Fréttamaður

Áróra L Davíðsdóttir

Áróra er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Bílvelta austan við Hval­nes

Bíll með ferðavagn valt út af vegi rétt austan við Hvalnes á Suðausturlandi. Þrír voru um borð í bílnum en ekki er talið að um alvarlegt slys sé að ræða. 

„Ef þú vilt græða þá ferðu í að selja loft­kælingu í Evrópu“

Engin heimsálfa hitnar hraðar en Evrópa og enginn vafi er á því að hitabylgjum sé að fjölga í álfunni segir fagstjóri hjá Veðurstofu Íslands. Hitabylgjan sem geisaði um álfuna nú í sumar hafi náð yfir mun stærra svæði en þær sem mælst hafa á árum áður. Erfitt hefur verið að halda úti markmiði Parísarsamningsins um að halda hlýnuninni innan tveggja gráða. 

Segja 2.700 hafa látist vegna hita­bylgju

Talið er að yfir 2.700 hafi látist af völdum hita í Englandi og Wales í kjölfar hitabylgju sem þar geisaði í maí og júní. Rauðar veðurviðvaranir vegna hitans voru gefnar út í lok júní en talið er að flest dauðsföll hafi átt sér stað í júnímánuði þegar hiti náði tæpum 37 stigum. 

Miklir skógar­eldar nærri París

Tvær slökkviflugvélar voru sendar með hraði til að berjast við gróðurelda sem kviknuðu í Fontainebleau-skógi, 60 kílómetra suðaustan við Parísarborg. 

Inn­brot í kirkju á höfuð­borgar­svæðinu

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu bárust þrjár tilkynningar um yfirstaðið innbrot í nótt, tvö í heimahús og eitt í kirkju. Einn var handtekinn í þágu rannsóknar á öðru innbrotinu í heimahús en málin séu öll í rannsókn.

Hvalur skaut up kollinum í Hólma­vík

Hnúfubakur sást bregða á leik í Hólmavík á föstudaginn en Júlíus Garðar Þorvaldsson, íbúi á Hólmavík, náði myndbandi af sjónarspilinu.

Sjá meira