Óvissa vegna banns Trump við transfólki í hernum Ákvörðun Donalds Trump um að banna transfólki að gegna herþjónustu kom hermálayfirvöldum í opna skjöldu. Blaðafulltrúi Hvíta hússins getur ekki svarað hvort hermenn sem eru þegar á vígvellinum verði sendir heim vegna bannsins. 27.7.2017 10:41
Ísraelar fjarlægja umdeild öryggishlið í Jerúsalem Vopnaleitarhlið og öryggisbúnaður sem Ísraelar komu upp við gömlu borgina í Jersúsalem hefur verið fjarlægður. 27.7.2017 10:03
Uppstokkun í sænsku ríkisstjórninni Tveir ráðherrar sem eru taldir bera ábyrgð á gagnaöryggishneyksli hverfa úr sænsku ríkisstjórninni og sá þriðji hættir af heilsufarsástæðum. Stefan Löfven, forsætisráðherra, segist aftur á móti ekki ætla að steypa Svíþjóð í stjórnarkreppu með að leyfa stjórninni að falla. 27.7.2017 09:18
Segja Sean Spicer á óskalista fyrir Dansað með stjörnunum Fyrrverandi blaðafulltrúi Hvíta hússins gæti reimað á sig dansskóna verði framleiðendum „Dansað með stjörnunum“ að ósk sinni. 27.7.2017 08:34
Jarðskjálftahrinan á Reykjanesi heldur áfram Stærstu jarðskjálftarnir við Fagradalsfjall á Reykjanesi hafa verið af stærðinni tveir og yfir í nótt og í morgun. 27.7.2017 08:17
Trump ræðst enn á eigin dómsmálaráðherra og yfirmann FBI Reiðilestur Donald Trump Bandaríkjaforseta yfir Jeff Sessions dómsmálaráðherra heldur áfram. Nú vill forsetinn vita hvers vegna Sessions hefur ekki látið starfandi forstjóra FBI fara vegna meints hagsmunaáreksturs við rannsókn á Hillary Clinton. 26.7.2017 15:18
ESB ósátt við einleik Bandaríkjanna í refsiaðgerðum gegn Rússum Evrópskir leiðtogar hafa áhyggjur af því að hertar refsiaðgerðir gegn Rússum sem liggja fyrir Bandaríkjaþingi geti skaðað orkuöryggi ESB-ríkja. 26.7.2017 14:12
Trump: Transfólk má ekki gegna herþjónustu Transfólki verður bannað að gegna allri herþjónustu samkvæmt ákvörðun Donalds Trump Bandaríkjaforseta. Hann telur transfólk truflun og byrði á Bandaríkjaher. 26.7.2017 13:37
Sænska stjórnarandstaðan krefst afsagnar ráðherra Þrír ráðherrar í minnihlutastjórn Stefans Löfven forsætisráðherra Svíþjóðar eiga yfir höfði sér vantraust á þingi vegna hneykslismál sem varðar gagnaöryggi ríkisins. Stjórnin gæti jafnvel riðað til falls verði vanstrauststillaga stjórnarandstöðunnar samþykkt. 26.7.2017 13:11
Í höndum dómara hvort foreldrar Charlie Gard fá að fara með hann heim Foreldrar Charlie Gard vilja fá að eyða nokkrum dögum heima með drengum áður en hann verður tekinn úr öndunarvél sem hefur haldið í honum lífinu. Dómari tekur ákvörðun um það í dag. 26.7.2017 11:40