HM í fótbolta 2026

HM í fótbolta 2026

HM í fótbolta karla fór fram í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó dagana 11. júní til 19. júlí 2026. Spánverjar stóðu uppi sem heimsmeistarar.

Leikirnir




    Fréttamynd

    FIFA breytti því hvernig stöðutöflur virka á HM

    Lítilsháttar breyting hefur verið gerð á því hvernig Alþjóðaknattspyrnusambandið, FIFA, raðar þjóðum upp í stöðutöflum á heimsmeistaramótinu í sumar og hún gæti haft gríðarleg áhrif á síðustu leiki riðlakeppninnar.

    Fótbolti
    Fréttamynd

    Leggja inn kvörtun til FIFA vegna Messi

    Alsír hefur sent formlega kvörtun til Alþjóðaknattspyrnusambandsins, FIFA, vegna „ranglætis af hálfu dómarans“ í opnunarleiknum gegn Argentínu á HM. Heimildarmaður innan alsírska knattspyrnusambandsins upplýsti fréttastofuna AFP um kvörtunina á föstudag.

    Fótbolti
    Fréttamynd

    Herinn kallaður á æfingu á HM

    Suður-Kóreumenn telja sig vera fórnarlamb njósna í aðdraganda næsta leiks liðsins á heimsmeistaramótinu sem er einmitt á móti gestgjöfunum og er gríðarlega mikilvægur fyrir báðar þjóðir.

    Fótbolti
    Fréttamynd

    HM-framherji fær ekki að koma til Kanada

    Elye Wahi, framherji Fílabeinsstrandarinnar, sem er til rannsóknar vegna gruns um hagræðingu úrslita, fær ekki að ferðast til Kanada fyrir leikinn gegn Þýskalandi á heimsmeistaramótinu á laugardag.

    Fótbolti
    Fréttamynd

    Henry gagn­rýnir Ronaldo harð­lega

    Thierry Henry, fyrrverandi leikmaður Barcelona og Arsenal, gagnrýndi Cristiano Ronaldo harðlega eftir leik Portúgal í gær. Hann segir Ronaldo vera sjálfselskann og ekki hjálpa liðinu.

    Fótbolti
    Fréttamynd

    Spila æfingarleik á meðan HM stendur

    Þeir þrettán leikmenn enska landsliðsins sem ekki komu ekkert eða lítið sem ekkert við sögu í sigri liðsins gegn Króatíu í fyrsta leik liðanna á HM í gær munu spila æfingarleik gegn Sporting Kansas City í dag. 

    Fótbolti
    Fréttamynd

    Eiður lagði síma­númer Messi undir í veð­máli við Albert

    Eiður Smári Guðjohnsen, einn allra besti fótboltamaður Íslands frá upphafi og núverandi sparkspekingur, er fullviss um að Argentína nái lengra en Portúgal á yfirstandandi heimsmeistaramóti. Svo viss er hann að Eiður lagði símanúmer Messi undir í veðmáli við Albert Brynjar Ingason í beinni útsendingu á RÚV í gær. 

    Fótbolti
    Fréttamynd

    Stuðnings­menn baula á vatnspásurnar

    Áhorfendur á heimsmeistaramótinu í fótbolta eru byrjaðir að baula í vatnspásum leikja. Þeir eru ekki ánægðir með þessa þróun og segja að verið sé að skipta fótbolta í fjóra leikhluta.

    Fótbolti