Bandarískur ellilífeyrisþegi býður vegfarendum tugi milljóna Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 9. maí 2026 15:32 Íbúar Nuuk tóku misvel í þessa heimsókn. Getty Bandarískur ellilífeyrisþegi á níræðisaldri hefur undanfarna daga gengið um Nuuk, höfuðborg Grænlands, og boðið vegfarendum 25 milljónum króna fyrir að greiða atkvæði með því að ganga inn í Bandaríkin, kæmi til slíkrar atkvæðagreiðslu. Hann rekur þetta erindi sitt sjálfur og bandaríska sendiráðið kannast ekkert við hann.
Clifford Edward Stanley er 86 ára ellilífeyrisþegi sem hefur sést á vappinu um götur höfuðborgarinnar, snyrtilega klæddur, og lofað hverjum grænlenskum ríkisborgara háum fjárhæðum. Slíkum fjárhæðum ræður hann reyndar ekki sjálfur yfir, en hann er viss um að bandarísk stjórnvöld sjái um smáatriðin. Grænlenska ríkisútvarpið ræddi við Clifford sem sagðist sjálfur standa að verkefninu. Hann ætlar að dvelja í Nuuk til 20. maí. Markmiðin með þessu fyrirtæki segir hann vera að hafa ofan af fyrir sér, bæta heiminn og valdefla grænlensku þjóðina. Bandaríkjastjórn sjái um féð Hann mun hafa varið undanförnum mánuðum í undirbúning „heimagerðrar þjóðaratkvæðagreiðslu“ eins og grænlenska ríkisútvarpið lýsir því. Hann sé nú kominn til Grænlands til að kanna fýsileika þess. KNR hafði samband við bandaríska sendiráðið sem þvær hendur sínar af þessu. Það kveðst ekki vita hvort um bandarískan ríkisborgra sé að ræða en að hann tali ekki fyrir hönd bandarískra stjórnvalda. Fái hann meirihluta borgara Grænlands til að kjósa með inngöngu í Bandaríkin hefur hann lofað hverjum einum þeirra og einasta skattfrjálsa eingreiðslu upp á 200.000 Bandaríkjadali sem nemur rúmlega 24 milljónum króna. Þessari upphæð hefur hann ekki sjálfur aðganga að en hyggst safna undirskriftum til að fara svo með fyrir forsetann Donald Trump. Trump og ónefndur sjóður í Sádí-Arabíu muni sjá um að safna fénu sem þarf, sem kemur til með að nema tæpri einni og hálfri billjón íslenskra króna. Ef allt bregst, Kanada Clifford segir að grænlenska lögreglan hafi haft það til rannsóknar hvort hann væri útsendari og að hún hafi einnig sagt honum að hann megi gera það sem hann langaði til innan ramma laganna. Grænlenska lögreglan hefur einnig staðfest að undirskriftasöfnunin hans sé lögleg. Clifford hefur að eigin sögn ekki átt góðu gengi að fagna fram til þessa. Grænlendingar hafi ekki tekið vel í tillögur hans og grænlenskar stofnanir hafi upp til hópa hunsað hann. Grænlandsbankinn hafi til að mynda hent honum út um leið og hann gekk inn. Í morgun hafði hann fengið tvö staðfest já frá íbúum Nuuk. Nei-in eru öllu fleiri. Fari hagur hans ekki að vænkast bráðum vendir hann kvæði sínu í kross og flýgur til Kanada. Þar hefur hann einnig haft áþekka heimagerða þjóðaratkvæðagreiðslu á prjónunum.
Grænland Bandaríkin Hótanir Bandaríkjanna vegna Grænlands Mest lesið Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Erlent Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Erlent Eyvindur P. Eiríksson látinn Innlent Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Innlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent Tveimur bjargað úr göngum níu dögum eftir skyndiflóðin Erlent Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Innlent Óttast að yfir áttatíu hafi farist Erlent Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Innlent Fleiri fréttir Ákærður fyrir að brjóta á börnum Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Grænlendingar fá fría læknisþjónustu í Danmörku Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Tveimur bjargað úr göngum níu dögum eftir skyndiflóðin Óttast að yfir áttatíu hafi farist Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Sakaskrá fjölda glæpamanna óvart hreinsuð Ungmenni drepin og þorp rifið á Vesturbakkanum Hefja síðasta áfanga ferðarinnar til Merkúrs Kviðdómendur fá síðasta séns Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Sjá meira