Ferðamenn skoða slóðir síðustu aftöku á Íslandi

Staðurinn þar sem þau Agnes Magnúsdóttir og Friðrik Sigurðsson voru hálshöggvin árið 1830, Þrístapar í Vatnsdalshólum, er orðinn áningarstaður ferðamanna, jafnt Íslendinga sem útlendinga. En svo er einnig um aðra sögustaði síðustu aftöku á Íslandi. Í þættinum „Um land allt“ á Sýn+ heimsækir Kristján Már Unnarsson slóðir þessara dimmu atburða í Húnavatnssýslum fyrir nærri tvöhundruð árum. Hér má sjá tólf mínúna kafla úr þættinum.

3
12:20

Vinsælt í flokknum Um land allt