Þrír fluttir á slysadeild ofan af Hellisheiðinni eftir tvo árekstra Opnað hefur verið fyrir umferð um Hellisheiði en þar urðu tvö umferðarslys fyrr í dag. Veður er slæmt á heiðinni og skyggni samasem ekkert. Þrír voru fluttir á slysadeild til skoðunar eftir árekstrana. Innlent 15. mars 2026 16:26
Rúta út af og Þingvallavegi lokað Lokað hefur verið fyrir umferð um Þingvallaveg vegna umferðarslyss á Mosfellsheiði en þar hafnaði rúta fyrir utan veginn eftir að ökumaður missti stjórn á ökutækinu. Innlent 15. mars 2026 15:58
Tvö snjóflóð skammt frá byggð í Siglufirði Tvö snjóflóð hafa fallið skammt frá Siglufirði síðan í nótt. Leiðargarðar við bæinn hafa sannað gildi sitt og skýlt byggðinni frá snjóflóðum að sögn ofanflóðasérfræðings á svæðinu. Annað snjóflóðið var töluvert stórt. Innlent 15. mars 2026 15:46
Stærðar alda skolaði grjóti yfir bílaplanið við Reynisfjöru Stærðarinnar alda skall á bílastæðið við Reynisfjöru og skolaði grjóti á land. Bílastæðinu hefur verið lokað vegna flóðsins og gestur sagði hnullunga hafa skollið á bílum. Innlent 15. mars 2026 14:38
Hellisheiði er lokuð Umferðaróhapp varð á Hellisheiði og er vegurinn lokaður í báðar áttir í augnablikinu. Innlent 15. mars 2026 13:48
Ferðalangar í vandræðum víða um land vegna færðar Björgunarsveitir á Vestfjörðum og Reykjavík voru stóran hluta nætur að aðstoða ferðalanga sem voru í vandræðum sökum slæmrar færðar. Innlent 15. mars 2026 12:52
Snjóflóð þveraði veginn þegar opið var fyrir umferð Hættustig hefur verið sett á Flateyrarveg og veginn um Súðavíkurhlíð vegna snjóflóðahættu og óvissustig er víða í gildi. Hættustig er einnig í gildi vegna snjóflóðahættu á Ísafirði og nokkur fjöldi snjóflóða hefur fallið á norðanverðum Vestfjörðum og Tröllaskaga í morgun. Innlent 15. mars 2026 09:57
„Blint í stórhríð á Vestfjörðum“ Enn eru við gildi gular viðvaranir á Vestfjörðum en einnig óvissustig vegna snjóflóðahættu á Norðurlandi. Snjóflóðahætta verður á vegum á Vestfjörðum og hefur Vegagerðin lýst yfir hættustigi á Súðavíkurhlíð og Flateyrarvegi frá miðnætti og verður vegunum þá lokað. Veður 15. mars 2026 07:37
Gular viðvaranir á norðvesturhorninu: Rýma atvinnuhúsnæði og loka vegum Nokkur atvinnuhúsnæði á Ísafirði verða rýmd í fyrramálið vegna snjóflóðahættu, að sögn Veðurstofu Íslands. Sömuleiðis verður Flateyrarvegi og Súðavíkurhlíð lokað á miðnætti, en í nótt taka gular veðurviðvaranir gildi á norðvesturhorni landsins. Veður 14. mars 2026 21:40
Hefur ekki minnstu áhyggjur af bænum sem þurfti að rýma Símon Símonarsson, íbúi á Steinaflötum við Siglufjörð, segist engar áhyggjur hafa þótt honum og syni hans hafi verið gert að yfirgefa heimilið vegna snjóflóðahættu á svæðinu. Hann bíður rólegur eftir því að fá leyfi til að fara aftur heim. Innlent 14. mars 2026 16:20
„Þetta er ekkert grín“ Ofanflóðasérfræðingur á Siglufirði segist aldrei hafa séð annað eins á þeim slóðum og vísar þar til stærðarinnar snjóflóðs sem féll í nótt. Mikil lukka er að enginn hafi verið á ferli þegar það féll. Ískyggilegt er að sjá snjóflóðið innan við kílómetra frá byggð. Innlent 14. mars 2026 14:34
„Undarlegt að það hafi ekki orðið mannslát þarna“ Sveitastjóri Súðavíkurhrepps segir það tímaspursmál hvenær eitthvað hræðilegt gerist við Súðavíkurhlíð. Löngu sé kominn tími á göng á svæðinu enda hafi fjölmargir lent í hremmingum, þar sem litlu mátti muna, á leið sinni milli Ísafjarðar og Súðavíkur. Innlent 14. mars 2026 12:53
Stórt snjóflóð við Siglufjörð og veginum lokað Mjög stórt snjóflóð féll fyrir utan Siglufjörð í nótt en Siglufjarðarvegi hefur verið lokað frá Ketilási til Strákaganga vegna þessa. Hættustig vegna snjóflóða er nú í gildi á norðanverðum Tröllaskaga. Innlent 14. mars 2026 11:01
Hvessir á mestöllu landinu í kvöld Minnkandi norðvestan- og vestanátt í dag. Snjókoma eða slydda með köflum norðanlands, en styttir upp að mestu þar síðdegis. Næsta lægð er væntanleg inn á Grænlandshaf seint í dag og áhrifa hennar fer að gæta í kvöld og nótt með vaxandi vindi með úrkomu. Veður 14. mars 2026 07:29
Holtavörðuheiði var lokað vegna slyss Búið er að opna Holtavörðuheiði að nýju eftir að henn ihafði verið lokað vegna umferðarslyss. Þetta kemur fram á vef Vegagerðarinnar Umferðin.is. Lokunin varði í um klukkustund en á meðan var hjáleið um Laxárdalsheiði og Bröttubrekku. Innlent 13. mars 2026 16:30
„Ég var skelfingu lostinn“ Franskur maður óttaðist um líf sitt í gær þegar að lítið snjóflóð hafnaði á ökutæki hans. Hann missti stjórn á ökutækinu og segir mikla lukku að ekki hafi farið verr. Búið er að opna Holtavörðuheiði aftur en flytja þurfti 25 manns þaðan í gær og skilja ökutæki eftir. Fjöldahjálparstöð var opnuð í Reykjaskóla vegna þessa. Innlent 13. mars 2026 12:16
Fimm fólksbílar og flutningabíll fastir á Holtavörðuheiði Björgunarsveitir á Norðurlandi aðstoðuðu 25 manns niður af Holtavörðuheiði í gærkvöldi. Meirihlutinn fékk gistingu í Reykjaskóla. Björgunarsveitir fóru aftur á heiðina í morgun til að losa bílana sem þar sátu fastir, alls festust fimm fólksbílar og einn flutningabíll í óveðri í gær. Innlent 13. mars 2026 10:56
Stífri norðanátt beint til landsins og vegir lokaðir Lægðasvæði norðaustur af landinu beinir stífri norðvestlægri átt yfir landið með snjókomu á norðanverðu landinu og víða skafrenningi á fjallvegum. Sunnanlands verður úrkomulítið þó að reikna megi með dálitlum éljum suðvestanlands. Veður 13. mars 2026 07:13
Á annan tug ferðalanga fastir á Holtavörðuheiði Björgunarsveitir hafa verið boðaðar út norðan og sunnan Holtavörðuheiðar vegna á annan tug ferðalanga sem eru í að minnsta kosti fimm föstum bílum á heiðinni. Þó nokkuð hefur verið um að björgunarsveitir hafi aðstoðað ferðalanga sem hafa fest bíla sína í dag. Innlent 12. mars 2026 19:37
Þó nokkur snjóflóð fallið og loka Flateyrarvegi í kvöld Þó nokkur snjóflóð hafa fallið á norðanverðum Vestfjörðum í dag en ekki er talin hætta í byggð sem stendur. Flateyrarvegi verður lokað klukkan 20 í kvöld vegna snjóflóðahættu. Einnig er varað við aðstæðum á Norðvesturlandi og við Hellisheiði. Innlent 12. mars 2026 17:03
Sex snjóflóð fallin og veginum lokað Veginum um Súðavíkurhlíð verður lokað hálf tólf en klukkan ellefu höfðu alls sex snjóflóð fallið á veginn. Erfið færð er um veginn. Einnig hafa fallið snjóflóð í fjallinu fyrir ofan Flateyri. Innlent 12. mars 2026 11:01
Reiknað með stormi vestantil og hríðarviðvaranir í gildi Alldjúp lægð skammt norðaustur af landinu stýrir veðrinu á landinu næsta sólarhringinn, en hún mun þó grynnast smám saman. Lægðin beinir norðvestlægri átt til landsins með ofankomu, einkum fyrir norðan. Veður 12. mars 2026 07:09
Óvissustig í Súðavíkurhlíð Vegagerðin hefur lýst yfir óvissustigi í Súðavíkurhlíð vegna snjóflóðahættu. Innlent 11. mars 2026 22:01
„Ágætis líkur á því að færð spillist“ Gular viðvaranir hafa verið gefnar út vegna norðan hríðar við Breiðafjörð, á Vestfjörðum, Ströndum og Norðurlandi vestra á morgun fram á föstudag. Vegagerðin segir líklegt að færð spillist á fjallvegum seint á morgun. Innlent 11. mars 2026 10:50
Snjókoma og slydda fyrir norðan en þurrt fyrir sunnan Útlit er fyrir norðlægar áttir og snjókomu eða slyddu á norðanverðu landinu í dag og næstu daga. Hægari vindur og stöku él á sunnanverðu landinu og á hiti að vera nálægt frostmarki í dag. Á morgun á að bæta í vind en að öðru leyti á veðrið að verða svipað og í dag. Innlent 11. mars 2026 07:59
Áfram skúrir í dag Útlit er fyrir áframhaldandi skúri eða slydduél í dag með suðvestanátt, víða 8-13 m/s. Að mestu á að vera þurrt norðaustantil. Seinni partinn gengur þó í norðaustan, 10-18 m/s, með snjókomu eða slyddu á norðanverðum Vestfjörðum. Hiti í dag verður frá núll til sex gráður en kólna á í kvöld. Innlent 10. mars 2026 07:29
Færð geti víða spillst hratt Í dag má búast við allhvössum vindi og snjókomu á fjallvegum og heiðum víða um land. Slíkt hríðarástand skapar mjög blind og erfið akstursskilyrði og færð getur spillst hratt. Veður 9. mars 2026 10:15
Stefnir í norðanhríð í vikunni Búast má við suðlægum áttum, fimm til þrettán metrum á sekúndu, og él eða slydduél sunnan- og vestanlands í dag. Léttskýjað verður á Norðausturlandi. Annað kvöld á að hvessa vestast á landinu en á miðvikudaginn og seinna í vikunni er útlit fyrir norðanhríð fyrir norðan. Innlent 9. mars 2026 07:28
Él og slydduél í dag og önnur lægð á morgun Í dag má búast við suðlægri átt og fimm til 13 metrum á sekúndu og él eða slydduél, en lengst af að það verði þurrt norðaustanlands framan af degi. Eftir hádegi gengur í suðaustan 13 til 20 metra á sekúndu og bætir í él um tíma á austanverðu landinu. Veður 8. mars 2026 07:27
Eldingu laust niður á höfuðborgarsvæðinu Veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands segir íbúa á suðvesturhorni landsins geta orðið varir við eldingar í dag. Töluverður fjöldi eldinga laust niður í gær og ein á höfuðborgarsvæðinu nú í morgun. Veður 7. mars 2026 09:59