Sótti kíló af kókaíni á pósthúsið Sigurgeir Þorkelsson skrifar 21. ágúst 2026 11:22 Pottarnir fjórir bárust til landsins með póstsendingu en í þeim voru falin 1,3 kíló kókaíns. Myndin er úr safni. Vísir/Vilhelm Maður hefur í Héraðsdómi Reykjavíkur verið dæmdur til fimmtán mánaða fangelsisvistar fyrir að hafa mánudaginn 8. júní 2026 á pósthúsinu við Síðumúla í Reykjavík tekið á móti tæpum þrettán hundruð grömmum af kókaíni. Fíkniefnin hafði maðurinn í fórum sínum þegar lögreglan handtók hann síðar sama dag. Fíkniefnin voru falin í fjórum pottum sem bárust með póstsendingu til Íslands.
Maðurinn var ákærður fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot en styrkleiki kókaínsins var metinn áttatíu prósent og að það hafi verið ætlað til sölu og dreifingar í ágóðaskyni hérlendis. Hvorki er talið að maðurinn hafi verið eigandi umræddra fíkniefna né að hann hafi tekið þátt í skipulagningu á kaupum og innflutningi þeirra til Íslands, heldur er talið að hann hafi samþykkt að sækja efnin á pósthús hér á landi og afhenda þau til þriðja aðila gegn greiðslu. Maðurinn játaði brot sitt skýlaust fyrir dómi og samræmdist játning hans rannsóknargögnum málsins. Honum hefur þegar verið gerð fimmtán mánaða fangelsisrefsing og mun sá tími sem hann hefur setið í gæsluvarðhaldi vera þar dreginn frá. Maðurinn hefur setið í gæsluvarðhaldi frá því að hann var handtekinn þann 8. júní síðastliðinn. Maðurinn, sem er erlendur að uppruna, á engin fyrri brot á bakinu bæði hérlendis og í fæðingarlandi sínu og var tekið tillit til þess við ákvörðun refsingarinnar, auk játningar mannsins og þeirrar staðreyndar að hann var almennt samvinnuþýður við rannsókn málsins. Manninum ber að greiða allan sakarkostnað, þar af eru laun verjanda rúmlega þrettán hundruð þúsund auk þess sem rúmalega sjö hundruð þúsund króna fara í annan sakarkostnað.
Lögreglumál Fíkniefnabrot Dómsmál Pósturinn Mest lesið Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Erlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Innlent Trump samdi við Pútín um dísel Erlent Fleiri fréttir Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ Sjá meira