Frekari launahækkanir geti leitt til frekari vaxtahækkana

Stýrivextir Seðlabanka Íslands voru í morgun hækkaðir um tuttugu og fimm punkta, eða upp í 7,5 prósent. Nokkuð harður tónn var í yfirlýsingu peningastefnunefndar bankans sem vísaði til þess að verðbólga hafi aukist á ný þrátt fyrir hægari efnahagsumsvif. Það mætti meðal annars rekja til hækkunar á opinberum gjöldum og kjarasamningsbundinna launahækkana í ársbyrjun. Þá hafi hækkun á olíuverði vegna átaka í Miðausturlöndum leitt til aukinna verðbólguvæntinga. Seðlabankastjóri segir það vera sameiginlegt verkefni atvinnurekenda og launþega að sýna ábyrgð

6
01:35

Vinsælt í flokknum Fréttir