KA ekki í vandræðum með Ólafsvík KA vann 5-0 sigur á Víking Ólafsvík er liðin mættust í Akraneshöllinni í dag. KA er því komið á blað í riðli eitt en Ólafsvíkingar eru án stiga. Íslenski boltinn 20. febrúar 2021 18:19
Sjáðu lokakaflann ótrúlega í leik KA og Vals Lokakaflinn í leik KA og Vals í Olís-deild karla í gær verður lengi í minnum hafður. KA-menn voru fjórum mörkum undir þegar tvær og hálf mínúta var eftir en náðu samt jafntefli, 27-27. Handbolti 19. febrúar 2021 15:01
Umfjöllun og viðtöl: KA - Valur 27-27 | Ótrúleg endurkoma skilaði KA-mönnum stigi KA og Valur skildu jöfn eftir æsilegar lokamínútur í KA-heimilinu á Akureyri í kvöld. Handbolti 18. febrúar 2021 21:48
„Eins mikill ruðningur og þeir verða“ Sérfræðingar Seinni bylgjunnar voru sammála um að sigurmark KA gegn ÍBV í Olís-deild karla í gær hafi verið ólöglegt. Handbolti 16. febrúar 2021 09:31
Dramatískur sigur KA í Eyjum KA gerði sér lítið fyrir og sótti tvö stig til Eyja er þeir unnu 29-28 sigur á heimamönnum í Olís-deild karla í kvöld. Handbolti 15. febrúar 2021 19:40
Síðasta sambærilega dæmið frá 2007 og þá stóðu úrslitin Kæra handknattleiksdeildar Stjörnunnar á úrslitum í leik gegn KA/Þór í Olís-deild kvenna á laugardaginn er komin inn á borð dómstóls HSÍ. KA/Þór vann leikinn, 26-27, en mistök á ritaraborði urðu til þess að eitt marka liðsins var oftalið. Síðasta sambærilega dæmið um að úrslit hafi verið kærð vegna rangrar skráningar marka er frá 2007. Handbolti 15. febrúar 2021 11:31
Garðbæingar kæra eigin framkvæmd - Óska eftir jafntefli Stjórn handknattleiksdeildar Stjörnunnar hefur kært framkvæmd leiks Stjörnunnar og KA/Þór í Olís-deild kvenna sem fram fór í gær. Handbolti 14. febrúar 2021 19:31
Þór/KA skoraði fimm í Norðurlandsslagnum - Þróttur lagði KR Tveir leikir fóru fram í A-deild Lengjubikarsins í kvennaflokki í fótbolta í dag þar sem þrjú lið úr Pepsi-Max deildinni voru í eldlínunni. Íslenski boltinn 14. febrúar 2021 17:03
Draugamark í Garðabæ í sigri KA/Þór KA/Þór vann dramatískan sigur á Stjörnunni í gær. Samkvæmt heimasíðu Handknattleikssambandsins endaði leikurinn 27-26 en norðanstúlkur virðast bara hafa skorað 26 mörk í leiknum. Handbolti 14. febrúar 2021 11:10
Topplið KA/Þór lagði Stjörnuna með minnsta mun Eitt mark skildi lið Stjörnunnar og KA/Þórs að í Olís-deild kvenna í handbolta í dag. Handbolti 13. febrúar 2021 17:56
Birkir Már sá um KA - Mikið skorað í Lengjubikarnum Það rigndi mörkum í fyrstu umferð A-deildar Lengjubikars karla en tveimur leikjum er nýlokið og þar af einum úrvalsdeildarslag. Fótbolti 13. febrúar 2021 17:09
KA áfram í bikarnum eftir sigur á grönnunum KA er komið áfram í sextán liða úrslit Coca Cola bikarsins í handbolta eftir 26-23 sigur á grönnum sínum í Þór er liðin mættust í Höllinni á Akureyri í kvöld. Handbolti 10. febrúar 2021 20:55
Spjald þjálfarans festist við rassinn á Rut og fór með henni inn á völlinn Rut Jónsdóttir tók leikhléssspjald þjálfara síns með inn á völlinn í miðjum leik í Olís deildinni í handbolta um helgina án þess að hafa hugmynd um það. Einn maður var fyrstur að átta sig. Handbolti 9. febrúar 2021 09:30
ÍR skoraði ekki í sextán mínútur gegn KA og klúðraði þrettán sóknum í röð ÍR átti í miklum vandræðum í sókninni gegn KA í Olís-deild karla í gær. ÍR-ingar töpuðu leiknum með helmingsmun, 32-16, og skoruðu ekki í sextán mínútur í seinni hálfleik. Handbolti 8. febrúar 2021 15:31
Umfjöllun og viðtöl: KA - ÍR 32-16 | KA-menn léku sér að Breiðhyltingum KA-menn áttu ekki í neinum vandræðum með botnlið ÍR í Olís-deild karla í dag. Handbolti 7. febrúar 2021 18:00
Daníel Hafsteinsson snýr aftur heim Daníel Hafsteinsson er genginn til liðs við uppeldisfélag sitt, KA, frá sænska úrvalsdeildarliðinu Helsingborg. Íslenski boltinn 6. febrúar 2021 18:19
Umfjöllun og viðtöl: KA/Þór - ÍBV 24-23 | KA/Þór á toppinn eftir dramatískan sigur KA/Þór komst á topp Olís-deildar kvenna eftir ótrúlegan eins marks sigur á ÍBV á heimavelli í dag. Lokatölur 24-23 þar sem Ásdís Guðmundsdóttir skoraði sigurmarkið úr vítakasti undir lok leiks. Handbolti 6. febrúar 2021 15:30
Aukakastið sem leiddi til vítisins umdeilda ranglega tekið Að sjálfsögðu var farið yfir vítakastið umdeilda sem var dæmt í blálokin á leik FH og KA í Olís-deild karla í Seinni bylgjunni í gær. Handbolti 5. febrúar 2021 13:01
Sjáðu vítadóminn sem FH-ingar voru svo reiðir yfir FH-ingar voru langt frá því að vera sáttir með vítið sem var dæmt á þá undir lok leiksins gegn KA-mönnum í Olís-deildinni í gær. Handbolti 4. febrúar 2021 15:02
Umfjöllun og viðtöl: FH - KA 31-31 | Allt á suðupunkti í Krikanum FH og KA skildu jöfn 31-31 þegar liðin mættust í Kaplakrika í sjöundu umferð Olísdeildar karla í handbolta . KA jafnaði metin úr umdeildu vítakasti þegar leiktíminn var liðinn og allt gjörsamlega á suðupunkti í Krikanum. Handbolti 3. febrúar 2021 20:57
Martha ætlar að vera skynsamari en eftir sterasprautuna í desember Þjálfari KA/Þór var búinn að afskrifa fyrirliða sinn á þessu tímabili en Martha Hermannsdóttir vonast til að það séu bara fjórar vikur í sig. Handbolti 2. febrúar 2021 13:01
Martha hlær að umfjölluninni um elliheimilið og er ekkert að fara að hætta Handboltakonan Martha Hermannsdóttir er óleikfær eins og er en hún er hvergi nærri hætt í handbolta og finnst umræðan um aldur handboltakvenna vera á villigötum. Handbolti 2. febrúar 2021 10:01
„Í alvöru talað, hvað var þetta Jói?“ KA-menn buðu mögulega upp á klúður ársins í tapleiknum á móti Aftureldingu í KA-húsinu í síðustu umferð Olís deild karla í handbolta. Handbolti 1. febrúar 2021 12:31
Hendrickx orðinn leikmaður KA Belgíski bakvörðurinn Jonathan Hendrickx, sem leikið hefur með FH og Breiðabliki hér á landi, er á leið aftur til Íslands og mun spila með KA á komandi leiktíð. Íslenski boltinn 1. febrúar 2021 11:55
Umfjöllun og viðtöl: KA/Þór - Fram 27-23 | Aftur hafði KA/Þór betur gegn Fram KA/Þór vann góðan sigur á Fram í KA heimilinu í dag. Fyrir leikinn sátu liðin í þriðja og fjórða sæti Olísdeildar kvenna bæði með 8 stig en leikurinn átti eftir að vera hraður og skemmtilegur. Jafnræði var með liðunum til að byrjað með en í stöðunni 3-3 skoruðu gestirnir tvö mörk. Handbolti 30. janúar 2021 16:29
Óvænt úrslit í Safamýri, endurkoma fyrir norðan og Grótta vann sex stiga leikinn Olís deild karla er byrjuð að rúlla á nýjan leik. Deildin fór af stað um helgina eftir ansi langa pásu, bæði vegna kórónuveirunnar og HM, en í gær fóru fram þrír leikir. Handbolti 29. janúar 2021 18:31
Umfjöllun: KA - Afturelding 24-25 | Gestirnir áfram taplausir KA mætti Aftureldingu, eina taplausa liðinu í Olís-deild karla, en leikurinn var mikið fyrir augað. Rosaleg spenna var undir lokin. Handbolti 28. janúar 2021 21:00
Umfjöllun og viðtöl: Valur - KA/Þór 23-23 | Jafnt í toppslagnum á Hlíðarenda KA/Þór sótti stig á Hlíðarenda í háspennuleik. Frábær skemmtun frá fyrstu mínútu. Handbolti 26. janúar 2021 19:55
Belgi til liðs við KA KA hefur samið við belgíska miðjumanninn Sebastiaan Brebels um að spila með liðinu á komandi knattspyrnuleiktíð. Íslenski boltinn 21. janúar 2021 12:13
HK átti aldrei möguleika á Akureyri þar sem heimastúlkur fóru á toppinn KA/Þór vann öruggan tólf marka sigur á HK í Olís-deild kvenna í handbolta í kvöld, lokatölur 31-19. Handbolti 19. janúar 2021 19:34