Innlent

Val­gerður fer aftur frá SÁÁ

Eiður Þór Árnason skrifar
Valgerður Rúnarsdóttir var vongóð en segir nú lítið hafa breyst. 
Valgerður Rúnarsdóttir var vongóð en segir nú lítið hafa breyst.  Vísir/Arnar

Valgerður Rúnarsdóttir, fyrrverandi framkvæmdastjóri lækninga hjá SÁÁ, segir stjórn samtakanna ekki enn hafa brugðist við athugasemdum sínum og starfsmanna. Hún hefur nú lokið störfum hjá SÁÁ eftir að hafa snúið tímabundið aftur á Sjúkrahúsið Vog.

RÚV greindi fyrst frá. Valgerður sagði upp störfum í september eftir að starfslokasamningur var gerður við fyrrverandi forstjóra SÁÁ, hefur verið gagnrýnin á framkvæmdastjórn samtakanna og sakað hana um óeðlileg afskipti af heilbrigðisstarfseminni. 

„Það hefur ekkert breyst. Ég sem sagt kom til baka þarna af því að það var verið að stofna þarna einhverja millistjórn en þetta tekur allt lengri tíma. Ég er búin að koma þarna inn núna sem sagt í þrjár vikur að aðstoða og ekkert þörf á því að ég sé þarna áfram,“ segir Valgerður í samtali við Vísi. 

Í lok september sagði Valgerður þetta tímabundna ráðstöfun til að tryggja vinnufrið við endurskoðun samnings SÁÁ við Sjúkratryggingar. Jón Áki Jensson var ráðinn tímabundið sem framkvæmdastjóri lækninga eftir uppsögn Valgerðar en sagði svo starfi sínu lausu eftir tvær vikur í starfi. Valgerður segist hafa starfað síðustu vikur sem „læknir á gólfinu“.

Sérðu ekki fram á að sækjast eftir því að snúa þarna aftur?

„Jújú, það hefur ekkert breyst hjá mér. Það er bara allt eins. Ég vil helst ekki vinna neins staðar annars staðar en ég vil vinna með því fólki sem við erum búin að byggja upp þarna síðustu árin. Kannski á eitthvað eftir að breytast, ég er ekkert að segja það. En ég er allavega ekki áfram að vinna á gólfinu, ég er búin að vera í þrjár vikur til þess að styðja við starfsfólkið. Það var svona svolítið erfið staða á þessum tíma,“ bætir hún við. 

Finnst þér eitthvað hafa verið brugðist við þínum athugasemdum, annarra og fyrrverandi stjórnenda?

„Nei, ekkert. Af hálfu stjórnar SÁÁ hefur allt verið óbreytt. Mér finnst það svolítið ótrúlegt.“

Gátu tekið inn fleiri sjúklinga

Valgerður segir fjölda sjúkrarýma í notkun á Vogi hafa fjölgað á síðustu vikum en vísar að öðru leyti á stjórnendur sjúkrahússins. Áður var greint frá því að Vogur starfaði einungis á um helmingsafköstum á meðan biðlisti væri eftir meðferðarþjónustu. Um tíma voru engir nýir sjúklingar teknir inn vegna manneklu og einkum skorts á læknum. 

Valgerður hefur sakað framkvæmdastjórn SÁÁ um að hafa bolað Ragnheiði Huldu Friðriksdóttur, fyrrverandi forstjóra SÁÁ, úr starfi. Formaður stjórnar SÁÁ hefur hafnað þessu. Eftir brotthvarf Ragnheiðar sögðu bæði Valgerður og Þóra Björk Ingólfsdóttir, fagstjóri á meðferðarstöðinni Vík, upp störfum. Báðar hafa þær sakað sömu stjórn um óeðlileg afskipti af faglegri heilbrigðisstarfsemi SÁÁ. Formaður SÁÁ hefur sömuleiðis vísað þessu á bug. 

Fréttin hefur verið uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×