Neyðarfundur og umdeild áform Infantino
Áform Gianni Infantino, forseta FIFA, um að hleypa utanaðkomandi fjárfestum inn í sambandið hafa farið öfugt ofan í marga hlutaðeigandi. Knattspyrnusamband Evrópu gagnrýnir áformin harðlega og hefur boðað formenn sambanda í álfunni á neyðarfund.