Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Dansk-írakski leikarinn Dar Salim er staddur á landinu og virðist njóta þess vel miðað við færslu hans á samfélagsmiðlum. Hann segist þakklátur fyrir frídag og virðist því líka vera hér við vinnu miðað við færsluna. 29.9.2026 08:36
Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Yfirmaður leikjaupplifunar hjá bandaríska fyrirtækinu The New York Times var skotinn til bana í Kaliforníu en tengdaforeldrar hans eru grunaðir um morðið. Þau voru handtekin nærri vettvangi morðsins örfáum mínútum eftir að vitni heyrðu skothvelli og sáu mann falla til jarðar. 28.9.2026 23:37
Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Lokað var fyrir umferð á Kringlumýrarbraut í suður eftir að vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrúna í kvöld. Engn slys urðu á fólki en lögregla og starfsmenn Vegagerðarinnar skoða vettvang. 28.9.2026 22:53
Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum Alls voru tuttugu og fjórir ökumenn stöðvaðir í akstri á höfuðborgarsvæðinu um síðastliða helgi sem reyndust vera undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Þar af voru tvær konur og tuttugu og tveir karlar en þrír þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi og þrír aldrei öðlast ökuréttindi. 28.9.2026 21:32
Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Þekkt söngkona í Íran hefur verið fundin sek um birtingu „ruddalegs og ósæmilegs efnis“ og mun hún hljóta sjötíu og fjögur svipuhögg sem refsingu. Efnið var beint streymi frá tónleikum hennar í desember 2024 þar sem hún kom fram án þess að klæðast hijab og í ermalausum kjól. Henni verður einnig gert að yfirgefa heimaland sitt í tvö ár. 28.9.2026 20:54
Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Grunnskólakennari spyr í hvaða vitleysu einkunnakerfi hérlendis séu stödd. Reglugerð um nýja einkunnagjöf sem eigi að vera innleidd í vor sé ekki úthugsuð en það þurfi fyrst að breyta aðalnámskrá og því næst eigi að setja upp kvarða sem passi fyrir þá aðalnámskrá. Það sé skammsýni að telja að nýr kvarði verði breyting til hins betra. 28.9.2026 19:24
Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Starfsgreinasamband Íslands (SGS) hefur skilað umsögn um frumvarp vegna fjárlaga 2027 en þar gagnrýnir sambandið harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir stjórnvalda. Sambandið geti með engu móti stutt það óbreytt og telur að „stjórnvöld þurfi að horfast í augu við eigin ábyrgð á verðbólguþróuninni“. 28.9.2026 18:08
Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Malbikun og fræsing á Reykjanesbraut í norðurátt mun fara fram á milli Kaplakrika og Kauptúns frá klukkan 20:00 til 07:00 í nótt. Eru vegfarendur beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir við vinnusvæðin en lokað verður fyrir umferð á vegkaflanum. 28.9.2026 17:45
Hjónin David Leitch og Kelly McCormick hlutu heiðursverðlaun RIFF Leikstjórinn David Leitch og framleiðandinn Kelly McCormick hlutu í gær, laugardaginn 26. september, heiðursverðlaun Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík fyrir framúrskarandi listfengi. Verðlaunin voru afhent við móttöku RIFF og Reykjavíkurborgar í Listasafni Reykjavíkur. 27.9.2026 23:14
Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Manúela Ósk Harðardóttir framkvæmdastjóri Ungfrú Ísland og Elísa Gróa Steinþórsdóttir aðstoðarframkvæmdastjóri segja ásakanir sem hafa verið bornar upp á þær og teymið á bakvið keppnina síðustu daga vera rangar að miklu leyti. Þær séu alltaf opnar fyrir samtali ef einhver hafi neikvæða upplifun af keppninni en að ásakanir um andlegt ofbeldi, fjárkúgun og mismunun séu alvarlegar og ósannar. 27.9.2026 22:45