borgurum að ráða sér au pair Árni Sæberg skrifar 2. nóvember 2026 13:52 Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir, þingmaður Miðflokksins, er fyrsti flutningsmaður þingsályktunartillögunnar. Vísir/Vilhelm Fjórir þingmenn Miðflokksins hafa lagt fram þingsályktunartillögu um að heimila eldri borgurum að taka á móti erlendum einstaklingi í vistráðningu, eða með öðrum orðum að ráða sér svokallaða au pair.
Í tillögunni, sem Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir, Bergþór Ólason, Ingibjörg Davíðsdóttir og Þorgrímur Sigmundsson flytja, segir að Alþingi álykti að fela dómsmálaráðherra, í samráði við félags- og húsnæðismálaráðherra, að leggja fyrir Alþingi eigi síðar en 1. mars 2027 frumvarp til laga um breytingu á lögum um útlendinga, um dvalarleyfi vegna vistráðningar. Einstaklingur ráðinn vistráðningu, svokölluð au pair, er ungmenni á aldrinum 18 til 25 ára, oftast kona, sem dvelur hjá vistfjölskyldu og sinnir léttum heimilisverkum og annast börn gegn fæði, húsnæði og vasapening. Hjúkrun bönnuð Þannig verði heimilt að veita dvalarleyfi vegna vistráðningar þegar vistfjölskylda er einstaklingur, 67 ára eða eldri, eða hjón eða sambúðarfólk þar sem annað er 67 ára eða eldra, sem býr á eigin heimili, án þess að skilyrði um barn á heimili eigi við. Hlutverk hins vistráðna hjá eldri borgara verði félagsskapur, samvera og létt aðstoð við heimilishald, en skýrt verði kveðið á um að hjúkrun, persónuleg umönnun, aðstoð við persónulegt hreinlæti, lyfjagjöf og eftirlit með lyfjatöku falli utan vistráðningar. Hámark vinnuframlags hjá eldri borgurum verði ákveðið sérstaklega og verði ekki hærra en það sem gildir um vistráðningu hjá barnafjölskyldum. Skyldur vistfjölskyldu, svo sem um húsnæði, fæði, vasapeninga og tryggingar, verði hinar sömu og gilda um aðrar vistfjölskyldur. Vilja áfram þriðja ríkis au pair Eftirlit með vistráðningum, sem Útlendingastofnun er nú skylt að fela sérstökum eftirlitsaðila, taki til beggja aðila og verði hrint í framkvæmd samhliða breytingunni. Loks er lagt til að heimild haldist til að veita ríkisborgurum ríkja utan Evrópska efnahagssvæðisins dvalarleyfi vegna vistráðningar en dómsmálaráðherra hefur boðað frumvarp um breytingar á dvalarleyfakerfinu, sem felur meðal annars í sér að ekki verður lengur heimilt að veita svokölluðum þriðja ríkis borgara dvalarleyfi á grundvelli vistráðningar.
Au-pair Miðflokkurinn Alþingi Tengdar fréttir Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Áttatíu og sjö foreldrar segjast reiðubúnir að greiða gjald til að fjármagna eftirlit með au pair á Íslandi. Þau mótmæla fyrirhuguðu afnámi dvalarleyfa vegna vistráðningar og segja stjórnvöld eiga að styrkja vernd vistráðinna og framfylgja eftirliti sem hefur verið lögbundið frá árinu 2023. 13. október 2026 13:55 Mest lesið Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent „Tíminn er á þrotum“ Erlent Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Innlent Nauðlenti vegna sprengjuhótunar Erlent Hrákinn endaði í andliti og auga Innlent Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife Innlent Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Erlent Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Fleiri fréttir Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Ábendingar borist um skemmdarverkin Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Tíst Ólafs Ragnars hafi verið mun alvarlegra „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Vilja leyfa eldri borgurum að ráða sér au pair Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Flestir neita sök og umfangsmikil réttarhöld í vændum Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Manndrápsmál, eltihrellir og söguleg kaup Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Sjá meira
Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Áttatíu og sjö foreldrar segjast reiðubúnir að greiða gjald til að fjármagna eftirlit með au pair á Íslandi. Þau mótmæla fyrirhuguðu afnámi dvalarleyfa vegna vistráðningar og segja stjórnvöld eiga að styrkja vernd vistráðinna og framfylgja eftirliti sem hefur verið lögbundið frá árinu 2023. 13. október 2026 13:55