Nott. Forest - Arsenal 0-1
Englandsmeistarar Arsenal gerðu eitthvað sem þeir gerðu ekki á síðasta tímabili þegar liðið varð meistari, það er að vinna útileik gegn Nottingham Forest. Noni Madueke reyndist hetja Arsenal í dag. Hann kom inn á sem varamaður í seinni hálfleik og skoraði sigurmarkið seint í leiknum. Lokatölur 1-0 sigur Arsenal sem er áfram þremur stigum frá toppliði Manchester City.