Fréttamaður

Freyja Þórisdóttir

Freyja er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Tay Keith er fallinn frá að­eins 29 ára að aldri

Tónlistarupptökustjórinn Tay Keith, sem hefur verið tilnefndur til Grammy-verðlauna og unnið með tónlistarmönnum á borð við Drake, Travis Scott, Eminem og Beyoncé, fannst látinn í íbúð sinni í Nashville Tennessee á dögunum. Á síðasta ári var Keith á 30 Under 30 Music lista Forbes.

Sigldu af stað með mótmælandann um borð

Hvalveiðiskipið Hvalur 9 hefur siglt úr höfn en Hólmsteinn Harðarson situr nú í tunnu mastursins til að mótmæla hvalveiðum. Hann sagðist fyrr í dag ekki ætla niður sjálfviljugur en að hann væri með takmarkað nesti, eitthvað vatn og lítið batterí á símanum. 

Leik­konan Margrét Helga Jóhanns­dóttir er látin

Margrét Helga Jóhannsdóttir leikkona er látin, áttatíu og sex ára að aldri. Hún var fjölhæf listakona og hlaut Edduverðlaun í tvígang, fyrst árið 1999 fyrir leik sinn í kvikmyndinni Englar Alheimsins, og síðar árið 2012 fyrir leik sinn í kvikmyndinni Eldfjall. Árið 2024 hlaut Margrét Helga svo heiðursverðlaun Grímunnar þar sem henni voru þökkuð framúrskarandi og ómetanleg störf í þágu íslenskrar leiklistar í meira en hálfa öld.

Hönnuðir nota blóm á mjög ó­venju­legan hátt

Vöruhönnuðurinn Svana Lovísa Kristjánsdóttir sem rekur verslunina og vinnustofuna Stúdíó Flamingo í Hafnarfirði hefur undanfarið unnið ásamt fatahönnuðinum Andreu Magnúsdóttur við að sauma blóm á skó og annað í sama heimi blóma og hönnunar. Vala Matt kynnti sér sköpunargleði þeirra vinkvenna í nýjasta þætti Ísland í dag.

Ef með­ferðar­lotan beri ekki árangur verði hann ekki í næstu þátta­röð

Jeremy Clarkson, þáttastjórnandi „Top Gear“ og annarra breskra sjónvarpsþátta, greindi frá því á dögunum að hann hefði verið greindur með krabbamein. Í síðustu tveimur þáttum fimmtu þáttaraðar „Clarkson's Farm“ sagði Clarkson meðleikurum sínum, Charlie Ireland og Kaleb Cooper, frá greiningunni.

Þessi fjór­tán voru sæmd fálka­orðunni

Halla Tómasdóttir forseti sæmdi í dag fjórtán manns heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. Þeirra á meðal eru rithöfundurinn Andri Snær Magnason, matreiðslumeistarinn Hrefna Sætran og fyrirliði Grindavíkur í körfuknattleik, Ólafur Ólafsson.

Eins árs gamalt barn skotið til bana af lög­reglu­manni

Lögreglumaður í Mississippi skaut hinn eins árs gamla Kohen Kartier Wiley til bana á sunnudaginn síðasta, þann fjórtánda júní. Wiley hafði verið í verslun Walmart ásamt móður sinni og frænku þegar skotið var á þau þar sem þau óku um bílastæðið á silfurlituðum fólksbíl. Lögregla segir í yfirlýsingu að móðir hans og frænka hafi verið grunaðar um búðarhnupl.

Elín Hall er fjall­konan í ár

Leikkonan og söngkonan Elín Sif Halldórsdóttir er fjallkonan í ár. Lýðveldi Íslands er áttatíu og tveggja ára í dag og af því tilefni var blásið til hátíðarhalda víða um land og þar á meðal í Reykjavík. Að vanda hvíldi mikil leynd yfir því hver myndi fara með hlutverk fjallkonunnar þar til hún gengi út úr Alþingishúsinu klædd skautbúningnum.

Rændu sjón­varpi og flúðu á brott

Fjórir eru sagðir hafa rænt sjónvarpi úr Costco á opnunartíma í gærkvöldi. Lögregla segir mennina sjást á upptöku en ekki hafi náðst að hafa uppi á þeim.

Sjá meira