Fréttamaður

Agnar Már Másson

Agnar Már er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Stefnir í uppbótartíma

Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis, segir ólíklegt að þinglok verði á morgun eins og til stóð samkvæmt starfsáætlun Alþingis. Hún vill ekki fullyrða hvort náist að samþykkja samgönguáætlun á næstu dögum.

Festa og Gildi vilja sam­einast

Lífeyrissjóðirnir Festa og Gildi hyggjast hefja viðræður um mögulega sameiningu sjóðanna. Gangi sameiningin eftir yrði nýr sjóður sá næststærsti á landinu með um 1.600 milljarða króna eignir miðað við stöðu sjóðanna í lok síðasta árs.

Spá ör­lítilli hjöðnun verð­bólgu

Íslandsbanki spáir því að verðbólga hjaðni lítillega í júní, en muni samt mælast yfir forsenduákvæði kjarasamninga í ágúst. Til lengri tíma litið er ekki útlit fyrir að verðbólga mælist við markmið á næstu árum.

Kanna hvort pottur hafi verið brotinn hjá Oculis

Lögmannsstofur í Bandaríkjunum athuga nú hvort grundvöllur sé fyrir því að höfða mál gegn Oculis fyrir hönd hluthafa vegna hugsanlegra verðbréfasvika eða annarra ólöglegra viðskiptahátta. Slíkar rannsóknir eru vissulega algengar en ein lögmannastofa bendir á að stjórnendur hafi mögulega farið geyst með yfirlýsingar um lyfið OCS-01 sem reyndist svo ekki ná settum árangri í lyfjarannsókn.

Rúss­nesk gervi­tungl trufla GPS-merki í Evrópu

Rússneskt gervitunglanet hefur ítrekað á síðustu árum valdið truflunum á GPS-staðsetningabúnaði á stóru svæði sem nær yfir alla Evrópu, meðal annars Ísland. Ekki liggur fyrir hvort þetta sé með vilja gert en vekur engu að síður áhyggjur af því hvort erlent ríki geti truflað fjarskiptakerfi í heimsálfunni.

For­stjóri Kviku hyggst láta af störfum

Ármann Þorvaldsson, forstjóri fjárfestingabankans Kviku, hefur óskað eftir að láta af störfum um næstu áramót eftir tæplega 10 ára starf hjá félaginu. 

Ís­lendingar borgi 55 prósent meira fyrir mat­vöru

Íslendingar borga 55 prósentum meira fyrir matvöru en íbúar Evrópusambandsins og eina Evrópulandið þar sem matvara er dýrari er Sviss, að sögn Samkeppniseftirlitsins. Þá hefur verð hækkað mest hér á landi á árunum 2020-2025. Samkeppniseftirlitið telur búvörulögin frá 2024 vera helstu skýringuna á því hvers vegna kjöt- og mjólkurverð hefur hækkað hraðar á Íslandi heldur en í Evrópu.

Rússar víg­búast við mörk Norður­landa

Rússar hafa á síðustu árum aukið umsvif sín á herstöðvum við landamærin að Norðurlöndum og Eystrasaltsríkjunum. Loftmyndir sýna hvernig gróður hefur vikið fyrir hervirkjum á sama tíma og umferð herbíla hefur aukist á svæðunum.

Hætta aftur rann­sókn á Múlaborgarmálum

Lögreglan hefur aftur fellt niður rannsókn á málum er tengjast meintum kynferðisbrotum gegn þremur börnum á leikskólanum Múlaborg. Ríkissaksóknari hafði gert lögreglunni að rannsaka málin betur en lögregla segir þá ákvörðun byggða á misskilningi.

Sjá meira