Enginn á biðlista eftir hjúkrunarrými fyrir lok 2029
Stjórnvöld gera ráð fyrir að í árslok 2029 verði enginn á biðlista eftir hjúkrunarrými. Inga Sæland, mennta - og barnamálaráðherra kynnti í dag áform um að rúmlega 1500 hjúkrunarrými verði tekin í notkun á tímabilinu en þar af yrðu 1355 þeirra ný. Áformin um tóma biðlista séu þó háð skipulagshraða sveitarfélaga, hraða í útboðsferlum og uppbyggingarhraða en aðspurð sagði Inga að markmiðið væri raunhæft og í samræmi við stefnu stjórnvalda sem boðuðu þjóðarátak í uppbyggingu hjúkrunarheimila í stjórnarsáttmála.