Grænland

Grænland

Höfuðborg: Nuuk. Mannfjöldi: 56 þúsund. Flatarmál: 2.166.000 ferkílómetrar.

Fréttamynd

Hinir treystu sér ekki en Ís­lendingarnir flugu

Íslendingar skipa stóran sess í flugsögu Grænlands. Íslenskir flugmenn gátu sér þar snemma gott orð í flugi. Talað var um að þeir treystu sér oftar til að fljúga í krefjandi landslagi og misjöfnu veðri en aðrir flugmenn.

Innlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Til­búnir til að sprengja flug­brautir á Græn­landi

Þegar danskir hermenn voru fluttir til Grænlands í janúar höfðu þeir með sér sprengiefni. Þau átti að nota til að sprengja flugbrautir í Nuuk og Kangerslussuaq, til að gera Bandaríkjamönnum erfiðara um vik með að senda hermenn til Grænlands. Þetta var ef Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, myndi reyna að taka Grænland með hervaldi, eins og hann hafði gefið til kynna að kæmi til greina.

Erlent
Fréttamynd

Fjár­festar taka vel í nýja af­komu­spá Amaroq sem er um­fram væntingar

Miðað við núverandi heimsmarkaðsverð á gulli og helstu forsendur að baki nýrri afkomuspá Amaroq fyrir árið 2026 er útlit fyrir að rekstrarhagnaður auðlindafélagsins geti orðið eilítið meiri en síðustu spár greinenda hafa gert ráð fyrir. Hlutabréfaverðið hefur rokið upp eftir að félagið opinberaði nýjar áætlanir sínar. 

Innherji
Fréttamynd

Segist ætla senda spítalaskip til Græn­lands

Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur tilkynnt á samfélagsmiðli sínum að hann ætli að senda spítalaskip til Grænlands. Dregið hefur úr hótunum hans undanfarnar vikur en forsætisráðherra Danmerkur telur hann enn girnast landið. Hún segist glöð með að búa í landi þar sem jafnt aðgengi er að heilbrigðiskerfinu.

Erlent
Fréttamynd

Amaroq ætlar að færa sig yfir á Aðal­markaðinn í London síðar á árinu

Amaroq hefur ráðið alþjóðlega fjárfestingabankann Citigroup til að undirbúa skráningu á Aðalmarkað Kauphallarinnar í London síðar á árinu í því skyni að auðvelda félaginu að fá fjármögnun frá stórum erlendum stofnanafjárfestum og vísitölusjóðum. Aðalmarkaðurinn í London hýsir í dag flest af helstu námufyrirtækjum heimsins.

Innherjamolar
Fréttamynd

Telur Trump enn girnast Græn­land

Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, telur að Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, girnist enn Grænland, þó hann hafi dregið úr hótunum sínum um að taka eyjuna með valdi. Þessu var hún spurð að á öryggisráðstefnunni í München í gær og sagðist hún því miður telja að lítið hefði breyst hjá Trump.

Erlent
Fréttamynd

Mótor­hjól eru bönnuð í Græn­landi

Íbúi á Eyrarbakka, sem hefur heimsótt Grænland nokkrum sinnum hvetur Íslendinga til að heimsækja landið því fólkið þar sé svo blítt, gestrisið og stolt af landi sínu. Mótorhjól eru hins vegar alveg bönnuð í Grænlandi.

Lífið
Fréttamynd

Þing­maður vænir Guð­mund í Brim um að arð­ræna Græn­lendinga

Þingmaður eina stjórnarandstöðuflokks Grænlands hefur þungar áhyggjur af umsvifum Guðmundar Kristjánssonar, iðulega kennds við Brim, í grænlenskum sjávarútvegi. Í óundirbúnum fyrirspurnum á þingi Grænlendinga í dag spurði hann hvort grænlenska þjóðin yrði af fé vegna innherjaviðskipta til Íslands og hvort Arctic Prime-samsteypan sem Guðmundur er stór eigandi í sé í raun leppur sem gætir hagsmuna Íslendinga.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir

Gullverð hefur lækkað nokkuð skarp á heimsvísu síðan á fimmtudag, þegar það náði sögulegum hæðum. Samhliða lækkun gullverðs hefur gengi íslenska námafélagsins Amaroq lækkað um rúmlega ellefu prósent.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Að læra af for­tíðinni

Þegar ég tók mín fyrstu skref á Evrópuráðsþinginu fljótlega eftir síðustu kosningar fann ég fljótt að rödd mín á þessum vettvangi var ómótuð og oft á tíðum óörugg. Það tekur tíma að kynna sér reglur, hefðir og ferla sem hafa mótast allt frá stofnun þingsins fyrir rúmum sjötíu árum. Á vettvangi sem þessum er auðvelt að finna fyrir smæð sinni , bæði persónulega og pólitískt.

Skoðun
Fréttamynd

Segir Trump ekki reiðan Ís­landi

Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir að Donald Trump, Bandaríkjaforseti, sé ekki reiður Íslandi. Trump talaði nokkrum sinnum í síðustu viku, á tveimur mismunandi dögum, um Ísland. Í einu tilfelli talaði hann um að vegna Íslands væri öðrum leiðtogum í Atlantshafsbandalaginu illa við sig og að Ísland hefði leitt til lækkana á mörkuðum vestanhafs.

Erlent
Fréttamynd

„Eftir þetta getur enginn treyst honum“

Útlit er fyrir að ákveðinn vendipunktur hafi orðið á sambandi Bandaríkjanna og Evrópusambandsins. Þjóðarleiðtogar og embættismenn í Evrópu eru sagðir líta á tilraunir Trumps til að kúga Evrópu með tollum og hótunum til að eignast Grænland marka tímamót.

Erlent
Fréttamynd

„Við getum gert það sem við viljum“

Línur eru farnar að skýrast um innihald samkomulagsins sem náðist á fundi Marks Rutte, framkvæmdastjóra NATO, og Donalds Trump Bandaríkjaforseta í gær, þó enn sé margt á huldu. Forsetinn segir að Bandaríkin megi gera það sem þeim sýnist á Grænlandi „að eilífu.“ Enn er margt ófrágengið, að sögn heimildarmanna New York Times.

Erlent