Fréttamaður ABC settur í straff eftir ranga frétt um Flynn Frétt ABC um hvað fyrrverandi þjóðaröryggisráðgjafi Donalds Trump væri tilbúinn að bera vitni um var leiðrétt á föstudag. Fréttamaðurinn hefur nú verið settur í launalaust leyfi. 3.12.2017 08:35
Lögregla og mótmælendur tókust á við fund þýsks öfgaflokks Harðlínumenn voru kjörnir til forystu þýska öfgahægriflokksins Valkostur fyrir Þýskaland (AfD) á meðan lögregla beitti vatnsþrýstibyssu og piparúða gegn mótmælendum fyrir utan fundarstaðinn. 3.12.2017 08:18
Sif Gunnarsdóttir ráðin skrifstofustjóri menningarmála borgarinnar Skrifstofustjórinn vinnur meðal annars að undirbúningu helstu hátíða Reykjavíkurborgar eins og Menningarnótt. 3.12.2017 07:41
Mueller veik FBI-manni til hliðar vegna skilaboða um Trump Alríkislögreglumaður sem vann við rannsókn á afskiptum Rússa af forsetakosningunum í Bandaríkjunum er grunaður um að hafa skipst á skilaboðum við hjákonu sína sem túlka mætti sem neikvæð um Trump forseta. 3.12.2017 07:21
Trump eftir nýjustu ákæruna: „Alls ekkert samráð“ Fjórir starfsmenn forsetaframboðs Donalds Trump hafa verið ákærðir. Trump fullyrðir að ekkert samráð hafi átt sér stað við Rússa í kosningabaráttunni. 2.12.2017 14:51
Mjótt á munum í kosningabaráttu í Alabama eftir ásakanir um barnaníð Þrátt fyrir fjölda ásakana um kynferðislega tilburði við ungar stúlku og konur á Roy Moore enn góða möguleika á að vera kjörinn öldungadeildarþingmaður Alabama. 2.12.2017 14:20
Heilbrigðiskerfið ekki einkavætt frekar Nýr heilbrigðisráðherra Vinstri grænna ætlar að byrja á að gera úttekt á stöðu einkavæðingarmála í heilbrigðiskerfinu. 2.12.2017 13:09
Ríkið ætlar að áfrýja dómi um skaðabætur til lögreglufulltrúa Lögreglufultrúinn vann málið gegn ríkinu vegna ákvörðunar lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu um að leysa hann frá störfum vegna rannsóknar á meintri spillingu. 2.12.2017 13:00
Kjarnorkuviðvörunarsírenur ómuðu í fyrsta skipti frá kalda stríðinu Ástæða prófanana er aukin spenna milli Bandaríkjanna og N-Kóreu. Sírenunum er ætlað að gefa íbúum fimmtán mínútna fyrirvara fyrir kjarnorkuárás. 2.12.2017 12:39