Íran

Íran

Höfuðborg: Teheran. Mannfjöldi: 89,6 milljónir (2025). Flatarmál: 1.648.195 ferkílómetrar.

Fréttamynd

Trump gefur Írönum tveggja daga niðurtalningu

Donald Trump Bandaríkjaforseti segist gefa Íran 48 klukkustundir til þess að opna Hormússundið að fullu, án nokkurrar ógnar. Verði það ekki gert muni Bandaríkin hæfa og gjöreyða ýmsum orkuinnviðum Írana.

Erlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Í­hugar að draga úr hernaði í Íran

Donald Trump forseti Bandaríkjanna segir Bandaríkjaher nálægt því að ná markmiðum sínum í Íran, og segist huga að því að draga úr hernaði þar sem hófst í lok síðasta mánaðar.

Erlent
Fréttamynd

Felldu enn einn ráð­herrann: Reyna að ryðja leiðina fyrir Írani en gætu eflt herinn

Ísraelar segjast hafa fellt enn einn ráðherrann í Íran. Að þessu sinni er um að ræða Esmaeil Khatib, ráðherra leyniþjónustumála í Íran, en fyrr í vikunni felldu þeir Ali Larijani, forseta þjóðaröryggisráðs Íran, sem var talinn vera raunverulegur stjórnandi landsins eftir að æðstiklerkurinn Ali Khamenei var ráðinn af dögum fyrir rúmum tveimur vikum.

Erlent
Fréttamynd

Hóta hefndum fyrir drápið á Larijani

Að minnsta kosti tveir létust þegar Íranir skutu eldflaugum með klasasprengjum á Tel Aviv í nótt. Ríkismiðlar í Íran sögðu um að ræða hefndarárás vegna dráps Ísraelsmanna á Ali Larijani, yfirmanni öryggismála og einum helsta ráðgjafa Ali Khamenei.

Erlent
Fréttamynd

„Við þurfum ekki hjálp frá neinum!“

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, segir ráðamenn í bandalagsríkjum Bandaríkjanna í Atlantshafsbandalaginu flesta hafa gert sér ljóst að þeir muni ekki taka þátt í hernaðaraðgerðum gegn klerkastjórninni í Íran. Forsetinn segir þetta ekki koma sér á óvart, þar sem hann hafi lengi talið NATO vera einstefnugötu. Þá segir hann að Bandaríkin hafi ekki þurft hjálp þeirra og þurfi ekki hjálp frá neinum.

Erlent
Fréttamynd

Íranar reyna að færa leikina til Mexíkó

Enn ríkir óvissa um þátttöku landsliðs Írans á HM karla í fótbolta í sumar. Knattspyrnusamband landsins á í viðræðum við yfirvöld í Mexíkó um að spila leiki liðsins þar, fremur en í Bandaríkjunum.

Fótbolti
Fréttamynd

Segjast hafa sent tvo hátt­setta Írani til „dýpstu kima hel­vítis“

Varnarmálaráðherra Ísrael segir að Ali Larijani, forseti þjóðaröryggisráðs Íran, hafi verið felldur í loftárás í nótt. Þá segjast Ísraelar einnig hafa banað yfirmanni Basij-sveitanna svokölluðu en það eru sveitir sjálfboðaliða sem heyra undir íranska byltingarvörðinn. Þessar sveitir hafa verið sakaðar um umfangsmikil ódæði gegn mótmælendum í Íran.

Erlent
Fréttamynd

Á­rás gerð á sendi­ráð Banda­ríkjanna í Baghdad

Árásir Írana á skotmörk í nágrannaríkjunum héldu áfram í nótt og í morgun og sömuleiðis árásir Ísraelsmanna á skotmörk í Líbanon. Drónaárás var gerð á sendiráð Bandaríkjanna í Baghdad í Írak og þá var gerð árás á lúxushótel í borginni sem er vinsælt meðal erlendra diplómata.

Erlent
Fréttamynd

Banda­menn taka fá­lega í aðstoðarkröfur Trumps

Bandamenn Bandaríkjanna í Evrópu og Asíu hafa tekið kröfum Trumps um að þeir sendi herskip til Mið-Austurlanda og aðstoði Bandaríkjamenn við að halda Hermússundi opnu af varkárni og með efasemdum. Bandaríkjamenn sögðu bandamönnum sínum ekki frá ætlunum sínum varðandi Íran.

Erlent
Fréttamynd

Vilja tækni og peninga fyrir að­stoð gegn írönskum drónum

Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir Úkraínumenn þurfa peninga og tækni frá Mið-Austurlöndum í skiptum fyrir tæknilega aðstoð og þekkingu hvað varðar varnir gegn írönskum sjálfsprengidrónum. Þrjú teymi úkraínskra sérfræðinga hafa verið send til Mið-Austurlanda til að aðstoða hermenn og ráðleggja þeim varðandi hvernig best sé að verjast drónunum, sem Úkraínumenn hafa verið að verjast um árabil.

Erlent
Fréttamynd

Hóta að svipta fjöl­miðla leyfinu vegna um­fjöllunar um stríðið

Stjórnarformaður Fjarskiptastofnunar Bandaríkjanna hótar að svipta fjölmiðla leyfinu eftir að bandarískt dagblað birti frétt um að Íranir hefðu gert árás á bandarískar herflugvélar í Sádí-Arabíu. Trump-liðar hafa lýst mikilli óánægju vegna umfjöllunar fjölmiðla um stríðið í Íran.

Erlent
Fréttamynd

Hóta höfnum eftir á­rás á „krúnudjásnið“

Bandaríkin gerðu árás á aðalútflutningshöfn Írana í nótt og írönsk stjórnvöld hóta nú að ráðast á hafnir í Sameinuðu arabísku furstadæmunum, sem gæti valdið talsverðri stigmögnun á stríðinu í Mið-Austurlöndum. Bandaríkjaforseti heldur því fram að Bretar, Kínverjar og Frakkar ætli meðal annars að aðstoða við að tryggja örugga olíuflutninga um Hormússund en téð ríki eiga enn eftir að staðfesta það. Enn hefur ekkert sést til æðstaklerks Írans.

Erlent
Fréttamynd

Allir sex látnir eftir að her­flug­vél brot­lenti í Írak

Allir sex í áhöfn bandarískrar eldsneytisflutningaflugvélar sem brotlenti í Írak í gær eru látnir. Ástæður slyssins eru enn til rannsóknar en svo virðist sem tvær flugvélar af gerðinni KC-135 hafi skollið saman við dælingu eldsneytis í háloftunum yfir Írak í gær. Önnur hafi þá hrapað til jarðar en flugmönnum hinnar tókst að lenda í Ísrael.

Erlent
Fréttamynd

Franskur her­maður féll í drónaárás í Írak

Emmanuel Macron, forseti Frakklands, fordæmdi í nótt drónaárás í norðurhluta Íraks. Nokkrir franskir hermenn særðust og einn yfirmaður lét lífið í árásinni. Hermennirnir hafa verið að þjálfa írakska Kúrda í að berjast gegn vígahópum á svæðinu.

Erlent
Fréttamynd

Banda­rísk her­flug­vél fórst í Írak

Björgunaraðgerðir eru hafnar eftir að bandarísk herflugvél sem ætlað var að flytja eldsneyti fórst í Írak. Þetta kemur fram í tilkynningu sem yfirstjórn herafla Bandaríkjanna í Miðausturlöndum sendi frá sér í dag. Þar greinir einnig frá því að tvær herflugvélar hafi átt hlut að máli en að önnur þeirra hafi lent heilu og höldnu á meðan hin fórst í vesturhluta Íraks.

Erlent
Fréttamynd

Khamenei heitir því að halda Hormússundi lokuðu

Mojtaba Khamenei, sem tók nýverið við embætti æðstaklerks Íran af föður sínum, heitir því að halda Hormússundi lokuðu. Hann segir einnig að árásir á nágrannaríki Íran muni halda áfram og þá sérstaklega á bandarískar herstöðvar í þessum ríkjum.

Erlent