Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Áróra L Davíðsdóttir skrifar 24. október 2026 08:21 Tólf klukkustundum eftir að eldur kviknaði í húsinu sögufræga hefur ekki enn náðst að slökkva eldinn. Getty Enn logar eldur í Arnarhreiðri Adolfs Hitler, einu sögufrægasta húsi Þýskalands, eftir að kviknaði í því í gærkvöldi. Einn hefur verið handtekinn grunaður um íkveikju.
Í umfjöllun Bild er haft eftir lögreglumanni að mikið tjón hafi orðið á húsinu og ólíklegt sé að hægt verði að bjarga því. Brunavarnarkerfi hafi farið í gang um níuleytið á staðartíma í gærkvöldi og þegar viðbragðsaðila bar að garði hafi húsið staðið í ljósum logum. Um 200 slökkviliðsmenn tóku þátt í slökkviliðsstarfi vegna eldsins. Haft er eftir Lisu Maier, talsmanni lögreglu, í umfjöllun The Guardian að eldurinn sé erfiður viðureignar vegna staðsetningar hússins, sem er í 1.834 metra hæð. Boðað verði til blaðamannafundar seinna í dag vegna atviksins. Sjá einnig: Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Mynd úr vefmyndavél á svæðinu frá því í gær. bergfex.de Einn hefur verið handtekinn og yfirheyrður grunaður um íkveikju en eldsupptök eru þó enn óljós. Enginn er talinn hafa verið inni í húsinu þegar eldurinn kviknaði. Á síðu hússins segir að því hafi verið lokað, sem og þjónusta við gesti, um ókominn tíma vegna mikils eldsvoða. Einn vinsælasti ferðamannastaður Þýskalands Húsið, sem heitir á þýsku Kehlsteinhaus, er staðsett á fjallinu Kehlstein í Bæjaralandi ofan við bæinn Berchtesgaden, sem er við Alparætur. Um er að ræða einn vinsælasta ferðamannastað Þýskalands. Það var byggt á árunum 1937 til 1938 sem sumarhús fyrir háttsetta nasista, þar á meðal Adolf Hitler. Hann er þó sagður hafa dvalið þar sjaldan, heldur hafi markmiðið með byggingunni verið að heilla erlenda gesti og diplómata. Húsið komst nokkuð óskaddað í gegnum seinni heimsstyrjöldina. Á síðustu árum hefur það verið notað sem safn um Þýskaland nasismans.
Þýskaland Mest lesið Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vilja hækka samræðisaldur Innlent Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Fleiri fréttir Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Sjá meira