Eldræða Rikka G í beinni
Tottenham er í martraðarlandi gegn Atletico Madrid í fyrri leik liðanna í sextán liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu sem nú stendur yfir. Rikki G, sem lýsir leik liðanna á Sýn Sport 2, gagnrýndi meðferð Igor Tudor, knattspyrnustjóra Tottenham, á einum leikmanni liðsins harðlega í beinni útsendingu.