Hætta aðgerðum við Þingvallavatn í dag vegna íss Ákveðið hefur verið að hætta aðgerðum við Þingvallavatn í dag þar sem stefnt var að því að ná flugvélinni TF-ABB af botni vatnsins. Ís er nú upp í fjögurra sentimetra þykkur og það sem brotið er leggur jafnharðan. Innlent 11. febrúar 2022 11:43
Allir hinir látnu fundnir: Sóttu líkin með kafbáti vegna erfiðra aðstæðna Aðstæður til köfunar í Þingvallavatni þóttu of erfiðar köfurum í dag vegna mikils kulda og ísmyndunar á Þingvallavatni. Því var smákafbátur með myndavélabúnaði og griparm notaður til að sækja lík þeirra sem létust í flugslysinu í síðustu viku. Innlent 10. febrúar 2022 17:48
Þremur náð á land og leit stendur yfir að þeim fjórða Smákafbátur hefur verið notaður við Þingvallavatn í dag til að sækja hina látna á botn vatnsins. Smákafbáturinn var notaður vegna þess að aðstæður voru metnar verulega hættulegar fyrir kafara. Innlent 10. febrúar 2022 14:37
Ísilagt Þingvallavatn og ólíklegt að kafað verði í dag Ólíklegt er að hægt verði að ná einhverjum hinna fjögurra sem létust eftir flugslys upp úr Þingvallavatni í dag. Vatnið er ísilagt og hreyfir varla vind. Til stendur að reyna að brjóta upp ísinn í dag og vonandi verði þá hægt að ráðast í aðgerðir sem fyrst. Innlent 10. febrúar 2022 11:50
Tuttugu og tveir kafarar taka þátt Ríflega tuttugu kafarar koma að því að ná þeim sem fórust með flugvélinni í Þingvallavatni og flugvélinni sjálfri upp á yfirborðið. Aðgerðin sem hefst í fyrramáli er mjög flókin þar sem kafarar geta ekki athafnað sig nema í örfáar mínútur á svo miklu dýpi og kulda. Innlent 9. febrúar 2022 19:08
Þingvallavegi lokað vegna aðgerða á fimmtudag og föstudag Þingvallavegur verður lokaður fyrir alla almenna umferð á fimmtudag og föstudag frá klukkan átta á morgnanna og fram eftir degi, á meðan aðgerðir viðbragðsaðila standa þar yfir. Innlent 9. febrúar 2022 18:31
Ryðja, tjalda og koma upp þyrlulendingarstað við Þingvallavatn Gert er ráð fyrir að fimmtíu til sextíu manns muni taka þátt í aðgerðum við Þingvallavatn á morgun. Um tuttugu manns vinna nú að því að setja upp vinnubúðir og aðstöðu við vatnið og er áætlað að aðgerðir hefjist klukkan níu í fyrramálið ef veður leyfir. Innlent 9. febrúar 2022 16:36
Gögn sem sýndu staðsetningu vélarinnar hafi gengið manna á milli en ratað seint til lögreglu Mikilvæg gögn, sem reyndust sýna nákvæmlega hvar flugvélina sem leitað var að í síðustu viku var að finna, gengu manna á milli en rötuðu ekki til þeirra sem stjórnuðu leitinni fyrr en seinna. Innlent 8. febrúar 2022 06:27
Segir gríðarlega mikilvægt að komast sem fyrst að flugvélinni Rannsakandi hjá Rannsóknarnefnd samgönguslysa segir gríðarlega mikið að komast að flugvélinni sem liggur á botni Þingvallavatns sem fyrst. Stefnt er að því að hefja aðgerðir við að ná flugvélinni þegar veður leyfir, líklega seint í þessari viku. Innlent 7. febrúar 2022 20:16
Sást til flugvélarinnar á myndbandsupptökum Lögreglan á Suðurlandi hefur til rannsóknar myndbandsupptökur sem sýna flugvélina TF-ABB, sem fórst í Þingvallavatni á fimmtudag, fljúga yfir vatnið. Innlent 7. febrúar 2022 17:48
Reyna ekki að ná þeim látnu upp fyrr en í fyrsta lagi á fimmtudag Lík flugmanns og þriggja farþega sem voru um borð í flugvélinni TF-ABB fundust um það bil 300 metrum frá flugvélaflakinu og á minnst 37 metra dýpi. Innlent 6. febrúar 2022 22:20
Búið að finna öll fjögur líkin Búið er að finna lík flugmannsins og farþeganna þriggja sem voru um borð í flugvélinni TF-ABB. Þetta staðfestir Oddur Árnason, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Suðurlandi, í samtali við fréttastofu en umfangsmikil leit hefur farið fram í og við Þingvallavatn í dag. Innlent 6. febrúar 2022 19:29
Vísbending um að lík sé fundið í Þingvallavatni Kafarar sérsveitar ríkislögreglustjóra og Landhelgisgæslunnar kafa nú í Þingvallavatni til að kanna með vísbendingu sem fékkst í sónarmynd frá Gavia-kafbát á vatninu. Innlent 6. febrúar 2022 17:40
Leita í kappi við tímann með kafbáti og drónum Leit að þeim fjórum sem voru um borð í flugvélinni sem fannst í Þingvallavatni hófst aftur í morgun. Leitað er á vatninu og við það og nú er séraðgerðasveit Landhelgisgæslunnar að mæta á svæðið til að leita í því með kafbáti. Ofsaveður skellur á við svæðið í nótt. Innlent 6. febrúar 2022 10:00
Enginn inni í flugvélaflakinu og leit hefst aftur á morgun Enginn þeirra fjögurra farþega sem voru í flugvélinni sem fannst í Þingvallavatni eru nú inni í flakinu. Þetta leiddi kafbátaleit í ljós seinni partinn í dag. Svæðisstjórn björgunarsveita er byrjuð að skipuleggja áframhaldandi leit í og við vatnið á morgun. Innlent 5. febrúar 2022 21:56
Forgangsatriði að ná hinum látnu upp á yfirborðið Vont veður og erfiðar aðstæður við Þingvallavatn valda því að ólíklega verður hægt að hífa flugvélina sem fannst í gær upp úr vatninu fyrr en seint í næstu viku. Til skoðunar er þó hvort hægt verði að sækja þá látnu úr brakinu fyrr. Innlent 5. febrúar 2022 18:17
Ná í fyrsta lagi í vélina seint í næstu viku Miðað við fyrirliggjandi veðurspá er útlit fyrir að veðurskilyrði til þess að hefja aðgerðir við að ná flugvélinni sem fannst á botni Þingvallavatns í nótt upp á yfirborðið verði ekki til staðar fyrr en í seinni hluta næstu viku. Innlent 5. febrúar 2022 14:58
Þurfa tveggja sólarhringa veðurglugga til þess að ná vélinni á land Sérsveit ríkislögreglustjóra og Landhelgisgæslan þurfa minnst tvo sólarhringa af hagstæðum veðurskilyrðum til þess að ná flaki vélarinnar sem fannst í nótt á botni Þingvallavatns upp á yfirborðið. Aðgerðinni fylgja umtalsverðar hættur fyrir björgunarliðið. Innlent 5. febrúar 2022 13:45
Veðurskilyrði slæm og flugvélin verður ekki sótt í dag Flugvélin sem fannst á botni Þingvallavatns í gærkvöldi verður ekki sótt í dag. Gríðarlega flókið verkefni bíður viðbragðsaðila; vélin er á 50 metra dýpi á svæði sem er hættulegt fyrir kafara að komast að og veðurskilyrði slæm næstu daga. Innlent 5. febrúar 2022 10:41
Flugvélin sem leitað var að fannst í Þingvallavatni Flugvélin sem saknað hefur verið frá því um hádegisbil á fimmtudag er fundin. Vélin fannst með fjarstýrðum kafbát fyrirtækisins Teledyne Gavia í Ölfusvatnsvík, í sunnanverðu Þingvallavatni, á ellefta tímanum í kvöld. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni. Innlent 5. febrúar 2022 01:14
Eyrugla stoppuð upp á Selfossi og fer í Grímsnes Eyrugla, sem fannst dauð við sumarbústað í Grímsnesi síðasta sumar fær nú nýtt hlutverk því hún hefur verið stoppuð upp og fer aftur í Grímsnesið. Hamskeri, sem sá um verkið, segir mjög vandasamt að stoppa upp uglur. Innlent 4. febrúar 2022 21:00
„Við hættum ekki fyrr en við finnum eitthvað“ Björgunarsveitarmaður sem hefur leitað flugvélar sem týnd hefur verið frá því fyrir hádegi í gær segir leitarskilyrði vera gífurlega erfið við Þingvallavatn. Þó muni leitarfólk ekki hætta leit fyrr en vélin finnst. Innlent 4. febrúar 2022 20:11
Einbeita sér að svæðinu þar sem olíubrákin fannst Oddur Árnason, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Suðurlandi, segir leitina að flugvéli sem ekkert hefur spurst til síðan í gær í sjálfu sér hafa gengið vel. Líklega sé um að ræða fjölmennustu leitaraðgerðir Íslandssögunnar. Innlent 4. febrúar 2022 16:00
Leit frestað til tíu í fyrramálið Leit stendur enn yfir að flugvél með fjóra innanborðs sem ekkert hefur spurst til í rúman sólarhring. Flugvélin fór í loftið frá Reykjavíkurflugvelli um klukkan hálf ellefu í gær en um var að ræða útsýnisflug íslensks flugmanns með þrjá erlenda ferðamenn. Innlent 4. febrúar 2022 06:26
Umfangsmikil leitaraðgerð vegna týndrar flugvélar Umfangsmikil leit stendur yfir að lítilli flugvél sem fór í loftið frá Reykjavík á ellefta tímanum í morgun og ekki spurst til síðan. Þrír farþegar voru í vélinni auk flugmanns. Innlent 3. febrúar 2022 14:08
Hætta við frekari lokanir á heitu vatni Veitur hafa hætt við að ráðast í frekari lokanir fyrir heitt vatn á höfuðborgarsvæðinu. Vel hefur gengið að koma framleiðslu á heitu vatni í gang en bilun kom upp í Nesjavallavirkjun fyrr í dag. Innlent 28. janúar 2022 17:39
Loka fyrir heitt vatn í hluta Kópavogs og Garðabæjar vegna bilunar Heildarframleiðslugeta á heitu vatni fyrir hitaveitu höfuðborgarsvæðisins er skert um 30% vegna bilunar í Nesjavallavirkjun. Engin framleiðsla er á vatni á Nesjavöllum eins og stendur. Innlent 28. janúar 2022 14:06
Skerða afhendingu rafmagns eftir sprengingu í tengivirki á Nesjavöllum Sprenging varð í tengivirki Landsnets á Nesjavöllum rétt fyrir klukkan sex í morgun með þeim afleiðingum að þremur af fjórum aflvélum Nesjavallavirkjunar sló út. Innlent 28. janúar 2022 09:58
Vilja hjúkrunarheimili í uppsveitir Árnessýslu Sveitarfélögin í Uppsveitum Árnessýslu hafa óskað eftir viðræðum við heilbrigðisráðuneytið um að það verði byggt hjúkrunarheimili á svæðinu. Fimmtán prósent íbúa sveitarfélaganna eru 65 ára eða eldri. Innlent 2. janúar 2022 13:31
Ítrekað kallaðir út vegna sinuelda í Árnessýslu sem raktir voru til óleyfisbrenna Liðsmenn Brunavarna Árnessýslu þurftu að sinna alls 54 útköllum, meðal annars vegna gróðurelda sem blossuðu upp víða í umdæminu, í gærkvöldi og í nótt. Innlent 1. janúar 2022 13:54