Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 22. október 2026 13:22 Margrét hefur dvalið á Hólmsheiði síðan í apríl 2025, lögmaður hennar segir enga betrun felast í dvöl hennar þar. Margrét Halla Hansdóttir Löf sem varð föður sínum að bana í Súlunesi í Garðabæ vill afplána dóm sinn í fangelsinu Sogni í stað þess að afplána á Hólmsheiði. Lögmaður hennar segir enga betrun felast í því að vista fanga til lengdar á Hólmsheiði sem sé hannað sem gæsluvarðhaldsfangelsi. Erindi Margrétar hafi ekki verið svarað.
Sigurður G. Guðjónsson lögmaður Margrétar gerir málinu skil í Facebook færslu. Þar gerir hann skóflustungu að nýju fangelsi Stóra-Hrauni að umfjöllunarefni sínu og segir að verði það að veruleika megi áætla að það muni kosta fjörutíu milljarða eða jafnvel meira. „Verði þetta fangelsi að raunveruleika yrði það annað mannvirkið sem hannað, teiknað og byggt er sem fangelsi. Hitt fangelsið er að Hólmsheiði. Hólmsheiðar fangelsið átti að vera gæsluvarðhaldsfangelsi. Það er þó ekki hannað með það fyrir augum að gæsluvarðhaldsfangar geta setið mjög lengi inni. Þannig hefur umbjóðandi minn Margrét Halla, setið í gæsluvarðhaldi að Hólmsheiði frá 11. apríl 2025 og ég þekki ágætlega líðan hennar.“ Hann segir að hjá Margréti líkt og öðrum föngum sem dvelja á Hólmsheiði séu dagarnir lengi að líða. Fátt sé í boði, útivist takmörkuð, aðstaða til líkamsræktar bágborin og vinna lítil og ekki uppbyggileg, nema þegar planta megi örfáum sumarblómum. „Mestur tími fanga fer í að horfa á hvíta veggi ganga og annarra rýma eða sjónvarp. Þetta umhverfi bætir ekki andlega heilsu fanga og þó sálfræðingar og jafnvel geðheilsuteymi sé til að dreifa nær það ekki að sinna föngum með þeim hætti að til bóta horfi.“ Hann segir fangelsið líta vel út frá lofti og utan frá séð. Fangelsið sé hinsvegar lekt eins og þorri bygginga með flöt þök, byggingin sé mannfjandsamleg. Fangelsið að Hólmsheiði séð að ofan.Vísir/Vilhelm „Fullyrða má að betra sé að eyða minna fé í umbúðir en meira fé í innihald þegar kemur að fangelsum og refsingum. Engin betrun felst í því að vista fanga til lengdar að Hólmsheiði og af myndum af 30 milljarða fangelsinu að dæma virðist þar mikið hugað að útliti. Það var uppörvandi að heyra nýjan fangelsismálastjóra tala um öll þau úrræði sem föngum standa til boða. Þau virðast þó ekki standa gæsluvarðhaldsföngum til boða í það minnsta hefur ekki verð svarað erindi Margrétar Höllu um að fara að Sogni til að njóta örlítið meira frelsis.“ Fangelsið að Sogni er staðsett í Ölfusi, skammt frá Hveragerði. Það var tekið í notkun 1. júní 2012 og þar er pláss fyrir 21 fanga við góðar aðstæður. Fangelsið er skilgreint sem opið fangelsi sem felur í sér að þar eru engar girðingar eða múrar sem afmarka fangelsið en fangar þurfa að vera tilbúnir til að fylgja skýrum reglum, að því er segir á vef Fangelsismálastofnunar. Fangelsið Sogni er í Ölfusi. Vísir/Magnús Hlynur
Fangelsismál Manndráp í Súlunesi Tengdar fréttir Kröfu um að gera Margréti arflausa vísað frá Hálfbróðir Margrétar Löf krafðist þess fyrir dómi að ákveðið yrði að með því að drepa föður sinn hafi hún fyrirgert rétti sínum til þess að erfa hann. Kröfu hans var vísað frá dómi og vísað til þess að svipting erfðaréttar teljist samkvæmt lögum til refsikenndra viðurlaga við afbroti og að ákvörðun um slíka kröfu verði að koma frá ákæruvaldinu. 17. desember 2025 06:30 Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Seðlabankinn lagði Þorstein Má Innlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Fleiri fréttir Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Kveður Víetnam og heldur áfram til Kína Seðlabankinn lagði Þorstein Má Fólk upplifi óttastjórnun hjá Reykjavíkurborg Geta nú lokað Reykjanesbrautinni með fjarstýringu Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Ungmenni gripin við innbrot „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Sjá meira
Kröfu um að gera Margréti arflausa vísað frá Hálfbróðir Margrétar Löf krafðist þess fyrir dómi að ákveðið yrði að með því að drepa föður sinn hafi hún fyrirgert rétti sínum til þess að erfa hann. Kröfu hans var vísað frá dómi og vísað til þess að svipting erfðaréttar teljist samkvæmt lögum til refsikenndra viðurlaga við afbroti og að ákvörðun um slíka kröfu verði að koma frá ákæruvaldinu. 17. desember 2025 06:30