Flugstöð Leifs Eiríkssonar er hálfgert draugahús
Staðan á Keflavíkurflugvelli er all óvenjuleg þessa dagana þar sem farþegum hefur fækkað enn meira undanfarnar vikur. Nú ráfa nokkrir tugir upp í örfá hundruð farþega um flugstöðina þar sem annars voru þúsundir manna á ferð á hverjum degi. Flestir veitingastaðir eru lokaðir og um helmingur verslana.