Sport

Líkir Dallas Cowboys við ræningjana tvo í Home Alone

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Það er ekki á hverjum degi sem einu frægasta íþróttaliði heims er líkt við þá einu sönnu Harry og Marv.
Það er ekki á hverjum degi sem einu frægasta íþróttaliði heims er líkt við þá einu sönnu Harry og Marv. Home Alone

Dallas Cowboys er þekktasta og stærsta félagið í NFL-deildinni þrátt fyrir að hafa ekki unnið titilinn á þessari öld. Það hafa nánast allir skoðun á liðinu í Bandaríkjunum og þá ekki síst íþróttafréttamenn.

Einn þeirra sem eru duglegir að fjalla um Kúrekana frá Dallas er Colin Cowherd.

Hann kom með svolítið sérstaka samlíkingu eftir síðasta tapleik liðsins. Dallas tapaði óvænt 30-33 á heimavelli á móti Arizona Cardinals um helgina og hefur aðeins unnið 3 af 8 leikjum tímabilsins.

Í nýjustu ræðu sinni um Kúrekana líkti Cowherd liðinu við ræningjana í Home Alone. Það muna eflaust allir eftir þeim Harry og Marv, sem leiknir voru af Joe Pesci og Daniel Stern, og þeim hrakförum sem þeir lentu í.

„Cowboys-liðið er orðið eins og ræningjarnir tveir í Home Alone. Þeir eru að detta niður stiga og detta um allt sem á vegi þeirra verður,“ sagði Colin Cowherd.

Cowherd segir þetta verða það versta í fimm ár hjá Dallas Cowboys og það þrátt fyrir frekar auðvelda leikjadagskrá.

„Cowboys voru allavega á heimavelli um helgina en ræningjarnir voru það ekki. Þetta er verst þjálfaða liðið í allri NFL-deildinni og það er langt í þann næstversta,“ sagði Cowherd.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×