Stjórnvöld þurfi að gyrða sig í brók
Forsvarsmaður áfengisnetverslunarinnar Smáríkisins hefur verið sakfelldur fyrir að hafa selt hvítvínsbelju og er talinn hafa brotið gegn einkaleyfi Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins til smásölu áfengis á Íslandi. Þetta fyrsti dómurinn sem fellur í máli er varðar lögmæti fyrirkomulagsins sem fjöldi netverslana hefur viðhaft við sölu á áfengis hér á landi á síðastliðnum árum.