Körfubolti

Gæti komið í bakið á stjörnuliði Álfta­ness

Aron Guðmundsson skrifar
Teitur Örlygsson fór yfir stöðuna hjá Álftanesi í Körfuboltakvöldi á Sýn Sport
Teitur Örlygsson fór yfir stöðuna hjá Álftanesi í Körfuboltakvöldi á Sýn Sport Vísir/Samsett

Teitur Örlygsson, körfuboltagoðsögn og sérfræðingur Körfuboltakvölds, telur það geta komið í bakið á Álftanesi að hafa mætt með fullmótað lið til leiks strax í fyrstu umferð Bónus deildarinnar. Sígandi lukka sé best.

Álftanes hefur farið með himinskautum í upphafi tímabils eins og við var að búast. Liðið hefur, líkt og KR og Valur, unnið alla fjóra leiki sína til þessa og sótti sigur í Síkið í síðustu umferð í framlengdum leik gegn Tindastól.

„Ég hef aldrei trú á liðum sem koma fullmótuð inn í fyrsta leik í ágúst og september,“ sagði Teitur Örlygsson, einn af sérfræðingum Körfuboltakvölds, og spurði umsjónarmaður þáttarins, Stefán Árni Pálsson, Teit þá að því hvort hann hefði áhyggjur af Álftanesi.

Klippa: Geti komið í bakið á Álftanesi

„Ég held að þetta gæti komið í bakið á þeim,“ svaraði Teitur þá. „Það verður bara leiðinlegt ef þú getur ekki bætt þig og það gerist ekkert óvænt.“

Umræðuna um Álftanes úr Körfuboltakvöldi má sjá í heild sinni í spilaranum hér ofar í fréttinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×