Ísland í dag - Byrjaði í nýju námi 54 ára og segir aldrei of seint
Iðnhönnuðurinn Sigríður Heimisdóttir kölluð Sigga Heimis er hönnuður á heimsmælikvarða. En hún hefur meðal annars verið einn af aðal hönnuðum og einnig hönnunarstjóri og þróunarstjóri Ikea þegar hún bjó í Svíþjóð. Hún hefur einnig unnið fyrir heimsþekkt hönnunarfyrirtæki eins og Fritz Hansen og fleiri. Sigga er alltaf að bæta við sig og þróa sitt starf og hún hóf meðal annars nýtt nám 54 ára gömul og segir að skólar séu ekki bara fyrir unga fólkið. Og nú er hún að byrja nýjan kafla þar sem hún verður fagstjóri í gríðarlega spennandi nýrri námsleið í hönnunar og vörutæknifræði í Háskólanum í Reykjavík. Vala Matt fór fyrir Ísland í dag og fékk að heyra hvernig aldrei er of seint að byrja nýtt nám eða nýja spennandi vinnu.