Mögulegt hvassviðri fyrir sunnan Talsverður lægðagangur er langt sunnan lands næstu daga, en hæðasvæði er norður af Jan Mayen. Að sögn Veðurstofunnar er búist við því að í sameiningu muni þessi veðrakerfi valda austlægum áttum á landinu, allhvössum vindi eða hvassviðri syðst um tíma, en annars mun hægari. 14.2.2025 07:45
Brynjar settur dómari Brynjar Níelsson, fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur verið settur í embætti dómara við Héraðsdóm Reykjavíkur til eins árs. Jafnframt hefur Jónas Þór Guðmundsson verið skipaður hæstaréttarlögmaður verið skipaður í embætti dómara við Héraðsdóm Reykjaness. 14.2.2025 07:38
Missa herbergið eftir allt saman: „Með eindæmum lítilmannlegt“ Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins mun missa umtalað þingflokksherbergi sitt til Samfylkingarinnar. Þetta er ákvörðun forsætisnefndar Alþingis. Áður hafði verið greint frá því að Ragna Árnadóttir, skrifstofustjóri Alþingis, hefði úrskurðað að Sjálfstæðisflokkurinn myndi halda herberginu. 13.2.2025 14:33
Samúel Jói og Shamsudin-tvíburarnir á leið í steininn Samúel Jói Björgvinsson hlaut þriggja og hálfs árs fangelsisdóm í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær fyrir stórfellt fíkniefnabrot. Tvíburabræðurnir Elías og Jónas Shamsudin hlutu tveggja og hálfs árs dóm hvor. 13.2.2025 13:11
Lýsir ógnarástandi í bekk dóttur sinnar: „Ofbeldið er enn þá alvarlegra en fólk heldur“ Hermann Austmar, faðir stúlku í Breiðholtsskóla, segir ógnarstjórnun ráða ríkjum í árgangi dóttur hennar sem er á miðstigi skólans. Hann talar um að fámennur hópur ráði ríkjum og að börn hafi orðið fyrir andlegu, líkamlegu og kynferðislegu ofbeldi. 13.2.2025 10:44
Saksóknari hefði þurft að geta í eyðurnar Það er mat Landsréttar að það hefði verið hætt við því að Héraðssaksóknari þyrfti að geta í eyðurnar og setja fram tilgátur hefði hann lagt fram nákvæmari ákæru í Kiðjabergsmálinu svokallaða. Landsréttur vísaði málinu aftur í hérað. 13.2.2025 10:30
Lægðagangur í suðri og hæðasvæði í norðri Langt suður í hafi er spáð talsverðum lægðagangi, en hæðasvæði norður af Jan Mayen. Þetta kemur fram í textaspá Veðurstofunnar en þar segir að í sameiningu muni þessi veðurkerfi valda austlægum áttum á landinu, allhvössum vindi eða hvassviðri syðst um tíma, en annars mun hægari. 13.2.2025 07:22
„Höfum verið máluð upp eins og vesenisfólk“ Ásthildur Lóa Þórsdóttir, mennta- og barnamálaráðherra, fékk leyfi frá dómara til að tjá sig um mál sitt og eiginmanns hennar gegn íslenska ríkinu eftir að lögmenn höfðu lokið máli sínu í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. 12.2.2025 16:55
Sé Alfreð sakhæfur eigi að horfa til tuttugu ára eða ævilangs fangelsis Arnþrúður Þórarinsdóttir, saksóknari hjá héraðssaksóknara, segir að ef fallist verði á að sakfella Alfreð Erling Þórðarson, 46 ára Norðfirðing, sem er grunaður um að hafa orðið eldri hjónum að bana í Neskaupstað í fyrra, væri eðlilegt að dæma hann í tuttugu ára fangelsi, og jafnvel ævilangt fangelsi. 12.2.2025 14:04
„Það er ekki hægt að koma svona fram við fólk“ „Réttlæti á Íslandi er dýrt,“ sagði Ásthildur Lóa Þórsdóttir mennta- og barnamálaráðherra þegar hún gaf skýrslu í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Hún og eiginmaður hennar stefna íslenska ríkinu og vilja meina að Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu hafi haft af þeim tæplega ellefu milljónir króna. 12.2.2025 10:28