Fréttamaður

Birgir Olgeirsson

Birgir er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Vilja rann­saka vinnu­brögð sér­staks sak­sóknara

Þingmenn vilja að sérstök rannsóknarnefnd kanni hvort réttindi sakborninga hafi verið virt við rannsókn mála eftir bankahrunið. Meðal annars verði farið yfir hleranir, handtökur og varðveislu rannsóknargagna hjá sérstökum saksóknara.

Töpuðu bar­daganum, lið­þjálfanum og prestinum

Forysta Viðreisnar fær kaldar kveðjur í nýjum pistli Jóns Gnarr, sem lýsir sér sem hermanni sem hafi verið sendur óstuddur í tapaðan bardaga. Ábendingum hans um bágborið ástand herdeildarinnar hafi lítt verið sinnt og nú telji hann sér betur borgið utan hennar.

Dæmdir morðingjar gætu fengið að annast fatlað fólk

Fólk sem hefur verið dæmt fyrir manndráp eða alvarlegar líkamsárásir gæti fengið að annast fatlað fólk samkvæmt frumvarpsdrögum Ragnars Þórs Ingólfssonar, félags- og húsnæðismálaráðherra um breytingar á lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir. Einhverfusamtökin gagnrýna áformin og telja nauðsynlegt að meta áhrif þeirra á öryggi þjónustunotenda.

Sakar Ölmu um að hafna Litla spítalanum fyrir fram

Það skýtur skökku við að heilbrigðisráðherra afskrifi Litla spítalann í fjölmiðlum á meðan erindi aðstandenda hans er enn til skoðunar hjá Sjúkratryggingum Íslands, að mati Rósu Guðbjartsdóttur, þingmanns Sjálfstæðisflokksins. Hún vonast til að einkarekstur þjónustunnar hafi ekki blindað sýn ráðherra.

Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi

Fyrirhuguð íbúðablokk við Hvaleyrarbraut í Hafnarfirði kemur í veg fyrir áframhaldandi flugeldasölu í húsnæði Björgunarsveitar Hafnarfjarðar, að sögn sveitarinnar. Hún óskar eftir að bærinn greiði um 125 milljóna króna viðbyggingu svo halda megi sölunni áfram.

20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu

Stuðningur Íslands við Úkraínu nam 20,4 milljörðum króna frá upphafi allsherjarinnrásar Rússlands í febrúar 2022 til september síðastliðins. Framlög og samningar um stuðning við Palestínu nema samtals um 1,76 milljörðum samkvæmt samantekt á fjárhæðum í skýrslu forsætisráðherra um framkvæmd ályktana Alþingis frá árinu 2025. Sú fjárhæð nær yfir nokkur ár og felur einnig í sér greiðslur á næstu árum.

Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum

Sjálfkeyrandi bíla mætti prófa í almenningssamgöngum í Vestmannaeyjum, að mati Sigríðar Andersen, þingmanns Miðflokksins. Innviðaráðherra tekur vel í hugmyndina og segir slíkar tilraunir á Heimaey koma vel til greina.

Inga um ótta kennara: „Staðan er graf­alvar­leg“

Staðan í öryggismálum skóla er grafalvarleg að mati Ingu Sæland mennta- og barnamálaráðherra. Hún segir unnið að viðbrögðum eftir fréttir af því að kennarar óttist árásir nemenda og utanaðkomandi fólks.

Tíu mánuðir án á­kvörðunar um um­önnunar­bilið

Ekki hefur verið tekin ákvörðun um næstu skref við að brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla, tíu mánuðum eftir að aðgerðahópur skilaði tillögum sínum. Hópurinn lagði til að viðræðum ríkis og sveitarfélaga lyki í maí og frumvarp um lögbundna ábyrgð sveitarfélaga á leikskólarekstri kæmi fram í haust.

Sjá meira