Lögreglumál

Lögreglumál

Fréttir af verkefnum lögreglunnar á Íslandi.

Fréttamynd

Sérsveitin kölluð út vegna vopnaðs manns

Sérsveit ríkislögreglustjóra var kölluð út til aðstoðar lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu við útkall á Frakkastíg við Hverfisgötu. Tilkynnt var um mann vopnaðan hníf. Hann hafði ekki uppi ógnandi framferði og engan sakaði.

Innlent
Fréttamynd

Sári djúpt snortinn yfir stuðningi

Sári Morg Gergó, ungverskur karlmaður sem slasaðist illa í brunanum á Hjarðarhaga fyrir tveimur vikum, er á góðum batavegi. Hann segir brunasár á líkamanum gróa vel. Síðustu tvær vikur hafi verið rússíbanareið.

Innlent
Fréttamynd

Ofur­ölvi þjófur gisti í fanga­geymslu

Lögregluþjónar á höfuðborgarsvæðinu stöðvuðu nokkra ökumenn í gærkvöldi og í nótt vegna gruns um að þeir væru undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Þó virðist nóttin hafa verið róleg ef marka má dagbók lögreglu. Þar kemur fram að tveir hafi gist fangageymslur í nótt og að 69 mál hafi verið skráð í kerfi lögreglu frá fimm seinni partinn í gær til fimm í morgun.

Innlent
Fréttamynd

Hrotta­legu of­beldi lýst í á­kæru á hendur Stefáni, Lúkasi og Matthíasi

Þeir Stefán Blackburn, Lúkas Geir Ingvarsson og Matthías Björn Erlingsson hafa verið ákærðir fyrir manndráp í Gufunessmálinu svokallaða. Í ákærunni er hrottalegu ofbeldi mannanna í garð karlmanns á sjötugsaldri lýst. Þeir hafi til að mynda brotið fimm tennur í manninum eftir að hafa numið hann á brott frá heimili hans. 

Innlent
Fréttamynd

Heimurinn undrist villi­mennsku Ís­lendinga

Ákæra á hendur Anahitu Sabaei og Elissu Bijou verður þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur klukkan tíu í fyrramálið en þær eru ákærðar fyrir að hafa hlekkjað sig við mastur hvalskipa í mótmælaskyni, fyrir tæpum tveimur árum síðan. Þær segjast hluti af íslenskri hreyfingu með langa sögu að baki sér og að málið snúist um rétt borgara til friðsamlegra mótmæla.

Innlent
Fréttamynd

Á­kærðir fyrir mann­dráp, frelsis­sviptingu og rán

Ákærur fyrir manndráp, frelsissviptingu og rán á hendur þremur sakborningum í Gufunessmálinu svokallaða voru lagðar fram í þinghaldi í morgun, þar sem farið var yfir áframhaldandi gæsluvarðhald yfir tveimur þeirra. Ekki þurfti að fara fram á varðhald yfir þeim þriðja, þar sem hann afplánar nú eldri refsingu. Karl og kona eru einnig ákærð í málinu. 

Innlent
Fréttamynd

Á­kærðar tveimur árum eftir tunnumót­mælin

Á morgun verður þingfest ákæra í héraðsdómi Reykjavíkur gegn Anahitu Babaei og Elissu Bijou fyrir að hafa hlekkjað sig við tunnur Hvals 8 og Hvals 9 og setið þar sem fastast í mótmælaskyni þar til lögregla skarst í leikinn. Lögmenn kvennanna segja grundvallarreglur um meðalhóf og jafnræði hafa lotið í lægra haldi fyrir refsistefnu sem vegur að grunnstoðum réttarríkisins.

Innlent
Fréttamynd

Gæslu­varð­hald fram­lengt aftur

Gæsluvarðhald yfir konu á þrítugsaldri, sem grunuð er um að hafa ráðið föður sínum bana á heimili þeirra í Garðabæ, hefur verið framlengt um fjórar vikur, til 1. júlí, á grundvelli almannahagsmuna.

Innlent
Fréttamynd

„Ekki hægt að segja annað en fyrir­gefið“

Þríeykið að baki útvarpsþættinum FM95Blö segist harma innilega að fólk hafi slasast á tónleikum sem haldnir voru í þeirra nafni. Þeir segjast ekki hafa viljað ræða við fjölmiðla strax þar sem þeir hafi ekki haft upplýsingar um nákvæmlega hvað hefði gerst. Þetta kom fram í hlaðvarpsþætti þeirra sem birtist í dag.

Innlent
Fréttamynd

Notkun rafbyssa í sam­ræmi við mark­mið

Tvöföldun hefur orðið á milli ársfjórðunga á þeim tilvikum þar sem lögreglumenn hafa tekið upp rafbyssur við handtöku en slíku vopni hefur þrisvar verið beitt á fyrsta ársfjórðungi á þessa árs. Lögreglufulltrúi segir að notkunin sé í samræmi við markmið lögreglu þegar vopnin voru fyrst tekin til notkunar.

Innlent
Fréttamynd

„Auddi, Steindi og Egill voru í markaðs­málum“

Forsvarsmaður félagsins sem stóð að skipulagi umtalaðra tónleika FM95Blö á laugardag, þar sem mikill troðningur skapaðist á tímabili og einhverjir slösuðust, segir engan hafa getað séð fyrir það sem gerðist á tónleikunum. Hann leggur áherslu á að þríeykið í FM95Blö hafi ekki komið að framkvæmd og skipulagi heldur markaðsmálum og undirbúningi.

Innlent
Fréttamynd

Turnarnir svínvirka en fegrunar­að­gerðir í far­vatninu

Lögreglufulltrúi í Reykjavík segir umdeilda varðturna sem komið hefur verið upp við Hallgrímskirkju og neðst á Skólavörðustíg virðast skila tilætluðum árangri. Tilkynningum um vasaþjófnað í grennd við turnana hafi snarfækkað. Unnið er að því að gera turnana eilítið huggulegri.

Innlent
Fréttamynd

Verða boðaðir á fund lög­reglu

Skipuleggjendur stórtónleika FM95BLÖ í Laugardalshöll um helgina þar sem mikill troðningur átti sér stað verða boðaðir á fund lögreglu í vikunni. Skipuleggjendur hafa ekki gefið kost á viðtölum í dag en formaður Bandalags íslenskra tónleikahaldara gagnrýnir þá harðlega og segir heppni að enginn hafi dáið.

Innlent
Fréttamynd

„Heppnir að enginn hafi dáið“

Formaður Bandalags íslenskra tónleikahaldara og tónleikahaldari hjá Senu segir félagana í FM95BLÖ hafa verið heppna að enginn hefði dáið þegar troðningur myndaðist á stórtónleikum sem þeir héldu undir formerkjum „Fermingarveislu aldarinnar.“ Skoða þurfi regluverkið í kringum tónleikahald.

Innlent
Fréttamynd

Ó­kunnugur nætur­gestur á Pat­reks­firði

Lögreglunni á Vestfjörðum barst á laugardagsmorgun tilkynning um sofandi ókunnugan mann í húsi í bænum. Sá gat ekki gefið góðar skýringar á því hvað hann var að gera í húsinu en var honum hjálpað á sinn rétta dvalarstað.

Innlent
Fréttamynd

Stutt pása hleypti öllu í bál og brand

Yfirmaður öryggisgæslu á tónleikum FM95Blö í Laugardalshöllinni í gær segir troðning hafa myndast þegar tíu þúsund manna salurinn tæmdist fram í anddyri hallarinnar vegna fimmtán mínútna pásu í dagskránni. Forðast hefði mátt ástandið með því að hleypa úr salnum á fleiri en einum stað og stýra dagskránni betur.

Innlent
Fréttamynd

Sig­ríður svarar gagn­rýni á störf lög­reglunnar á Suður­nesjum

Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri svaraði gagnrýni Úlfars Lúðvíkssonar, fyrrverandi lögreglustjóra, í tölvupósti til starfsmanna embættisins á þriðjudag. Þar sagði hún Úlfar ekki hafa sinnt sameiginlegu verkefni lögreglunnar og tollsins um farþegaeftirlit og því hafi samstarfinu verið rift.

Innlent